Fréttablaðið - 22.02.2022, Blaðsíða 18
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654.
„Við köllum okkur snillinga í þæg-
indum og fáum hrós fyrir, enda
leggjum við áherslu á að hanna
húsgögn sem eru í réttum hlut-
föllum, eins og þau eru best fyrir
líkamann,“ segir Reynir Syrusson,
hönnuður og eigandi Syrusson,
eins framsæknasta hönnunarfyrir-
tækis landsins.
Reynir stofnaði Syrusson
hönnunarhús árið 2006 og búa
starfsmenn þess yfir gríðarlegri
reynslu og þekkingu á sviði hönn-
unar og framleiðslu.
„Stór hluti húsgagna okkar er
íslensk hönnun og framleiðsla,
fyrir heimili og vinnustaði. Í fyrra
var okkar stærsta ár í íslensku
framleiðslunni og mest sala
íslenskra húsgagna frá upphafi.
Það var afskaplega ánægjulegt því
íslenska framleiðslan var áður á
svolítilli niðurleið. Við ákváðum
því að bæta við nýjum vörum og
hætta að hanna eingöngu sér-
stakar hönnunarvörur. Það er
nefnilega svo gaman fyrir hönnuði
að hanna framúrstefnulega stóla
og sófa, en jafnvel þótt fólk hrífist
að þeim passa þeir ekki alltaf sem
uppistöðuhúsgögn í móttökuna
eða í stofuna. Fólk kaupir frekar
stöku hönnunargripi til að poppa
upp heildarútlitið,“ segir Reynir
sem í Syrusson breytti um kúrs og
fór, ásamt hönnunarteymi sínu, að
hugsa í praktískari lausnum.
„Við einblíndum á þörfina og
hvað það væri sem vantaði helst.
Við vitum að enginn vill sitja lengi
í óþægilegum stól en ef stóll er
þægilegur getur fólk setið í honum
klukkutímum saman. Við höfum
alltaf vandað okkur við þetta
og lagt áherslu á að hanna sófa
og stóla með réttri setu og dýpt,
ekki of djúpa né of lága þannig að
fólk setjist nánast ofan í gólf. Við
leggjum líka mikla áherslu á fágun
og fagmennsku við smíðarnar. Það
hefur skilað sér í auknum vin-
sældum íslenskrar hönnunar og
framleiðslu okkar sem aldrei fyrr.“
Stóll sem sýnir umhyggju
Syrusson hefur undanfarin ár sótt
í sig veðrið í skrifstofuhúsgögnum
í samstarfi við trausta og virta
erlenda framleiðendur. Skrifstofu-
vörurnar hafa slegið í gegn, þar á
meðal stóllinn Enjoy sem hefur
verið sá vinsælasti í Syrusson í tíu
ár.
„Já, við eigum tíu ára afmæli með
Enjoy sem er hinn fullkomni skrif-
stofustóll á góðu verði. Við vorum
líka svo heppinn að fá splunku-
nýjan og uppfærðan Enjoy-stól
sem heitir núna Enjoy ELITE . Þetta
er gripur sem fólk vill helst taka
með sér heim úr vinnunni, svo
þægilegur er hann og því óhætt
að sega að fólk fái mikið fyrir
peninginn með vali á Enjoy ELITE
stólnum,” segir Reynir um glæsi-
legan skrifstofustól sem fæst nú á
afmælistilboði.
„Enjoy er frábær stóll sem nú
er búið að betrumbæta enn meir
í ELITE-útgáfunni. Enjoy hefur
verið okkar allra vinsælasti stóll
í gegnum tíðina og lætur fara vel
um fólk í heilu fyrirtækjunum sem
hafa valið hann fyrir sitt starfsfólk.
Með vali á Enjoy ELITE er verið
að hugsa um velferð og þægindi
fyrir starfsfólkið enda er stóllinn
vottaður fyrir 24 tíma setu og allt
að 150 kílóa þunga. Algengt er að
fyrirtæki sendi sjúkraþjálfara og
iðjuþjálfa út af örkinni til að taka
stólana út og finna þann besta. Það
er skynsamlegt því þegar velja þarf
eina tegund skrifstofustóls fyrir
heilan vinnustað getur verið þraut-
in þyngri að finna stól sem mætir
þörfum flestra. Þá er mikilvægt að
prófa stólinn og sitja í honum sem
samsvarar heilum vinnudegi til
að finna hvort stóllinn henti vel,“
upplýsir Reynir.
Enjoy ELITE er einstakur gæða-
gripur, notendavænn með allar
stillingar í einum takka, frábæran
bakstuðning, færanlega sessu og
stillanlegan höfuðpúða.
„Hægt er að hækka og lækka
bakið og öll hönnun er til fyrir-
myndar. Þetta er geggjaður stóll;
kannski ekki sá ódýrasti á mark-
aðnum, en það gildir það sama um
rúm og vinnustóla; að rétt eins og
maður þarf góða dýnu til að sofa á
þarf maður góðan stól til að sitja á í
átta tíma á dag, fimm daga í viku.“
Klefar eins og hugurinn girnist
Önnur vinsæl og nýstárleg lausn
hjá Syrusson fyrir opin rými
vinnustaða eru klefar sem veita
hámarks hljóðeinangrun.
„Klefarnir eru dæmi um vöru
sem hefur þróast frá því allir voru
á sinni skrifstofu en fóru svo yfir í
opin rými þar sem margir kvarta
yfir hljóðvistinni. Þá er reynt að
bæta fyrir með skilrúmum með
hljóðdeyfandi eiginleikum, sem
gefur ágætis raun, en hvar á fólk
að taka símtöl og viðtöl í næði? Til
að uppfylla þær þarfir hafa orðið
til nýjar vörur, enda raska eilífar
truflanir og umhverfishljóð vinnu-
friðinum og veldur bæði streitu
og álagi hjá starfsfólkinu,“ greinir
Reynir frá.
Í Syrusson fást hjóðeinangrandi
klefar frá tveimur framleiðendum
og á myndinni hér á síðunni má
sjá klefann Hush! sem hefur verið
afar vinsæll í íslenskum skrifstofu-
rýmum.
„Þegar komið er inn í klefann
heyrist ekkert utan frá né heyrir
enginn það sem fram fer í klef-
anum utan frá, jafnvel þótt talað
sé hátt. Gegnumstreymi lofthring-
rásar er 100 prósent og öflugar
viftur sem draga loft inn og út. Þá
fer vel um þá sem eru í klefanum
og víða sem margir klefar eru í
opnum rýmum, enda vinsælt að
panta klefana fyrir sérfundi og
margir sem vilja komast í klefa til
að fá gott vinnunæði,“ segir Reynir
um klefana sem eru af bestu gerð
og á hagstæðu verði.
„Inn í klefana er hægt að fá allt
sem hugurinn girnist; standandi
borð, lág borð, barstóla, bekki,
símaklefa, tölvuskjái og hvað
eina sem mætir þörfum hvers og
eins. Þétt gler með gúmmílistum
tryggja afburða hljóðeinangrun
og hægt að hafa gler að framan og
aftan til að sjá í gegn og út. Ég ráð-
legg viðskiptavinum alltaf að taka
tveggja manna klefa í stað eins, því
það munar ekki miklu á stærð né
verði, en sannarlega gott ef tveir
geta sest inn saman og tekið fund,
eins og það er gott fyrir einn að
fara í klefann til að sinna við-
kvæmari símtölum eða erindum.
Notkunarmöguleikarnir aukast
með klefa fyrir tvo eða fleiri.“
Alltaf með lausnina
Slagorð Syrusson er: Alltaf með
lausnina. Það á svo sannarlega
vel við því hjá Syrusson fæst allt
sem við kemur skrifstofunni og
eru grunngildi fyrirtækisins að
veita sveigjanlega og persónulega
þjónustu og finna réttu lausnirnar
fyrir hvern og einn viðskiptavin.
„Í upphafi byrjaði Syrusson
eingöngu með íslenska hönnun og
íslenska framleiðslu og þar liggur
hjarta fyrirtækisins enn. Svo þró-
aðist fyrirtækið og til að uppfylla
þarfir allra hófum við innflutning
á framúrskarandi vörum sem ekki
er unnt að framleiða hér heima
á samkeppnishæfu verði, eins og
skrifstofustóla með snúningi og
pumpu, og rafmagnsskrifborð. Við
erum hins vegar með allt til alls,
hirslur og frábæra munaskápa í
úrvali, hægindahúsgögn, skrif-
borð, borð og stóla, skilrúm og
lausnir til hljóðvistar og ótal margt
fleira,“ upplýsir Reynir.
„Okkar sérstaða er að geta boðið
stöðluð húsgögn fyrir öll rými og
mikinn sveigjanleika í efnisvali,
og á sama tíma hannað og smíðað
sérhæfðar lausnir þar sem þörf er
á. Frá upphafi höfum við svo veitt
vinsæla þjónustu við hönnun og
teikningu skrifstofurýma fyrir
fyrirtæki og stofnanir. Þá teiknum
við upp rýmin og öll stærðarhlut-
föll þess, húsgögn og allt sem þarf,
og hægt er að sjá hvernig rýmið
lítur út í þrívídd. Hjá okkur starfar
teymi fagmanna, bæði innan-
hússarkitektar ásamt húsgagna-
hönnuðum. Þessi þjónusta hefur
frá fyrstu tíð notið mikilla vin-
sælda og er vissulega gagnleg enda
höfum við til verksins öll tæki og
tól, þekkingu og reynslu. Við erum
líka alltaf með heitt á könnunni
og viljum endilega fá sem flesta í
heimsókn,“ segir Reynir. n
Syrusson er í Síðumúla 17. Sími 588
4555. Skoðið úrvalið á syrusson.is
Klefinn Hush! er glæsilegur, kósí, veitir næði og fullkomna hljóðeinangrun.
Hjá Syrusson fæst allt sem prýðir fallega skrifstofu og góðan vinnufrið; hækkanleg skrifborð, stólar, skilrúm og hirslur.
Hjá Syrusson fást flottar munahirslur í úrvali, fyrir
yfirhafnir, töskur og hvaðeina sem þarf að geyma.
Nýr sófi frá Syrusson sameinar notagildi og formfegurð. Hann er íslensk
hönnun og framleiðsla og hægt að útfæra í mörgum stærðum og litum.
Með vali á Enjoy
ELITE skrifstofu-
stólnum er verið að
hugsa um velferð og
þægindi fyrir starfsfólkið
enda er stóllinn vottaður
fyrir 24 tíma setu og allt
að 150 kílóa þunga.
Enjoy ELITE er ein-
stakur, notenda-
vænn og þægilegur
skrifstofustóll.
2 kynningarblað 22. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGURSKRIFSTOFAN