Fréttablaðið - 22.02.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 22.02.2022, Blaðsíða 28
Til sölu Tilkynningar Tilkynningar 8 SMÁAUGLÝSINGAR 22. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR Samþykkt var í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 26. janúar og 9. febrúar að auglýsa eftirfarandi skipulagsmál: Breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 Breytingin nær til 3ha svæðis af heildarsvæði Selhrauns suður. Breytingin nær til lóðanna Norðurhella 13-19 og Suðurhella 12-14. Landnotkun lóðanna breytist úr AT2 í ÍB14. Athafnasvæði AT2 minnkar út 30ha í 27ha. Breyting á deiliskipulagi Selhraun suður, vegna Norðurhellu 13-19 og Suðurhellu 12-20 Breytingin felst í að á Norðurhellu 13-19 er heimilað að vera með 67 íbúðir í þegar byggðum húsum. Á lóðunum er gert ráð fyrir leiksvæðum, sorp- og hjólageymslum. Við Suðurhellu 12-20 er gert ráð fyrir 132 íbúðum í fimm nýjum fjölbýlishúsum, 4-6 hæða. Á lóðunum er gert ráð fyrir leiksvæðum, sorp- og hjólageymslum. Bílageymslur eru undir húsum við Suðurhellu 14-18. Tillögurnar verða til sýnis á umhverfis- og skipulagssviði að Norðurhellu 2 og í þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar Strandgötu 6, frá 22.02.22. Einnig er hægt er að skoða skipulagstillögurnar á hfj.is/skipulag Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingarnar og skal þeim skilað eigi síðar en 05.04.2022 á netfangið skipulag@hafnarfjordur.is eða skriflega í þjónustuver: Auglýsing um skipulag Hafnarfjarðarbær hafnarfjordur.is Hafnarfjarðarbær bt. umhverfis- og skipulagssvið Strandgötu 6 220 Hafnarfjörður Umhverfismat framkvæmda Matsáætlun í kynningu Niðurdæling CO2 á Hellisheiði Carbfix hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats niðurdælingar á CO2 á Hellisheiði. Kynning á matsáætlun: Matsáætlunin er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Framkvæmdaraðili mun kynna framkvæmdina á opnum streymisfundi 10. mars nk. kl. 20:00. Vefslóð á streymisfundinn má finna á vef Skipulagsstofnunar. Umsagnarfrestur: Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn.Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 22. mars til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Tillaga að breytingu á Aðalskipu- lagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna vegar um Dynjandisheiði. Aðalskipulagsbreytingin er unnin skv. 1. mgr. 36. gr. skipu- lagslaga nr. 123/2010. Vegagerðin áformar að endurbyggja veg nr. 60 yfir Dynjandisheiði og veg nr. 63 Bíldudalsveg með það að markmiði að þeir nýtist sem heilsársvegir. Vegagerðin hefur unnið matsskýrslu vegna verkefnisins í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum og Skipu- lagsstofnun gaf álit sitt um umhverfismatið í júlí 2020. Markmiðið með aðalskipulagsbreytingunni er að gera heilsárssamgöngur mögulegar um Vestfjarðaveg, milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða. Dýrafjarðargöng voru tekin í notkun í október 2020 en þau munu ekki nýtast að fullu fyrr en heilsárvegur hefur verið gerður yfir Dyn- jandisheiði. Aðalskipulagsbreytingin heimilar tvær útfærslur á veglínu, leiðir D og F í umhverfismati Vegagerðarinnar, þar sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvor línan verður fyrir valinu við endurgerð vegarins. Breytingin heimilar einnig sex ný efnistökusvæði á skipulagssvæðinu. Tillagan er aðgengileg á bæjarskrifstofum og á síðu Ísafjarðarbæjar: www.isafjordur.is Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa í síðasta lagi 4. apríl 2022 að Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði eða á skipulags@isafjordur.is . Virðingarfyllst, f.h. skipulagsfulltrúa Helga Þuríður Magnúsdóttir -verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði Auglýsing um deiliskipulagstillögu í Ísafjarðarbæ, Breiðadalsvirkjun II í Önundarfirði Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti 3. júní 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi smávirkjunar neðan Breiðadalsvirkjunar í Breiðadal skv. 41. gr. skipulagslaga 123/2010. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir svæði undir smá- virkjun neðan Breiðadalsvirkjunar í landi Veðrarár II, Breiðadal, Önundarfirði. Áform eru að nýta það vatn sem fellur frá stöðvarhúsi núverandi virkjunar ásamt vatni úr Breiðardalsá og þverlæk sem heitir Þverá. Með þessu móti er verið að nýta betur þá aðstöðu sem áður hefur ver- ið sett upp og styrkja enn betur raforkuöryggi á svæðinu. Um er að ræða allt að 200kW smávirkjun án uppistöðulóns. Tillagan er aðgengileg á bæjarskrifstofum og á síðu Ísafjarðarbæjar: www.isafjordur.is Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast skipulags- fulltrúa í síðasta lagi 4. apríl 2022 að Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði eða á skipulags@isafjordur.is . Virðingarfyllst, f.h. skipulagsfulltrúa Helga Þuríður Magnúsdóttir -verkefnastjóri á umhverfis- og eignasviði ← ← ←Nýr 2022 Ford Transit 350 Trend Verð: 5.300.000,- án vsk. Double Cab 7 manna með 3,2 m. palli. Þessir bílar eru ófánlegir í dag en við eigum þennan til afhendingar strax ! Er verið að leita að þér? Viðskiptavinir Ráðum fela ráðgjöfum okkar oft að finna starfsmenn án þess að auglýsa stöðuna. Skráðu þig í gagnagrunninn okkar til að tryggja að við finnum þig þegar rétta starfið býðst. Markaðurinn Miðvikudaga kl. 19.00 Vikulegur þáttur um íslenskt viðskiptalíf í umsjón blaðamanna Markaðarins þar sem farið er yfir helstu fréttir ásamt öðru því sem hæst ber hjá í efnahagslífinu hverju sinni.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.