Fréttablaðið - 26.02.2022, Blaðsíða 54
Skipulagsauglýsing
Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
er hér auglýst tillaga að eftirfarandi deiliskipulagi:
Brjánslækur, Brjánslækjarhöfn
og Flókatóftir.
Tilgangur deiliskipulagsins er að búa til skipulagsramma
utan um byggðina og þá uppbyggingu sem fyrirhuguð er
á næstunni s.s. stækkun hafnargarðs til að bæta smábáta-
aðstöðu, uppbygging þjónustu í tengslum við ferðamenn
ásamt annarri uppbyggingu.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Vesturbyggðar,
Aðalstræti 75, frá og með 28. febrúar til 11. apríl 2022
og er einnig til sýnis á heimasíðu Vesturbyggðar,
www.vesturbyggd.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir til 11. apríl 2022.
Skila skal athugasemdum á skrifstofu Vesturbyggðar,
Aðalstræti 75, 450 Patreksfirði.
Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar.
Virðingarfyllst,
Skipulagsfulltrúi Vesturbyggðar
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
Sameiginlegt húsnæði
þriggja stofnana ríkisins
21638 - Ríkiskaup f.h. Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna
óskar eftir að taka á leigu 5.000 – 6.000 fermetra húsnæði
fyrir eftirfarandi stofnanir ríkisins:
• Geðheilsumiðstöð barna (Geðheilsuteymi HH Fjölskyldu-
vernd, Þroska og hegðunar-miðstöð, Geðteymi barna),
alls um 1.800 fermetrar.
• Ráðgjafar- og greiningarstöð og Barna- og fjölskyldustofu,
alls um 3.200 fermetrar.
• Heyrnar- og talmeinastöð, alls um 800 fermetrar.
Áætluð heildarstærð húsnæðis er alls um 5.800 fermetrar.
Um markaðskönnun er að ræða og felur hún ekki í sér loforð
um viðskipti.
Þess er óskað að svör berist Ríkiskaupum í gegnum vefinn
Tendsign.is eigi síðar en föstudaginn, 18. mars 2022 kl. 13:00.
Fyrirspurnir skulu einnig berast í gegnum Tendsign.is og
rennur fyrirspurnarfrestur út föstudaginn, 11. mars 2022.
Allar nánari upplýsingar um ferlið, kröfur og tæknilýsingar
er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, á
vefslóðinni https://tendsign.is/.
Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að
nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.
Sjá nánar á www.utbodsvefur.is
MARKAÐSKÖNNUN
F.h. Borgarsögusafns Reykjavíkurborgar
er óskað eftir tilboðum í:
Ferjusiglingar og
veitingarekstur í Viðey
Markmið Reykjavíkurborgar er að Viðey verði
enn betur þekkt sem áhugavert útivistarsvæði og
einstakur vettvangur sögu, náttúru og menningar.
Í samvinnu við Borgarsögusafn og Reykjavíkurborg
mun rekstraraðili taka þátt í áframhaldandi upp-
byggingu er styður við það.
Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast
í útboðsgögnum nr. 15331 á vefslóðinni:
https://utbod.reykjavik.is/
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
Embassy – Housing
The American Embassy, is seeking to lease a house/apartment
in Reykjavik area as from 1st of June. Required size is 160 – 500
square meters, large living room, 2 full bathrooms, garage/inside
parking and permission to keep pets.
Lease period is for minimum 3 years.
Please send an e-mail to: sveinssonk@state.gov before
March 15th . with information about the house and location
(photos,street and house/apartment number) and phone
number of the contact person showing the property.
sEndiráð – Húsnæði
Bandaríska Sendiráðið óskar eftir að taka á leigu
hús/íbúð á höfuðborgarsvæðinu frá og með 1. júní.
Æskileg stærð 160 – 500 fermetrar, stór stofa, 2 baðherbergi
með sturtu/baðkari, bílskúr/stæði í bílageymslu og leyfi til að
halda gæludýr.
Leigutími lágmark 3 ár. Vinsamlegast sendið tölvupóst á:
sveinssonk@state.gov fyrir 15. mars með upplýsingum um
eignina, staðsetningu (ljósmyndir, götuheiti og húsnúmer/
íbúðarnúmer) og símanúmer þess sem sýnir eignina.
GRÍ MSNES- OG
GRAFNÍNGSHREPPUR
AUGLÝSING UM ALÚTBOÐ
Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir þátttakendum
til að taka þátt í opnu alútboði, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á
íþróttamiðstöðinni á Borg í Grímsnesi. Farið verður yfir allar umsóknir og
hæfi og geta umsækjanda metin út frá þeim upplýsingum sem þeir leggja
fram með umsókn sinni.
Fyrirhuguð er stækkun á núverandi íþróttamiðstöð að Borg í Grímsnesi.
Nýbygging skal vera á tveimur hæðum, annarsvegar íþróttasalur á neðri
hæð þar sem hægt verður að stunda almennar æfingar og hinsvegar
skrifstofurými á efri hæð hússins.
Heildarstærð íþróttamiðstöðvar verður um 590 m2.
Verkkaupi hefur sett byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærni-
markmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að
verkið verði unnið á sem hagkvæmastan hátt. Alútboð þetta nær yfir
verkfræðihönnun og reisingu hússins. Verkkaupi mun ráða arkitekt til
verksins.
Heiti verkefnisins er: Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi.
Helstu verkþættir eru:
• Verkfræðihönnun húss
• Byggingarleyfisumsókn
• Jarðvinna
• Undirstöður, burðarvirki og ytra byrði
• Frágangur utanhúss
• Frágangur innanhúss, þ.m.t íþróttagólfs og uppsetning á
föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna- og rafkerfa
• Frágangur lóðar
Tengiliður verkkaupa mun afhenda alútboðsgögn að ósk umsækjanda í
gegnum tölvupóst, ragnar@gogg.is. Gefa skal upp nafn, heimilisfang,
síma og netfang og verða gögnin afhent umsækjenda þriðjudaginn 22.
febrúar 2022. Skilafrestur tilboðs er 30. mars 2022, klukkan 12.00.
Ekki er hægt að skila inn umsókn eftir að uppgefinn umsóknarfrestur er
útrunninn.
Upphaf framkvæmda:
Framkvæmd hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið
tilboði bjóðanda.
Lok framkvæmda: 15. júní 2023.