Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 6
Það er búið að byggja á
landsvæði mávanna.
Guðbjörg Brá Gísladóttir, deildar-
stjóri umhverfis og framkvæmda
Sílamávar halda áfram að
vera íbúum Sjálandshverfis
í Garðabæ til ama. Bærinn
hyggst reyna að fækka máv
unum og leiðbeina íbúum um
hvað sé til ráða.
kristinnhaukur@frettabladid.is
GARÐABÆR Aðgerðir til þess að
stemma stigu við ágengni máva í Sjá
landshverfi eru nú í undirbúningi í
Garðabæ. Sílamávurinn hefur verið
til ama undanfarin ár og íbúar leitað
til bæjarins til að gera eitthvað í mál
inu.
„Íbúar kvarta mikið undan þessu,“
segir Guðbjörg Brá Gísladóttir, deild
arstjóri umhverfis og framkvæmda
hjá Garðabæ. Hún segir þetta þó
ekki vera einsdæmi í Sjálandshverfi,
heldur geta verið þar sem byggt er
nærri varplandi. En í Gálgahrauni,
sunnan við Sjálandshverfi, er stórt
varpland máva.
Vandamálið er ekki nýtt af nálinni
en illa hefur gengið að fást við máv
inn. Garðabær hefur verið bæði rætt
við meindýraeyði og fuglafræðinga
um þennan vanda. Fuglafræðingar
telja fjölda máva ekki óeðlilega mik
inn en stofninn sveiflast með fjölda
síla í sjónum. Þegar þau minnka
sækir mávurinn meira upp á land í
leit að æti.
„Þeir segja þetta fullkomlega eðli
legt. Það er búið að byggja á land
svæði mávanna,“ segir Guðbjörg.
Bænum hefur þegar borist erindi í
vetur út af mávum en Guðbjörg segir
versta tímann ekki hafinn. „Þetta
byrjar í sumar þegar ungarnir koma.
Mávurinn er ekki að trufla neinn
núna,“ segir hún. Býst bærinn því
við erindum frá íbúum í allt sumar.
Meðal þeirra sem fundið hafa
fyrir ágangi sílamávsins eru íbúar
hjúkrunarheimilisins Ísafoldar.
Þá hafa mávarnir verpt á þökum
húsa. Margir eigendur veigra sér
við því að hringja í meindýraeyði
til þess að láta farga ungunum og
hafa frekar samband við bæinn til
að spyrjast fyrir.
Hægt er að setja upp fælur á þök,
eins konar veifur, en Guðbjörg segir
vafasamt að það sé í verkahring
sveitarfélagsins að sjá um upp
setningu á þeim. Garðabær sé nú að
undirbúa upplýsingagjöf til bæjar
búa um hvernig þeir geti snúið sér
í þessum málum.
Þá er einnig verið að undirbúa
aðgerðir til að minnka fjöldann,
eða það er að segja fjölgun máv
anna. Það er að gata eggin svo þau
fúlni að innan og ungarnir drepist
fyrir klak. Garðabær hefur ekki
gripið til þess í mörg ár að skjóta
mávinn. Það sem f lækir málið
enn frekar er að í Gálgahrauni er
friðland fugla. Hefur Garðabær
því þurft að fá undanþágu hjá
umhverfisráðuneytinu fyrir öllum
aðgerðum. n
Ætla að gata egg til að fækka mávum
sem angra íbúana í Sjálandshverfi
Mávurinn er ekkert lamb að leika sér við og kallar ekki allt ömmu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
bth@frettabladid.is
KÓPAVOGUR Karen Elísabet Hall
dórsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir
takast á um oddvitasæti hjá Sjálf
stæðisflokknum í prófkjöri í Kópa
vogi í dag vegna sveitarstjórnar
kosninganna í vor. Báðar gefa kost
á sér til bæjarstjóra.
Sú sem sigrar verður arftaki
Ármanns Kr. Ólafssonar, oddvita
Sjálfstæðismanna, sem hefur verið
bæjarstjóri í Kópavogi í tíu ár.
„Það er hálfskrýtið að horfa á
prófkjörið úr fjarlægð og vera ekki
staddur í miðri hringiðunni. Ætli
ég hafi ekki tekið þátt í átta eða níu
prófkjörum,“ segir Ármann. Honum
sé efst í huga hve rekstrarlegur
styrkur bæjarins hafi batnað mikið.
„Þegar við tókum við 2012 vorum
við enn að jafna okkur eftir hrunið.
Við ákváðum að slá barlóminn af,
gengum á eftir byggingaraðilum
og hvöttum þá til að byggja. Sumir
slógu til þótt bankinn neitaði þeim
um lán og það var gæfuskref,“ segir
Ármann, sem segist skila góðu búi.
Fjölgað hefur um 8.000 manns
í Kópavogi og hafa skipulagsmál
verið áberandi hjá oddvita efnum
f lokksins í próf kjörsbaráttunni.
Bærinn stefnir að því að byggja um
4.000 íbúðir á næstu árum og fjölga
um 10.000 íbúa.
„Vatnsendamálið virðist vera
að leysast og þá fáum við vonandi
byggingarland,“ segir Ármann, en
skortur á landi hefur verið vandi.
„Mín skoðun er að Kópavogs
bær verði að gera hvort tveggja, að
þétta byggð og brjóta land,“ segir
Ármann, sem kveður óljóst hvaða
störf taki við eftir að hann hættir
sem bæjarstjóri. n
Sjálfstæðismenn kjósa um arftaka Ármanns í Kópavogi í dag
gar@frettabladid.is
IÐNAÐUR Útgerðarfélagið Lokin
hamrar ehf. vill leyfi til tilrauna
ræktunar á beltisþara í Hvalfirði.
„Við viljum skoða þrjá mismun
andi staði í firðinum til að byrja
með, til að sjá hvar er hentugast að
leggja út línur til ræktunar á þara
með tilliti til umhverfisþátta eins
og strauma, næringar, tímgunar og
f leira,“ segir í erindi Lokinhamra.
Umhverf isnefnd Kjósarhrepps
skoðar nú beiðni fyrirtækisins. n
Vilja tilraunarækt
á þara í Hvalfirði
Ármann Kr.
Einarsson
og Rannveig
Ásgeirsdóttir
þegar nýr meiri-
hluti í Kópavogi
var kynntur
2012.
Söngskemmtun
Karin Torbjörnsdóttir
Elena Postumi
25. mars kl 20.00
í Norðurljósum
Söngvar hjartans
benediktarnar@frettabladid.is
DÓMSMÁL Landréttur staðfesti í gær
dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í
málum Samherja og Þorsteins Más
Baldvinssonar gegn Seðlabank
anum sem á að greiða Þorsteini Má
tæpar 2,7 milljónir króna í skaða
bætur, auk málskostnaðar. Bankinn
var sýknaður af 115 milljóna króna
skaðabótakröfu Samherja.
Stjórnvaldssekt sem Seðlabank
inn lagði á Samherja og Þorstein Má
hafði verið felld niður með hæsta
réttardómi. n
Þorsteini Má
dæmdar bætur
Þorsteinn Már Baldvinsson.
6 Fréttir 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ