Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 10
Formaður heimastjórnar
Djúpavogs telur brýnt að
leysa úr húsnæðiskapli í
bænum. Meðal annars að
koma fyrir listasafni sem
ósætti hefur ríkt um. Í fyrra
var stór gjafagjörningur
dreginn til baka.
kristinnhaukur@frettabladid.is
AUSTURLAND Heimastjórn Djúpa-
vogs telur brýnt að leysa úr hús-
næðismálum ýmissa stofnana í
bænum, þar á meðal listasafnsins
Ríkarðshúss sem nefnt er eftir
myndskeranum Ríkarði Jónssyni.
Enn er hins vegar óútkljáð deila
við aðra dóttur Ríkarðs, Ásdísi, sem
dró stóra gjöf til safnsins til baka
fyrir um ári síðan.
Forsagan er sú að Ásdís og tví-
burasystir hennar Ólöf, sem er nú
látin, vildu gefa eigur sínar til að
koma safni föður síns á laggirnar og
í samkomulagi við Djúpavogshrepp
átti að reisa það á grunni byggingar-
innar Vogalands 5.
Í gjöfinni fólst meðal annars ein-
býlishús í Reykjavík, jörð í Mos-
fellsbæ, sumarhús í Hveragerði, stór
f lygill og málverk eftir Jóhannes
Kjarval, Finn Jónsson og fleiri stór-
málara. Lauslega reiknað verðmæti
gjafarinnar var um 200 milljónir
króna árið 2012. Átti að sníða bygg-
ingu safnsins að þessari gjöf eftir lát
systranna.
Vogaland 5 er hins vegar núna
komið í eigu listasafnsins Ars Longa
og sveitarstjórn hafði hugmyndir um
að koma Ríkarðshúsi fyrir í svoköll-
uðu Faktorshúsi, sem Ásdísi hugnað-
ist ekki. Var gjöfin því dregin til baka.
Nú vill heimastjórnin koma
Ríkarðshúsi fyrir í húsi er kallast
Sambúð. Helgi Hlynur Ásgrímsson,
formaður heimastjórnarinnar, segir
húsið stórt og hrátt og að gera þurfi
mikið fyrir það til að hýsa listasafn.
En í dag hýsir það björgunarsveitina
og Rauða krossinn og í öðrum end-
anum er skrifstofuálma.
„Þetta er húsnæði sem systr-
unum hugnaðist. Það er mjög vel
staðsett í bænum,“ segir Helgi.
Meðal annars hafi það ýtsýni yfir
Búlandstindinn, sem þeim hafi
þótt mikilvægt við val á stað-
setningu. Hann segir þó að ekki sé
búið að hætta við að draga gjafa-
gjörninginn til baka.
Fleiri hús eru í „húsakapli“ sem
heimastjórnin telur brýnt að leysa.
Vill hún byggja nýja björgunarmið-
stöð fyrir alla viðbragðsaðila og
áhaldahús, selja slökkvistöðina,
breyta gömlu kirkjunni í sýningar-
rými eða fundaaðstöðu og leigja
Faktorshúsið undir skrifstofur.
„Um leið og það verður tekin
ákvörðun um eitt þá útilokar það
annað,“ segir Helgi um þessar áætl-
anir. n
Ekki er hægt að spá
fyrir um upphæðir
bótanna á þessari
stundu.
Þetta er húsnæði sem
systrunum hugnaðist.
Það er mjög vel stað-
sett í bænum.
Helgi Hlynur
Ásgrímsson,
formaður
heimastjórnar
Djúpavogs
Ársfundur Votlendissjóðs 2022
verður haldinn þriðjudaginn
15. mars kl. 17:00 í Hvammi
á Grand Hótel Reykjavík
Dagskrá Ársfundar er samkvæmt
skipulagsskrá Votlendissjóðs.
Endurheimt votlendis stöðvar losun CO2
og eflir um leið náttúrulegan
fjölbreytileika.
Nánar á www.votlendi.is
Staður fundinn fyrir Ríkarðshús en
enn ósamið við dóttur listamannsins
Djúpivogur með Búlandstind í baksýn, en dætur Ríkarðs vildu að hann sæist frá safninu. MYND/AÐSEND
Ríkarður á vinnustofu sinni við
Grundarstíg árið 1963.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
bth@frettabladid.is
NÁTTÚRUHAMFARIR Minnisblað var
lagt fram á fundi ríkisstjórnarinnar
í gær vegna bóta til þeirra íbúa í
Útkinn í Þingeyjarsýslu sem urðu
fyrir skaða í miklum aurskriðum í
október síðastliðnum. Samkvæmt
upplýsingum frá forsætisráðuneyt-
inu var lagt fram yfirlit um aðgerðir
og horft til næstu skrefa.
Ljóst er að íbúarnir munu fá
bætur vegna skaðans. Koma alls
fimm ráðuneyti að málinu og fjöldi
undirstofnana. Gögnum verður
safnað í samráði við sveitarfélagið
Þingeyjarsveit og f leiri aðila. Að
þeirri vinnu lokinni verður gerð til-
laga um fjárhagslegan stuðning.
Horft verður til fyrri fordæma
þegar tekin verður ákvörðun um
upphæð greiðslnanna. Ekki er hægt
að spá fyrir um upphæðir bótanna
á þessari stundu samkvæmt upp-
lýsingum frá ráðuneytinu.
Strax eftir skriðurnar var brugðist
við náttúruhamförunum með við-
gerðum á vegum. Þá hefur Veður-
stofan unnið greinargerð vegna
málsins og Bjargráðasjóður og
almannavarnir haft aðkomu að
málinu svo nokkuð sé nefnt. n
Kinnungum bætt
tjón vegna skriða
Gríðarleg spjöll urðu þegar aurskrið-
ur féllu í Útkinn síðastliðið haust.
10 Fréttir 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ