Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 18
18 Íþróttir 12. mars 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR
Búið er að frysta eignir
Romans Abramovítsj á Eng
landi vegna tengsla hans við
Vladímír Pútín. Abramovítsj
gerði Chelsea að einu sigur
sælasta liði Evrópu frá því
hann eignaðist það 2003 og
vann félagið allt sem hægt er
að vinna. Nú er staðan önnur
og ljóst að margir lykilmenn
munu yfirgefa Stamford
Bridge nú þegar félagið getur
ekki lengur keppt við þá bestu.
benediktboas@frettabladid.is
Enn er mögulegt að Chelsea verði
selt en verðmiðinn er um þrír
milljarðar punda, sem eru ofboðs
lega margar íslenskar nýkrónur.
Salan verður þó að uppfylla skilyrði
bresku ríkisstjórnarinnar um að
Abramovítsj hagnist ekki á sölunni.
Vegna frystingarinnar má Chel
sea ekki fá nýjar tekjur inn í félagið.
Það þýðir að félagið lokaði minja
gripabúðinni sinni, engir aðrir en
ársmiðahafar mega mæta á leikinn
gegn Newcastle og ekki stuðnings
menn útiliðsins, nema þeir hafi
keypt miða fyrir 10. mars. Þá má
ekki endursemja við leikmenn og
munu því Antonio Rudiger, Cesar
Azpilicueta og Andreas Christen
sen, sem allir eru að verða samn
ingslausir í sumar, yfirgefa félag
ið. Þá verður Saul ekki keyptur frá
Atletico Madrid. Reyndar voru ekki
miklar líkur á því hvort sem er.
Til að koma sér í útileiki má félag
ið ekki eyða meira en 20 þúsund
pundum, sem er um 3,5 milljónir
króna. Að meðaltali eru lið að eyða
um 30 þúsund pundum í útileiki í
ensku úrvalsdeildinni, samkvæmt
Players Care samtökunum. Fer það
í f lug, hótel, öryggisgæslu og annað
tilfallandi. Eru þessi pund þó var
lega áætluð. Má gera ráð fyrir að
Chelsea sé að eyða mun meiru.
Ekki er loku fyrir það skotið að
leikmenn, sem sumir hverjir þéna
milljónir í dag, geti borgað það sem
upp á vantar. Þá má félagið eyða 500
þúsundum á leikdag en venjulega
kosta heimaleikir milljónir.
Margir spyrja sig, fyrst Chelsea
er tekið fyrir, af hverju Manchester
City eða Newcastle sé ekki tekið
af sínum eigendum. Abramovítsj
er jú vinur Pútíns en eigandi City,
sjeikinn Mansour, var beinn þátt
takandi í stríðinu í Jemen þar
sem fjölmargir saklausir borg
arar hafa látið lífið síðan 2015.
Þá eru eigendur Newcastle ekki
barnanna bestir þegar kemur að rétt
indum, hvaða nafni sem þau nefnast.
Sá sigursælasti
Síðan Abramovítsj kom með sína
peninga inn í Chelsea hefur ekkert
annað félag á Englandi verið jafn
sigursælt. Liðið hefur unnið 19 bik
ara, en 21 ef samfélagsskjöldurinn
er tekinn með. Á meðan hefur Man
chester United unnið 14 bikara og
grannar þeirra í City 13. n
Frystur og farinn
15
stjórar hafa stýrt Chelsea.
5
Englandsmeistaratitlar.
2
Meistaradeildartitlar.
7
sinnum voru leikmenn
keyptir fyrir yfir 50 millj-
ónir punda.
1,5
milljarða punda lánaði
Roman félaginu. Hann
vill ekki endurgreiðslu.
98
milljónir punda kostaði
sá dýrasti, Romelu
Lukaku.
1.449
stig fékk Chelsea undir
stjórn Abramovítsj.
2,1
milljarði punda eyddi
Chelsea í leikmenn undir
stjórn Abramovítsj.
1,16
milljarða punda hafa
leikmenn verið seldir
fyrir síðan 2003.
3
milljarðar punda er talið
vera söluverð Chelsea.
140
milljónir punda kostaði
Chelsea árið 2003.
48
ár hafði Chelsea beðið
eftir Englandsmeistara-
titlinum þegar Abramo-
vítsj keypti félagið.
60,7%
er sigurhlutfallið í öllum
keppnum hjá Chelsea
síðan 2003.
709
deildarleiki spilaði Chel
sea undir Abramovítsj.
Liðið vann 432 sinnum,
gerði 153 jafn tefli og tap
aði aðeins í 124 skipti.
21
titil vann félagið frá
kaupunum. Sá síðasti,
HM félagsliða, var eini
bikarinn sem vantaði í
bikaraskápinn.