Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 20
Bjarney Sigríður Sigurjóns-
dóttir fékk trönur og pensla
í sextugsafmælisgjöf og eftir
krabbameinsmeðferð fór hún
að einbeita sér að sköpuninni.
Í gær opnaði hún svo sína
fyrstu myndlistarsýningu
sem stendur út þriðjudag.
bjork@frettabladid.is
Bjarney, sem oftast er köll-
uð Eyja, opnaði í gær sína
fyrstu myndlistarsýn-
ingu í sal Kirsuberjatrés-
ins við Vesturgötu sem
hún segir henta vel fyrir tilefnið
enda hæfilega lítill og heimilislegur
í fallegu húsnæði verslunarinnar.
Það var eiginmaður Bjarneyjar,
Filippus Árnason, sem gaf henni í
sextugsafmælisgjöf trönur, ramma,
akrílliti og pensla, sem hvatningu
til að láta gamlan draum rætast.
„Ég hafði málað af og til frá því
ég var krakki og haft gaman af því
að teikna og sótt ýmis styttri nám-
skeið. Þetta hefur alltaf blundað í
mér en átti alltaf að bíða þar til ég
hætti að vinna og hefði nægan tíma
fyrir þetta,“ segir hún.
Örlögin réðu því þó að Eyja hætti
fyrr í starfi sínu hjá Ferðafélaginu
Útivist en hún hafði ráðgert og þá
kom afmælisgjöfin góða sannar-
lega að góðum notum.
„Ég veiktist af krabbameini árið
2018 og eftir meðferðina byrjaði
ég á fullu að mála,“ segir Eyja sem
ákvað að prófa sig áfram og segir
internetið hafa hjálpað mikið.
„Þangað fer ég þegar mig vantar
svör varðandi blöndun lita og annað
slíkt. Svo bara æfir maður sig.“
Kom sér vel í bataferlinu
Eyja segir tímann við trönurnar
gæðastundir sem gefi henni mikið.
„Í bataferlinu eftir krabbameins-
meðferðina kom það sér vel að vera
með allar græjur tilbúnar heima
og geta byrjað að mála, á milli þess
sem ég fór út að ganga og í Ljósið til
að byggja mig upp. Það gefur mér
mikinn frið að mála um leið og ég
hlusta á tónlist eða talað mál. Það
eru yfirleitt liðnir tveir, þrír tímar
áður en ég veit af.“
Eyja segir daglega göngutúra aldr-
ei bregðast og það í öllum veðrum,
þetta snúist um að eiga réttu græj-
urnar. „Regngalla, húfur, vettlinga
og brodda sem reyndar hafa spænst
hratt upp undanfarið,“ segir hún í
léttum tón.
Innblásturinn í verkin sækir
Eyja meðal annars í náttúruna á
göngum en einnig er hún dugleg að
sækja myndlistarsýningar og skoða
hvað er um að vera á netinu. „Ég er
svo alltaf að prufa eitthvað nýtt.
Mér finnst skemmtilegt að mála
abstrakt, blanda saman, búa til liti
og dreifa þeim og sjá hvernig það
kemur út og finna svo framhaldið
út frá því.“
Eyja mælir sannarlega með því
að láta gamla drauma rætast og
bendir á mikilvægi þess að láta
verða af því á meðan heilsan enn
leyfi.
„Það má svo alltaf bæta við
draumum. Þetta snýst um að gera
þetta á meðan maður hefur heilsu
til. Alls ekki bíða,“ segir hún í lokin.
Sýningin er opin í Kirsuberja-
trénu í dag laugardag, mánudag og
þriðjudag en skoða má verk Eyju á
vefsíðunni eyjas.com. n
Það má alltaf bæta
við sig draumum
Eyja segir mikilvægt að bíða ekki með að láta drauma sína rætast. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Innblásturinn sækir Eyja í göngu-
ferðum, á sýningum og netinu.
Eyja segist hafa gaman af því að
mála abstrakt og sjá hvað kemur út.
n Í vikulokin
Við mælum með
Það er ekki
lengur nátt-
úrulegt
fyrir Gunn-
ari að setja
sjálfan sig í
fyrsta sæti
– allt í einu
eru aðrir á
undan í
forgangs-
röðinni.
BJORK@FRETTABLADID.IS
Á einungis
nokkrum
áratugum
hefur lær-
dómur
sögunnar
gleymst.
Ólafur
Arnarson
Tilgangurinn með stofnun Kola- og
stálbandalagsins, undanfara ESB,
fyrir 70 árum, var að gera aðildar-
ríki þess háð viðskiptum sín á milli
og hindra stríðsrekstur í álfunni.
Öldum saman geisuðu stríð í Evr-
ópu. Eftir tvær hryllilegar heims-
styrjaldir á fyrri hluta síðustu aldar
bundust iðnríki álfunnar samtök-
um um að tryggja frið til framtíðar.
Kola- og stálbandalagið er í dag
bandalag næstum 30 lýðræðis-
ríkja. Vegna ESB og NATO hefur
ríkt friður milli aðildarríkja þessara
bandalaga frá lokum seinni heims-
styrjaldarinnar.
NATO og ESB hafa staðið sig með
prýði. Friðurinn sem við Evrópu-
búar lítum á sem sjálfsagðan hlut
er í sögulegu ljósi frávik.
Þjóðer nishrey f ing um hef ur
vaxið fiskur um hrygg og sprottið
hafa upp óprúttnir popúlistar sem
láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Á
einungis nokkrum áratugum hefur
lærdómur sögunnar gleymst.
Lævísir lýðskrumarar hafa málað
ESB sem rót alls ills. Í Bretlandi
blekktu stjórnmálamenn lítilla
sanda og lítilla sæva kjósendur með
innistæðulausum loforðum um gull
og græna skóga utan ESB.
BREXIT og uppgangur þjóðernis-
afla í Evrópu hefur veikt samstarf
lýðræðisþjóða í álfunni.
Trúverðugleiki Bandaríkjanna
sem forystuaf ls lýðræðisríkja í
heiminum hefur beðið hnekki eftir
forsetatíð manns, sem leitar fyrir-
mynda og bandamanna meðal ill-
ræmdustu einræðisherra veraldar.
Pútín hefur greinilega talið
Innrás Rússa minnir okkur á lærdóm sögunnar
kjöraðstæður vera til að ráðast á og
innlima nágrannaríkið Úkraínu nú
þegar lýðræðisríkin í ESB og NATO
virtust sundruð og veik.
Grimmdarleg og glæpsamleg inn-
rás Rússa hefur óvænt leitt til þess
sem virtist ómögulegt. Vestrænar
lýðræðisþjóðir sýna órofa samstöðu
sem aldrei fyrr.
Friður er hins vegar ekki sjálf-
sagður. Lýðræðisþjóðir verða að
standa saman um varðveislu hans.
Það gerum við best í friðarbanda-
lögum á borð við NATO og ESB. n
Einn allra harðasti karlmaður lands-
ins, bardagakappinn Gunnar Nelson,
prýðir forsíðu þessa tölublaðs. Gunn-
ar er grjótharður, vöðvastæltur og
óhræddur – tilbúinn í einn mikilvæg-
asta bardaga ferils síns um næstu helgi.
En undir hörðu yfirborðinu er hann dún-
mjúkur, ekki síst þegar talið berst að börnum
hans tveimur. Það er ekki lengur náttúrulegt
fyrir Gunnari að setja sjálfan sig í fyrsta sæti –
allt í einu eru aðrir á undan í forgangsröðinni.
Hann viðurkennir að fyrir atvinnumann sé
ákjósanlegast að vera fremstur í forgangi en
hann myndi engu vilja breyta. „Maður elskar
börnin sín meira en allt í lífinu. Hugur manns
breytist, þú og það sem þú ert að gera er ekki
lengur í fyrsta sæti.“
Líf atvinnumanns í íþróttum er óvenjulegt
að því leyti að hann hefur í raun starfa af því
að hugsa vel um sjálfan sig, það er ekki lúxus.
Það hefur Gunnar gert á löngum og farsælum
ferli og er nú í þrusuformi og laus við langvinn
meiðsl.
Undir lok viðtalsins lofar Gunnar því að hann
sé eins góður og hann hefur nokkurn tíma
verið. Ég ætla að veðja á að hann sé betri. n
Harður en mjúkur
Að styrkja fólkið í Úkraínu
Við getum auðveldlega lagt okkar af
mörkum til hjálparstarfs í Úkraínu.
Á vefsíðu Rauða krossins, raudi-
krossinn.is, er einfalt að velja upp-
hæð frá 2.500 krónum og upp í
50.000. Það tekur innan við mínútu
að ganga frá greiðslu sem rennur
beint í neyðaraðstoð á svæðinu.
Hjálpræðisherinn er svo með söfn-
un fyrir Úkraínu á sérreikningi þar
sem leggja má inn upphæð að vali
hvers og eins: 0513-14-000022,
kennitala: 620169-1539.
Höfuðstöðinni
Í gömlu kartöflugeymslunum við
Ártúnsbrekku hefur risið gullfal-
legt lista- og menningarhús. Í höf-
uðstöðinni má líta magnaða inn-
setningu Hrafnhildar Arnardóttur,
Chromo Sapiens, sem vakið hefur
verðskuldaða athygli. Í verkinu eru
gestir leiddir í gegnum þrjú rými af
marglituðu gervihári með hljóð-
mynd hljómsveitarinnar HAM.
HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR