Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 24
tíma mínum betur sjálfur sam-
anborið við íþróttamenn í hópí-
þróttum.“
Tækifæri til að sanna sig á ný
Í janúar skrifaði Gunnar undir
nýjan fimm bardaga samning við
UFC. Fyrsti bardaginn fer fram
laugardaginn 19. mars næstkom-
andi þar sem Gunnar mætir Japan-
anum Takashi Sato í O2-höllinni í
Lundúnum.
Gunnar hefur tapað síðustu
tveimur bardögum sínum og þurft
að bíða í langan tíma eftir endur-
komu í búrið til þess að sanna sig
á ný. Hann er spenntur fyrir fram-
haldinu.
„Það hefur liðið langur tími
síðan ég steig síðast inn í búrið og á
þessum tíma hafa komið upp tæki-
færi sem hafa svo runnið mér úr
greipum. Fyrir síðustu bardaga hef
ég verið að glíma við smá meiðsli en
núna er ég alveg hundrað prósent
og er mjög spenntur fyrir því að fá
tækifæri til þess að sanna mig á ný.“
Gunnar hefur ekki haft það að
venju að setja sér markmið til lengri
tíma.
„Ég er ekki mikið í því að horfa
langt fram í tímann, einbeiti mér
frekar að því sem fram undan er í
nánustu framtíð. Það er alltaf bara
næsti bardagi og núna er ég rúm-
lega tilbúinn fyrir hann.“
Undirbýr sig fyrir orrustu
Það kom upp kunnugleg atburðarás
í aðdraganda komandi bardaga, en
Gunnar átti fyrst að mæta Brasilíu-
manninum Claudio Silva og hafði
búið sig undir það, en Silva þurfti í
síðustu viku að draga sig út úr bar-
daganum vegna meiðsla. Slík staða
hefur oft komið upp á ferli Gunnars
og hann kippir sér ekkert sérstak-
lega upp við slíkar breytingar.
,,Ég er ekki þekktur fyrir það
að setja öll eggin í sömu körfuna
og þekki vel þessar aðstæður sem
hafa komið upp núna. Auðvitað
reynir maður að læra inn á and-
stæðinginn og sjá fyrir sér hvernig
bardaginn geti mögulega spilast, en
ég hef einnig lært það af reynslunni
að það þýðir ekki fyrir mig að æfa
einhverja fyrirframákveðna taktík
fyrir bardagann fram undan með
andstæðinginn í huga,“ segir hann.
„Maður þarf bara að undirbúa
sjálfan sig fyrir orrustu. Vissulega
tekur maður tillit til styrkleika and-
stæðingsins og stúderar hann en
reynsla mín sýnir að það er betra
að vera við öllu búinn. Þetta hefur
komið það oft fyrir að ég læt þetta
ekkert á mig fá.“
Mætir sem hann sjálfur
Gunnar hefur einnig staðið í sömu
sporum og andstæðingur hans,
Takashi Sato, sem tók bardaga við
Gunnar með stuttum fyrirvara.
„Stundum barðist ég við and-
stæðing sem ég hafði aldrei séð
áður og vissi lítið sem ekkert um.
Mér finnst þetta allt í lagi en ég skil
líka bardagamenn sem kjósa að
gera þetta ekki því að það er mikið
í húfi. Oft eru menn búnir að undir-
búa sig fyrir ákveðinn andstæðing
en síðan breytast aðstæður og þá
getur heilmikið breyst.
Fyrir síðasta bardaga hjá mér var
ég búinn að undirbúa mig fyrir að
mæta Thai-boxara, hann þurfti
síðan að draga sig út úr bardagan-
um og í staðinn fékk ég margfaldan
heimsmeistara í glímu. Ég stressa
mig hins vegar ekki á svona hlutum
heldur undirbý mig bara eftir bestu
getu og fer síðan og berst. Það er
mitt hugarfar í gegnum þetta ferli
sem og í lífinu almennt. Ég mæti
bara til leiks sem ég sjálfur og tel að
fólk kunni að meta það.“
Dvelur ekki í skýjaborgum
Gunnar segir það ekki vera sér efst
í huga núna að næla sér í meistara-
titla og belti en að sjálfsögðu er það
honum í blóð borið sem atvinnu-
manni í íþróttum að sækja ávallt
til sigurs.
,,Ég hef aldrei verið beint þann- Laugardaginn 19. mars fær Gunnar tækifæri til að sanna sig á ný eftir tvö töp í röð, langdregin meiðsli og fjarveru.
ig þenkjandi að hugsa þennan feril
minn í bardagaíþróttum eingöngu
út frá því að reyna að næla mér í
einhver belti. Belti sem er þarna
einhvers staðar skýjum ofar. Mín
markmið snúast um að vinna alla
bardaga sem ég fer í, það getur síðan
skilað sér í titilbardaga að lokum.
Ég er meira fyrir það að horfa til
þess sem er beint fyrir framan mig
frekar en að festast í einhverjum
draumórum.“
Gunnar kemur fyrir sjónir sem
mjög rólegur og yfirvegaður kar-
akter. Nálgun hans og yfirvegun
hefur vakið hylli hjá áhugamönn-
um um UFC en Gunnar er mjög
vinsæll bardagamaður og búast má
við því að hann verði á heimavelli
í O2-höllinni eins og venjan hefur
verið áður.
„Mér hefur alltaf fundist mjög
gaman að berjast í London, það er
alltaf þvílík stemning í höllunum
þar. Það á það til að vera hrottaandi
í Bretanum þannig að eftirvænting-
in er mikil.“
Gunnar hefur ekki tekið sömu
stefnu og margir bardagamenn sem
berjast við að koma sér í sviðsljósið,
rífa kjaft á samfélagsmiðlum og tala
illa um andstæðinginn. Gunnar
mætir til leiks.
„Þegar ég byrjaði að fylgjast með
MMA þá hafði ég gaman af mis-
munandi karakterum. Mér fannst
það gera íþróttina skemmtilegri.
Á þeim tíma var meira um það að
bardögum var stillt upp á milli bar-
dagakappa sem bjuggu yfir algjör-
lega gjörólíkum stíl bæði inni í
búrinu en líka fyrir utan það.
Ég hef ekkert sérstaklega gaman
af því þegar hlutirnir hjá bardaga-
köppum fara að snúast um það að
slá í gegn á samfélagsmiðlum eða
selja sem f lesta aðganga að bar-
dagakvöldum. Það verður þreytt
oft á tíðum. Ég mæti bara til leiks
sem ég sjálfur og tel að fólk kunni
að meta það þegar maður er ekki að
reyna þykjast vera einhver annar en
maður er.“
Er stressaður fyrir bardaga
En hvernig er Gunnar stemmdur
fyrir bardaga? Verður hann stress-
aður eða jafnvel hræddur fyrir
komandi átök?
„Þetta er rosalega erfið spurning.
Stundum fæ ég þessa spurningu frá
ungu fólki sem er að byrja sinn feril
í MMA, hvort ég sé ekki stressaður
fyrir bardaga hjá mér. Auðveldasta
svarið er jú, ég verð stressaður fyrir
bardaga. Það verða allir stressaðir
fyrir bardaga en það er bara eðlileg
tilfinning og eitthvað sem maður á
bara að fagna og taka á móti.
Ef maður f innur ekki f y rir
neinum taugum fyrir bardaga þá
er kannski bara kominn tími til að
snúa sér að einhverju öðru og hætta
þessu. Maður á ekki að reyna að
útiloka og útrýma þessum tilfinn-
ingum heldur sætta sig við þær, taka
þær á kassann og gera sitt eins vel
og maður getur.“
Hann segist sjálfur hafa átt bar-
daga þar sem honum leið ekki vel,
fann að hann væri ekki að eiga sinn
besta dag en að lokum hafi hann
staðið sig vel. Að sama skapi hafi
honum liðið mjög vel í aðdraganda
bardaga en síðan ekki verið ánægð-
ur með frammistöðu sína.
„Lykilatriðið er að dvelja ekkert
við þessa hluti, maður má ekki leyfa
þeim að taka sér bólfestu í hug-
anum og hafa áhrif á mann. Maður
er bara kominn hingað, er svona og
sættir sig bara við það. Lífið er bara
eins og það er og maður gerir bara
eins vel og maður mögulega getur.“
Laugardaginn 19. mars næst-
komandi mun nýr kafli hjá Gunn-
ari Nelson hefjast í UFC. Eftir tvö
töp í röð, langdregin meiðsli og
tíma frá búrinu fær hann tækifæri
til þess að sanna sig á ný. Spurður að
því hverju við mættum búast við af
honum hafði Gunnar eftirfarandi
að segja: „Þið megið búast við bestu
útgáfunni af Gunnari Nelson. Ég er
eins góður og ég hef nokkurn tím-
ann verið.“ n
Ef maður finnur ekki
fyrir neinum taugum
fyrir bardaga þá er
kannski bara kominn
tími til að snúa sér að
einhverju öðru og
hætta þessu.
24 Helgin 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ