Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 26
arið 2021 með Fjallafélaginu til
Frakklands að ganga Mount Blanc-
hringinn. Þar var verið að ræða um
væntanlega ferð til Kilimanjaro og
við ákváðum þá að ef þessi ferð yrði
auglýst þá myndum við fara,“ segir
Erna.
Ferðin var svo auglýst haustið
2021 og fengu þær stöllur tvö síð-
ustu plássin. Stóra stundin rann
upp laugardaginn 5. febrúar þar
sem þeirra beið langt ferðalag til
Tansaníu.
„Við byrjuðum svo að ganga upp
mánudaginn 7. febrúar og gengum
Machame-leiðina sem tekur alls sjö
daga. Við vorum sex daga að toppa
Kilimanjaro og svo var tekinn einn
dagur til að komast niður.“
Undirbúningur drjúgur
Fararstjórar voru þau Haraldur Örn
Ólafsson og Kolbrún Björnsdóttir
og segja þær að þau hafi undirbúið
ferðalanga vel.
„Það var mjög dýrmætt þar sem
þurfti að huga að mjög mörgu, eins
og til dæmis bólusetningum, far-
angri og fleiru,“ segir Svava.
Aðspurðar eru þær sammála
um að fjölbreytileiki landslagsins
á gönguleiðinni hafi komið þeim
á óvart. „Fjallið spannar fjögur
veður- og gróðurbelti, sem gerði
ferðina svo ævintýralega fallega.
Einstakur hópur heimamanna bar
fyrir okkur tjöldin, allan búnað, kló-
sett- og matartjöld. Það var erfitt að
venjast því að horfa á þá burðast
upp með um og yfir 20 kíló á bak-
inu,“ segir Erna og bætir við að þær
hafi verið fljótar að aðlagast því að
komast ekki í sturtu, koma sér fyrir
í tjaldbúðum í alls kyns veðrum og
vindum og sofa í tjöldum í skíta-
kulda.
Hópurinn góður stuðningur
Þær segja hópinn sem fór saman
hafa orðið mjög náinn enda bæði að
vinna að sameiginlegu markmiði og
fara út fyrir þægindarammann.
„Ef einhver átti erfiðan dag var
alltaf pláss fyrir það og við vorum
dugleg að styðja hvert annað. Það
var mikill húmor í hópnum sem
gerði ferðina svo miklu skemmti-
legri.“
Þær eru sammála um að hæðar-
aðlögunin hafi verið það erfiðasta
við ferðina.
„Allt verður svo miklu erfiðara.
Við vinkonurnar tókum hæðinni
misvel. Ég fékk dass af höfuðverk
af og til en Erna fann lítið sem ekk-
ert,“ segir Svava og heldur áfram:
„Síðustu tveir dagarnir voru lang-
erfiðastir. Fyrir toppdaginn gengum
við upp í hæstu búðir sem heita
Barafu Camp og eru í 4.680 metrum.
Þar hvíldum við okkur í nokkrar
klukkustundir þar til við hófum
toppagönguna um miðnætti. Þetta
voru erfiðustu átta klukkustundir
sem við höfum farið í gegnum,“
segir hún, en bætir við að Haraldur
Örn hafi látið þau læra Wim Hof-
öndun og hún hafi hjálpað mikið
síðasta spölinn.
„Þessar öndunaræfingar lét hann
okkur gera alla dagana, áður en við
héldum af stað, í öllum pásum og
alls staðar.“
Ómæld gleði
Þær segja ferðalagið hafa gefið þeim
ótrúlega mikið.
„Þessi ómælda gleði við að fara í
gegnum svona ævintýri er tilfinning
sem endist út ævina,“ segir Erna og
bætir við: „Það að ferðast alla leið til
Afríku til að klífa fjall saman, fara
út fyrir þægindarammann og þurfa
að aðlagast því að búa á fjalli í viku
þar sem öll þægindi sem við eigum
að venjast eru ekki til staðar, getur
ekki annað en breytt manni. Maður
öðlast nýtt þakklæti fyrir svo margt
sem manni finnst sjálfsagt.“
Svava bætir við: „Maður kemur
líka til baka með litla sigra sem gefa
manni traust og trú á allt annað sem
maður er að fást við í lífinu.“
Ótrúlega mikil upplifun
Haraldur Örn hefur gengið fimm
sinnum á Kilimanjaro og segir það
eina skemmtilegustu leið sem hann
hefur gengið.
„Þetta er ótrúlega mikil upplifun,“
segir Haraldur og hlær að því hversu
f ljótt fólk gleymi erfiðinu síðasta
daginn sem fyrir marga er stærsta
áskorun lífsins.
„Nokkrum dögum síðar segir
sama fólkið: Jah, þetta var ekkert
svo erfitt.“
Haraldur toppaði Kilimanjaro
fyrst árið 2001 sem hluta af áskorun
sinni um að ganga á hæstu tinda
allra heimsálfa.
Fjallið
spannar
fjögur
veður- og
gróður-
belti, sem
gerði
ferðina
svo ævin-
týralega
fallega.
Svava og Erna
Kilimanjaro í Tansaníu er
vinsæl áskorun hjá göngu-
fólki. Fjölmargir Íslendingar
hafa lagt leið sína upp fjallið
og enn fleiri ætla sér nú í
haust og á næsta ári upp þessa
5.895 metra.
Kilimanjaro er óvirkt eld-
fjall, það hæsta í Afríku,
með þremur eldgígum:
Mawenzi, Shira og
Kibo, þeim eina sem
enn er virkur. Fjallið er hluti af
Kilimanjaro-þjóðgarðinum og vin-
sæl gönguleið fjallagarpa.
Í kringum 35 þúsund manns
reyna við topp fjallsins ár hvert
og ná að meðaltali um tveir þriðju
þeirra upp á toppinn. Fleiri göngu-
leiðir eru í boði og áætlað að um 50
þúsund manns alls gangi á fjallið ár
hvert. Af þessum mikla fjölda eru að
meðaltali tíu dauðsföll ár hvert, sem
telst ekki há tala miðað við fjölda.
Háfjallaveikin stærsta áskorunin
Gangan á toppinn tekur fimm til
níu daga samtals og f lesta daga er
gangan þægileg. Stóra áskorunin
í ferð á topp Kilimanjaro er hæðin
og háfjallaveikin sem fylgt getur
henni. Áskorunin snýst því helst um
að fara hægt yfir. Nóttin sem gengið
er síðasta spölinn að toppnum er
erfiðust, enda eins og frægt er kalt á
toppnum, mestar líkur á vindi auk
þess sem súrefnisupptaka er ekki
nema um 49 prósent.
Mælt er með því að ganga á fjallið
í janúar-febrúar eða ágúst-septem-
ber enda mestar líkur á hlýindum og
heiðum himni á þeim tíma. Því fylgja
eðli málsins samkvæmt jafnframt
flestir ferðamenn og ef fólk vill forð-
ast margmenni á göngunni þá kemur
mars eða október einnig til greina,
rétt fyrir rigningatímabilin tvö.
Tilfinning sem endist út ævina
Vinkonurnar Svava Guðmunds-
dóttir og Erna Björg Sigurðardóttir
gengu á Kilimanjaro í síðasta mán-
uði og segja upplifunina hafa verið
ógleymanlega.
„Við höfum báðar mikinn áhuga á
alls konar útivist og höfum undan-
farin ár gengið á fjöll með Fjalla-
félaginu,“ segir Svava, en báðar lang-
aði að reyna við frekari áskoranir í
fjallamennsku og fóru þær að skoða
ferðir erlendis.
„Hugmyndin um að fara á Kili-
manjaro kviknaði þegar við fórum
með eiginmönnum okkar sum-
Hópurinn á toppi Kilimanjaro í síðasta mánuði en Haraldur er hér í rauðu
hægra megin og Kolbrún Björnsdóttir, hinn leiðangursstjórinn, fremst fyrir
miðju. Erna heldur svo utan um Svövu vinkonu sína vinstra megin.
Hæsti tindur
Afríku heillar
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, er 5.895 metra hátt. Fjallið sem stendur eitt og er mikilfenglegt að sjá hefur heillað marga fjallagarpa enda gönguleiðin fjölbreytt og spennandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
26 Helgin 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ