Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 31
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 12. mars 2022
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir hefur verið hrjáð af slæmum verkjum í ökkla í langan tíma, en FIT-verkjaplástrarnir hafa hjálpað henni að takast á við verkina og
gert henni kleift að hreyfa sig miklu meira en hún hefði annars getað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
Kemst mun
lengra með FIT
verkjaplástrum
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir nýtur
útivistar en hefur alla tíð verið
með slæman verk í ökkla sem
ekkert virkar á. FIT-verkjaplástr-
arnir hafa minnkað verkina og
gert henni kleift að stunda hreyf-
ingu af meiri krafti en áður. 2
Snorri Ásmundsson opnar sýn-
inguna GAMAN, í Portfolio gallerí,
Hverfisgötu 71, í dag. MYND/AÐSEND
jme@frettabladid.is
Snorri Ásmundsson opnar sýning-
una GAMAN í Portfolio gallerí á
laugardaginn 12. mars, opnunin
stendur frá 16-18. Sýningin stendur
í 2 vikur og lýkur 26. mars.
Snorri (f. 1966) hefur verið starf-
andi sem myndlistarmaður í tæp
þrjátíu ár og á þeim tíma truflað
samfélagið í nokkur ár með viða-
miklum og merkilegum sýningum
þar sem hann vinnur með félags-
leg bannorð eins og stjórnmál
og trúarbrögð. Hann nýtir ólíka
miðla eins og málverk og teikn-
ingu, skúlptúr, innsetningar og
kvikmyndalist, til að gagnrýna
samfélagslegt ástand og koma hug-
myndum sínum á framfæri. Meðal
annars hefur hann staðið fyrir
ýmsum samfélagsgjörningum sem
hafa gjarnan vakið mikla athygli.
Þar má nefna framboð til borgar-
stjóra og forseta. Einnig hefur
Snorri boðið landslýð aflátsbréf til
sölu gegn fyrirgefningu syndanna.
Viðbrögð fólksins
Hann kannar viðbrögð fólks ef
viðteknum gildum er snúið á hvolf.
Til dæmis þegar vanmáttugur
einstaklingur tekur í sínar hendur
vald, sem venjulega er úthlutað
með fyrir fram ákveðnum reglum.
Hvernig sem fólk bregst við
þessum sýningum listamannsins
er hann fyrst og fremst að ögra
félagsfræðilegum og trúarlegum
gildum. Hann leitar eftir skörpum
viðbrögðum og skoðar takmörk
samferðamanna sinna jafnt sem
sín eigin. n
Gaman á hvolfi