Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 32
Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir er
nýorðin fertug og hefur unnið í
ferðabransanum í 17 ár, en er núna
að klára fæðingarorlof. Hennar
helstu áhugamál eru ferðalög og
útivist og hún lifir mjög virkum
lífsstíl, en hún hefur verið hrjáð
af verkjum í ökkla í langan tíma,
sem leiða stundum upp í hné.
FIT-verkjaplástrarnir hafa hjálpað
henni að takast á við verkina og
gera henni kleift að gera miklu
meira en hún annars hefði getað.
„Það er brjálað að gera þessa
dagana, því ásamt því að vera
nýbúin að eignast mitt annað barn
er ég líka að fara í gang með nýtt
fyrirtæki. Í fæðingarorlofinu ákvað
ég að segja upp í vinnunni og taka
áhættu með því að stofna mína
eigin ferðaskrifstofu, sem heitir
Tango Travel,“ segir Ingibjörg, sem
býr með manninum sínum og
börnum í Kópavogi.
Ekkert virkaði á verkina
„Mín áhugamál snúast um það
sem ég geri í vinnunni, fjöl-
skylduna, vini, ferðalög, ferða-
þjónustu, útivist, fjallgöngur og
annað slíkt, en ég hef verið með
mjög leiðinlegt vandamál í vinstri
ökkla sem veldur miklum bólgum
og kvölum,“ segir Ingibjörg. „Það er
ekki vitað hvað kom fyrir en þetta
hefur hrjáð mig alla tíð og ég verið
misgóð.
Ég er búin að prófa ýmislegt því
ég hef alltaf fundið til í göngum
og verkurinn hefur leitt upp í hné
þegar ég hef gengið nærri mér. Í
gegnum tíðina hef ég af og til verið
hjá sjúkraþjálfara en verkurinn
ekkert breyst, en svo fyrir tilviljun
prófaði ég plástrana hjá vinkonu
minni,“ segir Ingibjörg. „Ég var
ekkert sérstaklega bjartsýn á að
einhverjir plástrar myndu gera
gagn en hugsaði með mér að ég
hefði engu að tapa, ég var hvort
sem er alltaf að drepast og ekkert
annað virkaði, svo ég ákvað að
prófa.“
Gerir vandamálið viðráðanlegt
„Þetta virkaði hjá mér og ég fann
í alvörunni mun. Ég nota nokkrar
týpur af plástrunum og set þá á
ökklana og stundum hnén. Ég
hef farið í 10 km hlaup og upp á
Hvannadalshnjúk og ég hefði ekki
getað það án þeirra,“ segir Ingi-
björg. „Plástrarnir duga í allt að
fimm daga og það má fara með þá
í sturtu en virknin er mest fyrstu
tvo til þrjá dagana. Mér hefur
reynst best að setja þá á kvöldið
áður en ég er að fara að gera eitt-
hvað sem reynir á. Ég finn mun
á því að nota þá og nota þá líka
stundum heima þó að ég sé ekki
að gera neitt, ef ég er verkjuð og
finnst það líka hjálpa til með það.
Það hefur komið sér vel í fæðingar-
orlofinu því ég hef oft verið slæm
þó að ég hafi bara verið heima.
Ég finn mun á meðan ég nota
plástrana og finn að þeir hætta að
virka þegar ég tek þá af. Þeir gera
mig ekki alveg verkjalausa, en
þetta dregur strax úr verkjunum
og gerir það í að minnsta kosti tvo
til þrjá daga, sem gerir mér kleift
að gera meira,“ segir Ingibjörg.
„Þetta gerir vandamálið miklu
viðráðanlegra og veitir tíma-
bundna lausn á meðan ég stunda
hreyfingu. Ég get hiklaust mælt
með plástrunum við aðra af því að
þeir virka fyrir mig.“
Nýsköpun í verkjastillingu
Verkir af hinum ýmsu gerðum
hafa fylgt mannskepnunni alla tíð.
Verkir hafa verið meðhöndlaðir
á ýmsa vegu með nuddi, nála-
stungum og lyfjum svo eitthvað sé
nefnt. Hin síðari ár hefur notkun
verkjalyfja aukist til muna, oft og
tíðum með slæmum afleiðingum á
önnur líffæri, til dæmis maga.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ingibjörg hefur farið í 10 km hlaup og upp á Hvannadalshnjúk eftir að hún byrjaði að nota plástrana og segir að hún hefði ekki getað gert það án þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
Ingibjörg notar nokkrar týpur af plástrunum og setur þá bæði á ökklana og hnén. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGURARI
FIT-verkjaplástrarnir fást í flestum
apótekum landsins.
OJK-ÍSAM er umboðsaðili FIT
verkjaplástra sem eru fáanlegir í
f lestum apótekum landsins.
FIT-plástrarnir eru ítölsk upp-
finning sem byggja á innrauðum
geislum líkamans sem eru nýttir
aftur inn í líkamann og örva þann-
ig háræðakerfið svo að blóðið
kemst betur til aumu staðanna
og úrgangsefni hreinsast hraðar í
burtu. Virkar því nokkuð svipað
og nudd. Hjálpar líkamanum að
hjálpa sér sjálfum.
Plástrarnir eru unnir úr viður-
kenndu ofnæmisfríu plastefni
og innihalda lífræn steinefni (til
dæmis títan) sem endurvarpa inn-
rauðum geislum líkamans aftur
inn í líkamann.
Innrauðir geislar hafa marg-
vísleg áhrif á líkama okkar:
n Auka virkni háræðakerfisins
sem eykur blóðflæði svo að
blóðið hreinsast betur af fitu og
úrgangsefnum.
n Bæta súrefnisþéttni í líkam-
anum.
n Bæta vöðvavirkni.
n Bæta svefn og viðhalda hita.
n Verkjastillandi – minni þörf á
verkjalyfjum.
n Auka endurheimt vöðvanna –
gott að setja þá á aum svæði eftir
æfingar.
n Plástrarnir eru alveg náttúru-
legir, engar aukaverkanir þar sem
þeir setja ekkert í líkamann sem
er þar ekki nú þegar. Henta öllum,
líka óléttum konum og þeim sem
eru með barn á brjósti.
Hvernig virka FIT-
plástrarnir?
n Setjið plástrana á
svæðin, eins og leið-
beiningar sýna, og bíðið
í tvær mínútur eftir því að
hiti frá líkamanum losi vel um
límefnið svo að plásturinn nái
öruggri festu. Nú breytist plástur-
inn í það sem verður best lýst sem
spegli sem endurkastar orku frá
líkamanum allt að 8-9 cm inn undir
húðina: Þessi orka hefur verkjastill-
andi áhrif. Hver plástur dugar í allt
að 5 daga og má fara í sturtu.
n Haldið meðferð áfram þar til
verkur hættir.
n Frá sama fyrirtæki eru einnig í
boði tíðaplástrar sem nýta sömu
tækni og draga úr tíðaverkjum
kvenna.
n Verkjaplástrarnir fást í flestum
apótekum landsins. n
Nánar má lesa um FIT-verkja-
plástra á síðunni: www.isam.is/
fit-therapy.
Þetta gerir
vanda-
málið
miklu
viðráðan-
legra og
veitir
tíma-
bundna
lausn á
meðan ég
stunda
hreyfingu.
2 kynningarblað A L LT 12. mars 2022 LAUGARDAGUR