Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 34
Tusse hafa fundið fyrir fordómum
í keppninni.
Kvenkraftur í Höllinni
Þegar Björg er spurð hvort eitthvað
eigi eftir að koma áhorfendum
á óvart í kvöld, svarar hún: „Í ár
erum við með fimm mjög sterk
og mjög ólík lög í úrslitum. Svo er
dálítið magnaður þessi kvenna-
kraftur sem er ríkjandi, ég meina,
11 af 13 flytjendum á sviðinu í
kvöld eru gellur. Og engar smá
gellur. Það er samt svo fallegt og
áberandi hvað andinn er góður hjá
listamönnunum í ár. Bara enda-
laus stuðningur, ást og pepp á alla
kanta. Ég er handviss um að kvöld-
ið og úrslitin verða æsispennandi
– það má nefnilega aldrei vanmeta
mátt beinna útsendinga. Bæði
þegar kemur að flutningi kepp-
enda á sviðinu sjálfu en ekki síður
hvernig þau koma fyrir í viðtölum
í Græna herberginu og innslög-
unum sínum. Þjóðin fylgist með
hverju smáatriði og velur rétt. Það
er ég viss um,“ segir hún, en löngu
er uppselt á viðburðinn. „Við erum
ekkert smá þakklát og ánægð með
þennan geggjaða Söngvakeppni-
fíling sem þjóðin er í. Þar eigum
við hundrað prósent heimsmet.
Bara best í heimi að fylla nýju höll-
ina af grímulausum Íslendingum í
taumlausum Euro-gír.“
Auk Tusse kemur hinn eini sanni
Daði Freyr fram í kvöld. „Hann er
auðvitað búsettur í Berlín þannig
að það verður extra gaman að sjá
hann syngja á glerspeglagólfinu
í Gufunesi. Alveg spurning um
að festa þakið betur á húsið fyrir
þann flutning,“ segir Björg og hlær
sínum einstaka hlátri.
Ekkert til sparað í klæðnaði
Klæðnaður kynnanna skiptir
miklu máli en Björg fékk Berglindi
Magnúsdóttur, kjólameistara hjá
Klæðskerahöllinni, til að gera
glæsilegan Eurovision kjól fyrir
kvöldið. Hún saumaði á sínum
tíma bláa kjólinn sem Jóhanna
Guðrún klæddist í Eurovision og
eftir var tekið. Sá kjóll er í raun
ógleymanlegur. „Berglind kann
þetta upp á tíu,“ segir Björg. Ragn-
hildur Steinunn verður í æðis-
legum kjól frá Ýr Þrastardóttur
fatahönnuði og Jón í smóking frá
Suitup. „Hann verður auðvitað í
litapallettu FH,“ segir Björg.
Besta geðlyfið
Þegar hún er spurð hvort Söngva-
keppnin útheimti mikinn undir-
búning, svarar hún því játandi.
„Mikil vinna í marga mánuði.
Rúmlega 100 manns koma að
útsendingunni sjálfri þannig að
Salóme Þorkelsdóttir yfirpródú-
sent hefur í ansi mörg horn að
líta en stýrir skútunni af mikilli
fagmennsku. Auðvitað mæðir
ekki síður mikið á stjörnunum,
flytjendum laganna, sem hafa
verið í marga mánuði að fínpússa
þessar þrjár mínútur á sviðinu.
Semja lagið og æfa það, útsetja,
taka upp, negla sviðshreyfingar,
vera skemmtileg í fjölmiðlum og
þar fram eftir götunum. Við kynn-
arnir erum í raun í einfaldasta
hlutverkinu, fáum smink á heims-
mælikvarða, stílista sem tuskar
okkur til ef við erum hallærisleg
og dásamlegar hjálparhellur sem
hlaupa til ef við gleymum ein-
hverju, sem gerist alveg stundum.
Að öllu gamni slepptu hefur þetta
gengið ósegjanlega vel miðað við
viðburðahald á rugluðum tímum
og ekki skemmir fyrir að meira
en helmingur þjóðarinnar hefur
fylgst með báðum undankvöldun-
um, sem gleður mikið. Þetta hefur
verið ótrúlega skemmtilegur tími.
Þetta er stærsta beina útsending
sjónvarpsins og mikið af hæfi-
leikafólki sem starfar við hana.
Það eru forréttindi og stanslaus
gleði að starfa með þessu fólki,“
segir hún. „Það er alltaf einhver
alveg sérstakur kraftur kringum
svona verkefni. Þetta er klárlega
besta geðlyfið sem ýtir manni úr
skammdegisvolæðinu inn í gleðina
og peppið sem fylgir vorinu,“ segir
hún.
Björg mun fylgja siguratriðinu
til Tórínó í maí en þar mun hún sjá
um fréttaflutning og dagskrárgerð
fyrir alla miðla RÚV í samstarfi
við aðra starfsmenn. Eurovision-
keppnin fer fram laugardaginn 14.
maí. „Við munum sjá til þess að
Íslendingar geti fylgst með hverju
einasta skrefi hjá íslenska atriðinu
í stóru keppninni í vor.“ n
Í kvöld kemur í ljós hvaða
lag mun keppa fyrir Íslands
hönd í Eurovision keppninni
í Tórínó á Ítalíu í maí. Mikil
tilhlökkun er í loftinu en
meðal gesta verður sænski
sigurvegarinn í fyrra, Tusse.
elin@frettabladid.is
Björg Magnúsdóttir er einn kynna
Söngvakeppninnar og hefur unnið
mikið að undirbúningi þessa
kvölds. „Við erum búin að bíða
eftir þessu kvöldi í tvö frekar erfið
ár,“ segir hún. „Öll þessi upp-
safnaða tilhlökkun, orka og gleði
mun ná hápunkti í kvöld þegar við
skrifum nýjan kafla í Eurovision-
sögu þjóðarinnar og líf einhverra
listamanna breytist til fram-
búðar,“ segir hún.
Upphaflega átti úkraínska
hljómsveitin Go _A að koma til
landsins en hún lenti í fimmta
sæti keppninnar í fyrra með lagið
Shum á eftir Daða og gagna-
magninu sem voru í fjórða sætinu.
Enginn átti von á þeirri atburðarás
sem síðan átti sér stað í heima-
landi hljómsveitarinnar. „Þau
voru með kraftmikið og f lott lag
á úkraínsku sem sló auðvitað í
gegn,“ segir Björg. „Það er bara
eitthvað rosalegt í gangi í þessum
djúpforna og dáleiðandi takti.
En svo auðvitað setti innrásin
í Úkraínu allt á annan endann
í heiminum. Ömurlegt að vinir
okkar í hljómsveitinni séu nú
komnir í aðra búninga en sviðs-
búninga og geti því ekki verið með
okkur,“ segir hún.
Hinn sænski Tusse
Í þeirra stað kemur hinn sænski
Tusse til landsins og stígur á sviðið
í Söngvakeppninni í kvöld. Hann
var sigurvegari Melodifestivalen
í fyrra í Svíþjóð. Tusse heitir fullu
nafni Tousin Chiza og er fæddur í
Kongó, 1. janúar 2002. Hann vann
keppnina í Svíþjóð í fyrra með
laginu Voices, en áður hafði hann
unnið sænsku Idol-keppnina árið
2019. Fjölskylda Tusse f lýði frá
Kongó vegna óróa í landinu þegar
hann var barn. Á f lóttanum varð
hann viðskila við fjölskylduna
og endaði með frænku sinni í
Svíþjóð árið 2010. Fyrstu árin
f lakkaði hann á milli frænku
sinnar og fósturfjölskyldna en árið
2015 fékk hann varanlega fóstur
í Dölunum í Svíþjóð. Tusse hefur
rætt mikið um kynþáttafordóma
í sænskum fjölmiðlum, en hann
segist hafa orðið fyrir þeim alla tíð
frá því hann kom til Svíþjóðar.
Björg var ekki búin að hitta
Tusse þegar við ræddum saman
en segir að hann hafi heillað heilla
hana upp úr skónum í Eurovision
í fyrra í Rotterdam. Tusse mun
flytja sigurlagið sitt sem lenti í 14.
sæti í keppninni í fyrra. Margir
telja að hann hefði átt að vera nær
toppnum og aðrir segja að ekki sé
mögulegt fyrir svartan mann að
vinna Eurovision. Sjálfur segist
Grímulaus í Eurovision gír
Hluti af hópnum
sem kepp-
ir í kvöld í
Söngvakeppni
sjónvarpsins í
Gufunesi.
MYND/MUMMILU
Hinn sænski Tusse, sem bar sigur úr
býtum á Melodifestivalen í fyrra og
keppti fyrir hönd Svíþjóðar í Euro-
vision, verður gestur í kvöld.
Kynnar
kvöldsins, Ragn-
hildur Steinunn,
Jón Jónsson og
Björg Magnús-
dóttir. Þau
verða í öðrum
sérhönnuðum
dressum í kvöld.
4 kynningarblað A L LT 12. mars 2022 LAUGARDAGUR