Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 36
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652.
Svanlaug og Örn eru eigendur OsteoStrong en stöðin hefur vaxið og dafnað. Nýja stöðin í Ögurhvarfi er glæsileg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er nóg pláss
í nýju stöðinni
í Ögurhvarfi 2.
Hægt er að fá
frían prufutíma.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Sigmundur Þorsteinsson er
orkumikill og lífsglaður bóndi
sem rekur eggjabúið Hvamm hjá
bænum Elliðahvammi, rétt við
borgarmörkin. Hann er einnig
með kindur, hesta, býflugur og
selur íslenskt hunang. Hann er
uppátækjasamur, ævintýragjarn,
syngur í Brokkkórnum og fer
reglulega í hestaferðir.
„Ég er alltaf eitthvað að bralla
og færast í fang. Fyrir bændur og
aðra sem vinna með dýrum getur
þetta tekið töluvert á líkamann og
ég hreinlega veit ekki hversu oft ég
hef brotið tá, fingur, rifbein, rist
eða annað. Þetta eru nokkrir tugir
brota, en það stoppar mig nú lítið
nema í smá stund.
Upphaflega fór ég í heimsókn til
OsteoStrong af því að ég mældist
með beingisnun og lyfin sem mælt
var með að ég tæki fóru illa í mig.
Ég var búinn að vera í rúmt ár
þegar ég fór aftur í mælingu og þá
hafði beinþéttnin mín alveg haldið
sér, staðið í stað, en ekki rýrnað,
sem ég var mjög ánægður með.
Mjög óvænt og nærri því ótrúleg
mæling kom líka í þeirri læknis
ferð, ég hafði hækkað um einn
sentimetra við æfingarnar,“ segir
Sigmundur.
„Þegar ég byrjaði ég hjá Osteo
Strong var ég illa verkjaður eftir
slys sem ég lenti í þegar ég var
tvítugur. Í framhaldi af því var
ég alltaf með seiðing og verk sem
leiddi niður í fót. Það tók nokkra
mánuði en ég er laus við þá verki í
dag,“ heldur hann áfram.
„Ég fann strax mikinn mun á mér
þegar ég byrjaði í ástundun og held
áfram að koma til að halda áfram
að halda beinþéttninni við. Ég finn
mikinn mun á jafnvæginu líka og
það hjálpar mér að minnka líkur
á fleiri byltum. Ég hef lent í ýmsu
síðan ég byrjaði en ég tók eftir því
að þó að hestur hafi stigið á mig
og kind stangað mig þá hef ég ekki
brotnað. Áður var ég alltaf lurkum
laminn eftir hestaferðir en í dag
taka þær miklu minna á mig og ég
hika ekki við að skella mér af stað.
Sem betur fer er maður svo
fljótur að gleyma, þannig að ég
þurfti alveg smá tíma í að rifja upp
hvernig ég var fyrir OsteoStrong.
Það tekur bara 20 mínútur í hverri
viku að stunda OsteoStrong. Ég
mæli svo sannarlega með því,“
segir Sigmundur.
73% styrking á ári
„Notendur gera æfingar undir
handleiðslu þjálfara í fjórum
tækjum og reyna þannig á
allan líkamann,“ segir Svanlaug
Jóhannsdóttir, annar eigandi
OsteoStrong. „Hreyfingin er lítil
en átakið hins vegar meira en fólk
er vant án þess að verða manni
ofviða. Með nýju áreiti fær líkam
inn skýr skilaboð um að byggja sig
upp og hefst handa við að þétta
bein og styrkja vöðva, liðbönd
og sinar. Þannig styður líkaminn
betur við okkur og fólk er mikið
að losa sig við verki í stoðkerfinu.
Með vikulegri ástundun er fólk á
einu ári að styrkja sig um 73%.“
Tíminn er núna
OsteoStrong hentar næstum öllum
sem geta staðið upp. „Hjá okkur
eru til dæmis einstaklingar sem
eru að undirbúa sig fyrir Landvætt
ina og á sama tíma einstaklingar
sem eru farnir að þurfa að styðjast
við göngugrind og allt þar á milli.
Það eru svo margir sem hafa dottið
út úr rútínu með sína hreyfingu
tengt Covid og þrá að komast aftur
af stað. Það er góð hugmynd prófa
OsteoStrong núna og byrja strax
að safna styrk fyrir vorið og úti
veruna,“ segir Örn Helgason, hinn
eigandi OsteoStrong.
Ný stöð í Ögurhvarfi
OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára
starfsafmæli um þessar mundir.
Vikulega mæta um 500 meðlimir
Slakað á um leið og súrefnisflæði líkamans eykst.
Æfingarnar taka stuttan tíma en eru engu að síður öfl-
ugar fyrir líkamann. Mörgum hentar það mjög vel.
OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um
þessar mundir. Vikulega mæta um 500 meðlimir til
þess að styrkja sig og auka orku.
Jafnvægisæfingar eru afar mikilvægar.
til þess að styrkja sig og auka orku.
„Til viðbótar við stöðina í Hátúni
12 opnuðum við nýja stöð í byrjun
febrúar í Ögurhvarfi. Þannig
geta enn fleiri nýtt sér þjónustu
OsteoStrong og leiðin er styttri
fyrir þá sem koma til dæmis frá
Selfossi og Borgarnesi. Við erum
mjög spennt yfir möguleikanum á
því að fá að þjóna fleiri svæðum á
Íslandi og erum alltaf spennt yfir
að tala við mögulega samstarfs
aðila,“ segir Svanlaug.
Góðar sóttvarnir
„Við hugum mjög vel að sótt
vörnum og enn sem komið er hefur
enginn náð að smitast hjá okkur.
Með allt þetta fólk og á öllum
þessum tíma hefur það í aðeins
tvígang komið fyrir að einstakling
ur kom og gerði æfingarnar sínar
en komst að því eftir á að hann
var með Covid. Okkur þótti vænt
um það þegar annar þeirra sagði
við smitrakningarteymið: „Jú, ég
fór þangað en það er ekki séns að
nokkur smitist þar, OsteoStrong
er örugglega mest sótthreinsaði
staður á Íslandi,“ segir Örn.
Meðlimir geta átt von á að:
n Auka styrk
n Minnka verki í baki og liða-
mótum
n Lækka langtíma blóðsykur
n Auka beinþéttni
n Bæta líkamsstöðu
n Auka jafnvægi
n Minnka líkur á álagsmeiðslum
Frír prufutími
„Við bjóðum upp á fría prufutíma
á fimmtudögum. Það er gaman
að geta sýnt fólki hvað við gerum.
Flestir koma til okkar með margar
spurningar, en fara frá okkur
spenntir, glaðir og með skýra sýn
á það hvernig OsteoStrong getur
hjálpað þeim,“ segir Örn. n
OsteoStrong er í Ögurhvarfi 2 og
Hátúni 12, sunnan megin.
Prufutíma má bóka á osteostrong.
is og í síma 419 9200.
Ég fann strax mik-
inn mun á mér
þegar ég byrjaði í
ástundun og held áfram
að koma til að halda
áfram að halda bein-
þéttninni við. Ég finn
líka mikinn mun á
jafnvæginu.
Sigmundur Þorsteinsson
2 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt