Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 38
Með félagsliði væri
gaman að prófa að
komast í sterkari deild
og komast nær því að
spila í atvinnumanna-
liði.
Þóra Kristín Jónsdóttir
Þóra Krist ín Jóns dótt ir,
landsliðskona í körfuknatt
leik, varð danskur bikar
meistari með liði sínu AKS
Falcon í síðustu viku. Hún
stundar mastersnám í efna
og lífefnaverkfræði samhliða
körfuboltanum.
starri@frettabladid.is
Í síðustu viku varð Þóra Krist
ín Jóns dótt ir, landsliðskona í
körfuknatt leik, danskur bikar
meistari með liði sínu AKS Falcon
frá Kaup manna höfn. Með liðinu
leikur einnig Ástrós Lena Ægis
dóttir og eiga þær góða möguleika á
að verða tvö fald ir meist arar, en lið
þeirra hefur unnið tólf af þrett án
leikj um sín um á tíma bil inu.
Þóra, sem verður 25 ára í lok
mars, segir aðalmarkmið sitt
sem leikmaður að vera í stöðugri
bætingu. „Með félagsliði væri
gaman að prófa að komast í
sterkari deild og komast nær því
að spila í atvinnumannaliði. Með
landsliðinu er markmiðið auð
vitað að komast á stórmót. Það
gerist auðvitað ekki á einni nóttu
svo að til að byrja með væri gott að
stela einhverjum sigrum í undan
keppni Evrópumótsins og byggja
síðan á því.“
Aðeins villtari bolti
Samhliða því að spila körfubolta
stundar Þóra mastersnám í efna
og lífefnaverkfræði við DTU í
Lyngby. „Ég sótti um inngöngu í
skólann í febrúar á síðasta ári og
ætlaði bara að meta stöðu mála
þegar ég fengi svar frá skólanum.
Svo þegar ég komst inn í skólann
komst ég í samband við Hrannar
Hólm, sem hefur bæði þjálfað
dönsk félagslið og danska landslið
ið. Hann kom mér svo í samband
við Jesper Krone sem er þjálfarinn
minn hjá AKS Falcon.“
Styrkleiki dönsku deildarinnar
rokkar mikið milli ára að hennar
sögn. „Í ár eru til dæmis bara fimm
lið í deildinni og aðeins tvö þeirra
eru með amerískan leikmann sem
er öðruvísi en heima, þar sem flest
lið eru með einn til þrjá erlenda
leikmenn. Því myndi ég segja
að íslenska deildin sé nær því að
vera atvinnumannadeild eins og
er. Boltinn hérna er frjálslegri en
heima og stundum aðeins villtari.
Liðin vilja keyra upp hraðann í
leikjum og spila hratt og einblína
mikið á 1 á 1 sóknarleik, sem gerir
það að verkum að mikið af leik
mönnunum hér eru líkamlega
sterkar og kannski sókndjarfari
heldur en margir íslenskir leik
menn.“
Byrjaði snemma í boltanum
Þóra ólst upp í Norðurbænum í
Hafnarfirði þar sem hún gekk í
bæði Engidals og Víðistaðaskóla.
„Ég byrjaði að æfa fótbolta með
Haukum þegar ég var sex ára, þrátt
fyrir að búa í FHhverfi þar sem
foreldrar mínir eru mikið Hauka
fólk. Ári síðar byrjaði ég að æfa
körfubolta með vinkonu minni og
var í báðum íþróttunum þar til ég
var 1718 ára en þá lagði ég takka
skóna á hilluna og einbeitti mér að
körfunni.“
Hún spilaði alla yngri flokkana
í Haukum og byrjaði að æfa með
meistaraflokki sumarið 2012.
„Árið 2016 fór ég á venslasamning
til Skallagríms í Borgarnesi sem
spilaði í 1. deildinni ásamt því
að vera í Haukum. Þar fékk ég
ágætis mínútur og þetta hjálpaði
mér mikið til að brúa bilið á milli
þess að spila í yngri flokkum og
meistaraflokki.“
Allt gott í hófi
Utan hefðbundinna æfinga hugar
Þóra að ýmsum öðrum þáttum
til að bæta sig sem leikmann. „Ég
reyni auðvitað að borða hollan
og góðan mat en set samt engin
bönn enda er allt gott í hófi. Einnig
drekk ég mikið vatn sem skiptir
mig miklu máli. Ég reyni síðan
að huga vel að svefninum þó það
reynist mér stundum erfitt vegna
anna í skóla og öðru. Síðastliðin
ár hef ég verið dugleg að stunda
styrktarþjálfun og var lengi hjá
Fannari Karvel í Spörtu ásamt því
að vera í f lottri styrktarþjálfun hjá
Haukum. Þar að auki finnst mér
gott að fara sjálf upp í íþróttahús
og taka aukaæfingu þar sem ég get
lagt áherslu á það sem ég vil hverju
sinni.“ n
Frjálslegri bolti og stundum aðeins villtari
Þóra Krist ín Jóns dótt ir (t.h.), varð danskur bikar meistari með liði sínu AKS
Falcon frá Kaup manna höfn fyrir stuttu. Í liðinu leikur einnig Ástrós Lena
Ægisdóttir en liðið á möguleika á að vinna tvöfalt í ár. MYNDIR/AÐSENDAR
Júlíus Jóhannsson var
þjáður af verkjum í hné sem
trufluðu hann þegar hann
stundaði hjólreiðar. En eftir
að hann byrjaði að nota
Protis liði varð hann alveg
verkjalaus og hann hefur
verið góður árum saman.
Júlíus Jóhannsson er fasteignasali
og mikill áhugamaður um hjól
reiðar. Hann hefur notað Protis liði
í um þrjú ár og fyrir vikið er hann
alveg laus við verki í hné, sem áður
plöguðu hann.
„Ég hef mjög gaman af því að
hjóla og geri það bæði á fjallahjóli
og racerhjóli og það er þar sem
Protis liðir koma mér að gagni,“
segir hann. „Áður fann ég fyrir
verkjum í hnénu sem voru að
angra mig og urðu til þess að ég fór
ósjálfrátt að reyna að hlífa hnénu.
En nú er ég miklu betri.
Ég heyrði af Protis liðum í
gegnum hana Hólmfríði Sveins
dóttur, sem er doktor í lífvísindum
og næringarfræðingur og kom að
þróun vörunnar til að byrja með,“
segir Júlíus. „Við þekkjumst vegna
þess að við erum bæði úr úr Skaga
firðinum, af Sauðárkróki, en þar er
ég fæddur og uppalinn. Hún sagði
mér að þetta virkaði og mælti með
því að ég prófaði þetta.
Síðastliðin þrjú ár hef ég svo
tekið tvö hylki tvisvar á dag.
Verkurinn lagaðist tiltölulega
hratt og svo hef ég bara haldið
áfram að taka þetta til að halda
mér við,“ segir Júlíus. „Þetta hefur
reynst mér mjög vel og í dag er ég
alveg laus við verki. Ég myndi því
hiklaust mæla með þessu fyrir alla
sem glíma við verki í liðamótum.“
Fæðubót úr fiskprótíni
Protis liðir eru unnir úr fiskprótíni
sem er þróað og unnið hér á landi.
Protis vörurnar samanstanda
af fæðubótarefnum sem inni
halda þorskprótín ásamt öðrum
lífvirkum efnum, sem styðja við,
eða auka, heilsubætandi virkni
þorskpeptíða.
Liðir er liðkandi blanda með
náttúrulegum efnum úr fisk
prótíni úr hafinu við Ísland. Það
inniheldur sæbjúgu (Cucumaria
frondosa) og IceProteins® (vatns
rofin þorskprótín). Skrápurinn
samanstendur að mestu leyti
af brjóski og er því mjög ríkur
af kollageni en einnig lífvirka
efninu chondroitin sulphate sem
verndar liði fyrir skemmdum og
örvar endurbyggingu á skemmdu
brjóski.
Fyrir utan að innihalda
kollagen og chondroitin sulphate
er sæbjúgnaextraktið ríkt af sinki,
joði og járni sem og bólguhemj
andi efnum sem nefnast saponin.
Auk sæbjúgna og IceProteins®
inniheldur Protis liðir túrmerik,
Dvítamín, Cvítamín og mangan.
Kollagen, chondroitin sulphate,
Dvítamín, Cvítamín og mangan
eru allt efni sem eru mikilvæg fyrir
liðaheilsu. n
Protis fæðubótarefnin fást í öllum
helstu stórverslunum, heilsuvöru-
verslunum og apótekum.
Hjólreiðarnar auðveldari og ánægjulegri
Júlíus Jóhanns-
son hefur tekið
tvö hylki af Prot-
is liðum tvisvar
á dag í þrjú ár.
Hann losnaði
fljótt við verki
í hné og hefur
haldið áfram
að taka hylkin
til að halda sér
við. Hann mælir
hiklaust með
því fyrir alla sem
glíma við verki í
liðamótum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Protis fæðubótarefnin fást í öllum
helstu stórverslunum, heilsuvöru-
verslunum og apótekum.
4 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt