Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 39
Kerecis kynnir MariCell,
íslenska vöru til meðhöndl-
unar á húð, sem framleidd
er á Ísafirði og inniheldur
mOmega-3 fjölómettaðar
fitusýrur.
MariCell ® FootGuard er sérhönn-
uð húðmeðhöndlunarvara ætluð
til að meðhöndla fætur, sprungna
húð og fyrir þá sem þurfa að standa
mikið eða eru við slæma fótaheilsu.
MariCell Footguard hentar sérstak-
lega vel þeim sem eiga við þrálát
sprunguvandamál á fótum að
stríða. Jafnframt er það tilvalið til
þess að mýkja og fegra fæturna fyrir
sumarið og opnu skóna.
Húðsjúkdómalæknirinn
Baldur Tumi Baldursson stendur
að baki MariCell og hefur þróað
vörulínuna í gegnum árin, sem
samanstendur af fjórum mis-
munandi tegundum í dag. Varan
er framleidd af Kerecis á Ísafirði og
inniheldur mOmega-3 ® fjöló-
mettaðar fitusýrur, sem viðhalda
heilbrigði millifrumuefnis í ysta
lagi húðarinnar, ásamt ávaxtasýru
sem brýtur niður sigg og þykka
húð og karbamíð sem er rakagef-
andi, en þó í mismunandi magni
eftir tegundum. Varan er CE-merkt
lækningavara og flokkast því ekki
sem snyrtivara.
Kostir mOmega3 tækninnar
Baldur Tumi segir marga þekkja
kosti þess að taka inn Omega-3
fitusýrur í töfluformi en að áhrif
þess séu þó ekki ýkja mikil út í
húðina. „Séu þær hins vegar bornar
beint á erfið svæði margfaldast
áhrifin, jafnvel þó styrkur þeirra
sé ekki yfirþyrmandi,“ útskýrir
Baldur. Hann segir að menn hafi
lengi vitað að Omega-3 hefði
góð áhrif á húðina. Það hafi þótt
freistandi að nota Omega-3 við
ýmsum húðsjúkdómum en lyktin
hefur staðið í mönnum, enda eru
fitusýrurnar unnar úr fiskiroði
Mýkri fætur
og betri líðan
með MariCell
Fyrir Footguard Eftir Footguard.
Baldur Tumi Baldursson stendur að
baki MariCell og hefur þróað vöru-
línuna í gegnum árin með Kerecis.
og öðru sjávarfangi. „Við hittum
hins vegar á mjög góða blöndu sem
hefur virkni án þess að lyktin trufli
með mOmega-3 tækninni.“
Á hvaða hátt?
„Efsta lag húðarinnar er búið til
úr 15-20 lögum af frumum. Neðstu
frumur húðarinnar eru lifandi,
en eftir því sem ofar dregur þorna
þær, deyja og mynda hyrnislag. Á
milli þurru frumnanna er fylliefni,
sem er ríkt af fitusýrum. Þessar
fitusýrur halda hyrnislaginu mjúku
og vatnsheldu. Undir ákveðnum
kringumstæðum rýrnar það
þannig að hyrnislagið opnast.
Þetta veldur því að húðin bólgnar
og verður þrútin, rauð og þurr.
Bólguviðbrögð húðarinnar stafa
meðal annars af auknu gegndræpi
húðarinnar sem veldur því að
ertandi efni komast inn í hana. Þá
getur verið nauðsynlegt að bera á
hana. mOmega-3 tæknin er gerð til
þess að snúa þessari þróun við.“■
MariCell TM kremin fást í apó-
tekum. Nánari upplýsingar er að
finna á maricell.is.
Fann mun á einum sólarhring
Þórey Sigrún Leifsdóttir hefur glímt við sigg á hælum
og tábergi frá níu ára aldri. „Þegar verst lét var ég
komin á það stig að vakna á nóttunni vegna kláða og
pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu.
Stundum brá ég á það ráð að raspa fæturna um
miðjar nætur og smyrja þá með smyrsli og vanlíðan
var mikil. Amma kenndi því um að ég gengi um ber-
fætt en seinna kom í ljós að þetta var sóríasis“.
Þórey leitaði til húðlæknis sem benti henni á
Footguard. „Ég bar það á annan fótinn til prufu og
eftir aðeins sólarhring fann ég stóran mun. Ég ber nú
á mig eftir þörfum en sprungurnar eru horfnar og ég
hef ekki vaknað út af kláða og blæðandi sprungum í
nokkur ár.
Ég mæli með því fyrir alla sem kljást við sprungur og
sigg, því það er það besta sem ég hef notað.“ Þegar verst lét vaknaði Þórey á nóttunni vegna kláða og
pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu.
Mynd/aðsend
kynningarblað 5LAUGARDAGUR 12. mars 2022 Heilsur ækt