Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 39

Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 39
Kerecis kynnir MariCell, íslenska vöru til meðhöndl- unar á húð, sem framleidd er á Ísafirði og inniheldur mOmega-3 fjölómettaðar fitusýrur. MariCell ® FootGuard er sérhönn- uð húðmeðhöndlunarvara ætluð til að meðhöndla fætur, sprungna húð og fyrir þá sem þurfa að standa mikið eða eru við slæma fótaheilsu. MariCell Footguard hentar sérstak- lega vel þeim sem eiga við þrálát sprunguvandamál á fótum að stríða. Jafnframt er það tilvalið til þess að mýkja og fegra fæturna fyrir sumarið og opnu skóna. Húðsjúkdómalæknirinn Baldur Tumi Baldursson stendur að baki MariCell og hefur þróað vörulínuna í gegnum árin, sem samanstendur af fjórum mis- munandi tegundum í dag. Varan er framleidd af Kerecis á Ísafirði og inniheldur mOmega-3 ® fjöló- mettaðar fitusýrur, sem viðhalda heilbrigði millifrumuefnis í ysta lagi húðarinnar, ásamt ávaxtasýru sem brýtur niður sigg og þykka húð og karbamíð sem er rakagef- andi, en þó í mismunandi magni eftir tegundum. Varan er CE-merkt lækningavara og flokkast því ekki sem snyrtivara. Kostir mOmega3 tækninnar Baldur Tumi segir marga þekkja kosti þess að taka inn Omega-3 fitusýrur í töfluformi en að áhrif þess séu þó ekki ýkja mikil út í húðina. „Séu þær hins vegar bornar beint á erfið svæði margfaldast áhrifin, jafnvel þó styrkur þeirra sé ekki yfirþyrmandi,“ útskýrir Baldur. Hann segir að menn hafi lengi vitað að Omega-3 hefði góð áhrif á húðina. Það hafi þótt freistandi að nota Omega-3 við ýmsum húðsjúkdómum en lyktin hefur staðið í mönnum, enda eru fitusýrurnar unnar úr fiskiroði Mýkri fætur og betri líðan með MariCell Fyrir Footguard Eftir Footguard. Baldur Tumi Baldursson stendur að baki MariCell og hefur þróað vöru- línuna í gegnum árin með Kerecis. og öðru sjávarfangi. „Við hittum hins vegar á mjög góða blöndu sem hefur virkni án þess að lyktin trufli með mOmega-3 tækninni.“ Á hvaða hátt? „Efsta lag húðarinnar er búið til úr 15-20 lögum af frumum. Neðstu frumur húðarinnar eru lifandi, en eftir því sem ofar dregur þorna þær, deyja og mynda hyrnislag. Á milli þurru frumnanna er fylliefni, sem er ríkt af fitusýrum. Þessar fitusýrur halda hyrnislaginu mjúku og vatnsheldu. Undir ákveðnum kringumstæðum rýrnar það þannig að hyrnislagið opnast. Þetta veldur því að húðin bólgnar og verður þrútin, rauð og þurr. Bólguviðbrögð húðarinnar stafa meðal annars af auknu gegndræpi húðarinnar sem veldur því að ertandi efni komast inn í hana. Þá getur verið nauðsynlegt að bera á hana. mOmega-3 tæknin er gerð til þess að snúa þessari þróun við.“■ MariCell TM kremin fást í apó- tekum. Nánari upplýsingar er að finna á maricell.is. Fann mun á einum sólarhring Þórey Sigrún Leifsdóttir hefur glímt við sigg á hælum og tábergi frá níu ára aldri. „Þegar verst lét var ég komin á það stig að vakna á nóttunni vegna kláða og pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu. Stundum brá ég á það ráð að raspa fæturna um miðjar nætur og smyrja þá með smyrsli og vanlíðan var mikil. Amma kenndi því um að ég gengi um ber- fætt en seinna kom í ljós að þetta var sóríasis“. Þórey leitaði til húðlæknis sem benti henni á Footguard. „Ég bar það á annan fótinn til prufu og eftir aðeins sólarhring fann ég stóran mun. Ég ber nú á mig eftir þörfum en sprungurnar eru horfnar og ég hef ekki vaknað út af kláða og blæðandi sprungum í nokkur ár. Ég mæli með því fyrir alla sem kljást við sprungur og sigg, því það er það besta sem ég hef notað.“ Þegar verst lét vaknaði Þórey á nóttunni vegna kláða og pirrings í fótum, oft með blæðandi sprungur í sigginu. Mynd/aðsend kynningarblað 5LAUGARDAGUR 12. mars 2022 Heilsur ækt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.