Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 46
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 27. mars nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar veita Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is og
Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is
Verkefnastjóri stýrir og hefur eftirlit með byggingaframkvæmdum.
Starfið felst auk þess í því að sjá um kostnaðareftirlit, gerð
verkáætlana, þátttöku í hönnunar- og verkfundum sem og
öryggis- og gæðamálum. Verkefnastjóri á í samskiptum við
leyfisveitendur, eftirlitsaðila mannvirkis, hönnuði, iðnmeistara
og aðra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði bygginga-, tækni- eða verkfræði
• Byggingastjóraréttindi æskileg
• Reynsla eða menntun í iðngrein er mikill kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun er æskileg
• Skipulagshæfni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
• Mjög gott vald á íslensku og ensku
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
Verkefnastjóri
Helstu verkefni verkstjóra eru að hafa umsjón með framkvæmdum,
sinna daglegri verkstjórn á verkstað í samvinnu með verkefnastjóra.
Verkstjóri heldur utan um skráningu og utanumhald verkferla,
tekur þátt í verkfundum og heldur utan um rekstur á gæða og
öryggismálum á verkstað.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í trésmíði, meistararéttindi eru kostur
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Rík þjónustulund og samskiptahæfni
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Jákvæðni, heiðarleiki og metnaður í starfi
• Góð tölvukunnátta
Verkstjóri
Helstu verkefni tæknimanns eru eftirlit með framkvæmdum,
eftirfylgni, gerð skoðunar- og úttektarskýrslna sem og samskipti
við byggingaryfirvöld. Tæknimaður sér auk þess um magntökur
og úttektir á framvindu og tekur þátt í öryggis-, gæða- og
umhverfisvinnu innan fyrirtækisins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun á sviði bygginga-, tækni- eða verkfræði
• Reynsla eða menntun í iðngrein er mikill kostur
• Góð tölvukunnátta, AutoCAD kunnátta er æskileg
• Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
• Rík þjónustulund og samskiptahæfni
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Tæknimaður
Reir Verk ehf. er traust byggingarfélag sem vinnur að stórum jafnt sem smáum fasteignaverkefnum bæði
á útboðsmarkaði sem og í eigin verkefnum. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugum starfsmönnum, stjórnendum
og tækjabúnaði og getur því tekist á við verkefni af hvaða stærðargráðu sem er.
Vegna aukinna umsvifa og spennandi verkefna á höfuðborgarsvæðinu á komandi misserum leitar fyrirtækið
eftir kraftmiklum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og skemmtilegar áskoranir.
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar