Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 47

Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 47
hagvangur.is Umsóknarfrestur er til 28. mars 2022. Sótt er um starfið á hagvangur.is Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa á Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins mulathing.is Múlaþing auglýsir stöðu fræðslustjóra lausa til umsóknar. Fræðslustjóri er faglegur leiðtogi málaflokksins og ber rekstrarlega ábyrgð á fræðslumálum í sveitarfélaginu. Fræðslustjóri er yfirmaður skólastjórnenda, forstöðumanns skólamötuneytis á Egilsstöðum og skólaþjónustu sveitarfélagsins, auk þess að starfa með fjölskylduráði. Fræðslustjóri er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum Múlaþings, Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði. Fræðslustjóri er yfirmaður á fjölskyldusviði og heyrir undir sveitarstjóra. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Fræðslustjóri fer með faglega og rekstrarlega ábyrgð á fræðslumálum í sveitarfélaginu og stuðlar að metnaði og fagmennsku í starfsemi skólanna • Fræðslustjóri fer með leiðtogahlutverk sem yfirmaður stjórnenda leik-, grunn og tónlistarskóla sveitarfélagsins og skólamötuneytis • Fræðslustjóri ber ábyrgð á framkvæmd skólaþjónustu, stuðla að samstarfi á milli skólastiga og hlúa að stöðugum framgangi lærdómssamfélags í skólasamfélaginu • Fræðslustjóri hefur umsjón með gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana, auk starfs og framkvæmdaáætlana sem fjölskylduráð fjallar um Menntunar og hæfniskröfur: • Háskólamenntun og reynsla á sviði fræðslumála • Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og/eða menntunarfræði æskileg • Menntun eða reynsla á sviði stjórnsýslu sveitarfélaga • Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast fræðslumálum sveitarfélaga • Reynsla af stefnumótun, stjórnun og áætlanagerð æskileg • Góð samskiptahæfni, leiðtogahæfni og þjónustulund • Frumkvæði, sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Fræðslustjóri Múlaþings Í öllum byggðakjörnum Múlaþings er metnaðarfullt skólastarf. Á Borgarfirði eystri er samrekinn leik- og grunnskóli sem nú er starfræktur sem deild í Fellaskóla, Fellabæ. Í Brúarásskóla er samrekinn leik- og grunnskóli, um 40 nemendur í grunnskóla og 1 leikskóladeild. Á Djúpavogi er 2ja deilda leikskóli, Bjarkatún, og samrekinn grunn- og tónlistarskóli, Djúpavogsskóli. Nemendur í grunnskólanum eru um 100. Á Egilsstöðum er um 400 nemenda grunnskóli, Egilsstaðaskóli, og 9 deilda leikskóli, Tjarnarskógur. Í Fellabæ er um 100 nemenda grunnskóli, Fellaskóli og 3 deilda leikskóli, Hádegishöfði, sem flytur inn í nýtt húsnæði í upphafi næsta skólaárs. Á Seyðisfirði sem er samrekinn leik-, grunn- og listaskóli og þar eru rúmlega 60 nemendur i grunnskóladeildinni en leikskóladeildin er 2ja deilda. Hefð er fyrir metnaðarfullu tónlistarskólastarfi í sveitarfélaginu og þrír sjálfstæðir tónlistarskólar eru starfandi og eiga ríka sögu. Á Egilsstöðum er starfrækt sjálfstætt skólamötuneyti sem sér um hádegisverð fyrir leik- og grunnskóla á Egilsstöðum og í 2019 - 2022 Skannaðu kóðann fyrir nánari upplýsingar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.