Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 47
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til 28. mars 2022. Sótt er um starfið á hagvangur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Stefanía Hildur Ásmundsdóttir, stefania@hagvangur.is
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Þeir sem ráðnir eru til starfa á
Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara. Einstaklingar af öllum kynjum eru
hvattir til að sækja um.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu
sveitarfélagsins mulathing.is
Múlaþing auglýsir stöðu fræðslustjóra lausa til umsóknar.
Fræðslustjóri er faglegur leiðtogi málaflokksins og ber rekstrarlega
ábyrgð á fræðslumálum í sveitarfélaginu. Fræðslustjóri er yfirmaður
skólastjórnenda, forstöðumanns skólamötuneytis á Egilsstöðum og
skólaþjónustu sveitarfélagsins, auk þess að starfa með fjölskylduráði.
Fræðslustjóri er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstofum
Múlaþings, Egilsstöðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.
Fræðslustjóri er yfirmaður á fjölskyldusviði og heyrir undir
sveitarstjóra.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Fræðslustjóri fer með faglega og rekstrarlega ábyrgð á fræðslumálum
í sveitarfélaginu og stuðlar að metnaði og fagmennsku í starfsemi
skólanna
• Fræðslustjóri fer með leiðtogahlutverk sem yfirmaður stjórnenda leik-,
grunn og tónlistarskóla sveitarfélagsins og skólamötuneytis
• Fræðslustjóri ber ábyrgð á framkvæmd skólaþjónustu, stuðla
að samstarfi á milli skólastiga og hlúa að stöðugum framgangi
lærdómssamfélags í skólasamfélaginu
• Fræðslustjóri hefur umsjón með gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana,
auk starfs og framkvæmdaáætlana sem fjölskylduráð fjallar um
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og reynsla á sviði fræðslumála
• Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og/eða menntunarfræði æskileg
• Menntun eða reynsla á sviði stjórnsýslu sveitarfélaga
• Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast fræðslumálum
sveitarfélaga
• Reynsla af stefnumótun, stjórnun og áætlanagerð æskileg
• Góð samskiptahæfni, leiðtogahæfni og þjónustulund
• Frumkvæði, sjálfstæði, góð skipulagshæfni og færni til að vinna í hóp
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Fræðslustjóri Múlaþings
Í öllum byggðakjörnum Múlaþings er metnaðarfullt
skólastarf. Á Borgarfirði eystri er samrekinn
leik- og grunnskóli sem nú er starfræktur sem
deild í Fellaskóla, Fellabæ. Í Brúarásskóla er
samrekinn leik- og grunnskóli, um 40 nemendur
í grunnskóla og 1 leikskóladeild. Á Djúpavogi
er 2ja deilda leikskóli, Bjarkatún, og samrekinn
grunn- og tónlistarskóli, Djúpavogsskóli.
Nemendur í grunnskólanum eru um 100.
Á Egilsstöðum er um 400 nemenda grunnskóli,
Egilsstaðaskóli, og 9 deilda leikskóli,
Tjarnarskógur. Í Fellabæ er um 100 nemenda
grunnskóli, Fellaskóli og 3 deilda leikskóli,
Hádegishöfði, sem flytur inn í nýtt húsnæði
í upphafi næsta skólaárs. Á Seyðisfirði sem er
samrekinn leik-, grunn- og listaskóli og þar eru
rúmlega 60 nemendur i grunnskóladeildinni
en leikskóladeildin er 2ja deilda. Hefð er fyrir
metnaðarfullu tónlistarskólastarfi í sveitarfélaginu
og þrír sjálfstæðir tónlistarskólar eru starfandi
og eiga ríka sögu. Á Egilsstöðum er starfrækt
sjálfstætt skólamötuneyti sem sér um hádegisverð
fyrir leik- og grunnskóla á Egilsstöðum og í
2019 - 2022
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar