Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 49
Verkefnastjóri vegna formennsku Íslands
í Norrænu ráðherranefndinni 2022–2023
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf verkefnastjóra í 18 mánuði á skrifstofu ráðuneytisstjóra, vegna formennsku Íslands
í Norrænu ráðherranefndinni 2022–2023. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð,
ábyrgð og sjálfstæði.
Ráðið er í starfið í 18 mánuði frá og með september 2022 til og með febrúar 2024. Starfið heyrir undir skrifstofu ráðuneytisstjóra sem stýrir innra
stefnumótunarstarfi og hefur yfirsýn yfir stefnumótun í málaflokkum ráðuneytisins. Auk þess sér skrifstofan um mannauðsmál, almannatengsl og
upplýsingamál. Þá hefur skrifstofan yfirsýn og annast stefnumótun tengda alþjóðasamstarfi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2021 og er starfshlutfall 100%
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur
rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Upplýsingar um starfið veitir Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri,
kristin@hrn.is og Bjarni Sigurðsson, sérfræðingur, á bjarni.sigurdsson@hrn.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón með fundum og ráðstefnum á vegum ráðherranefndarinnar.
• Undirbúningur funda á vegum embættismannanefndar á sviði
heilbrigðismála.
• Utanumhald um kostnað og uppgjör.
• Önnur verkefni tengd formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni.
• Afgreiðsla stjórnsýsluerinda.
• Samskipti við stofnanir, hagsmunaaðila og einstaklinga.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi.
• Menntun eða reynsla af verkefnastjórnun er skilyrði.
• Góð kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli er skilyrði.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði.
• Reynsla og þekking úr stjórnsýslunni og Norrænu samstarfi er kostur.
• Þekking á heilbrigðismálum er kostur.
• Góð kunnátta í ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Sveigjanleiki, samstarfshæfni, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Verkefnastjóri í áætlunargerð
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling til að sinna
verkefnastjórnun á sviði áætlunargerðar.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og
Dagbjört Una Helgadóttir (dagbjort@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega.
• Þróun og vinnslu áætlana fyrir þróunar-, hönnunar- og
byggingarverkefni NLSH
• Fjárhags- og gagnagreiningar verkefna á vegum NLSH
• Skráningu verkefna í áætlunargerðarhugbúnað
• Uppbyggingu gagnagrunna
• Frum- og áhættumat hönnunar- og framkvæmdaverkefna
• Vinnslu verkefnaáætlana fyrir stærri framkvæmda- og
umbreytingaverkefni
• Stuðning við áætlanagerð annarra fagsviða NLSH
• Utanumhald kostnaðarbanka
Við leitum að aðila til að annast m.a.:
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) tekur m.a. þátt í verkefnastjórn á þróunar-, hönnunar- og framkvæmdaverkefnum vegna
húsnæðis Landspítala Háskólasjúkrahúss sem og uppbyggingu nýbygginga, gatnagerðar og lóðar við nýjan Landspítala
við Hringbraut. Félagið, sem er að fullu í eigu ríkisins, er í samstarfi við fjölmarga hagsmunaaðila m.a. stjórnvöld,
Landspítalann, Framkvæmdasýsluna-Ríkiseignir, Háskóla Íslands, sjúklingasamtök, Reykjavíkurborg og Ríkiskaup. Fjöldi
ráðgjafa starfar fyrir og með NLSH. Nánari upplýsingar um NLSH má finna á www.nlsh.is.
• Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. verk- eða
tæknifræði, verkefnastjórnun, arkitektúr, hag- eða
viðskiptafræði
• Reynslu af áætlunargerð, tíma- og fjárhagslegri
stýringu verkefna
• Reynslu af greiningarvinnu og tölfræðilegri úrvinnslu
• Þekkingu á kostnaðargreiningu og spálíkönum
• Reynslu á sviði framkvæmda og/eða fasteignaþróunar
• Þekkingu á opinberri stjórnsýslu og þátttöku í gæða-
og verkefnastjórnun (kostur)
• Góða hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til
þátttöku í öflugu teymi
Mikilvægt er að viðkomandi hafi: