Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 56
Jarðboranir er leiðandi hátæknifyrirtæki á heimsvísu sem sérhæfir sig í djúpborunum eftir jarðhita. Félagið á og rekur flota
hátæknibora og er með starfsemi víðsvegar um heiminn. Nánari upplýsingar um fyrirtækið er að f inna á www.jardboranir.is.
Upplýsingar um starf ið veitir Torfi Pálsson, mannauðsstjóri í síma 585-5290 eða torfip@jardboranir.is.
Sækja skal um starfið á www.jardboranir.is fyrir 21. mars næstkomandi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Vélfræði, vélstjórn eða sambærileg menntun
• Gott vald á ensku
• Reynsla af viðhaldi og viðgerðum stórra tækja og/eða vinnuvéla
• Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í krefjandi starfsumhverfi
• Sjálfstæð, traust og vönduð vinnubrögð
VÉLSTJÓRI
Jarðboranir leita að öflugum aðila í starf vélstjóra. Um er að ræða
krefjandi og spennandi starf á framkvæmdasvæðum við djúpboranir
eftir jarðhita sem og aðrar borframkvæmdir, hér á landi og erlendis.
Helstu verkefni vélstjóra eru viðhald og viðgerðir véla og tækjabúnaðar
sem tilheyrir borflota félagsins. Um er að ræða vökvakerfi,rafbúnað,
loftþrýstikerfi sem og annan búnað. Viðkomandi kemur til með að sinna
vaktavinnu.
Sérfræðingur í sjálfbærni
Matvælaráðuneytið er öflugt ráðuneyti þar sem
mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar,
matvæla, landgræðslu og skógræktar.
Í starfi ráðuneytisins er áhersla lögð á sjálfbærni,
jöfnuð og nýsköpun. Í ráðuneytinu er góð liðsheild
og starfsmenn vinna að því að skapa þeim mála-
flokkum sem undir ráðuneytið heyra skilvirkt og
ábyrgt starfsumhverfi.
Skrifstofa sjálfbærni vinnur að málefnum verndunar
og sjálfbærni á landi og í hafi, hringrásarhagkerfi,
loftslagsmálum og endurheimt vistkerfa á málefna-
sviðum ráðuneytisins.
Við leitum af sérfræðingi sem getur borið ábyrgð
á verkefnum á sviði líffræðilegrar fjölbreytni lands
og sjávar og býr yfir góðum hæfileikum til að eiga
samstarf við fjölbreytta hópa. Starfið felur einnig
í sér stefnumótun á málefnasviði ráðuneytisins.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun með meistaragráðu á sviði vist-
fræði, umhverfis- og auðlindamála eða sambæri-
legu sviði
• Góð þekking á sviði vistfræði, bæði lands og sjávar
• Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er kostur
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu
og riti
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Reynsla af samráði og stefnumótun í umhverfis og
auðlindamálum er kostur
Allar nánari upplýsingar og frekari hæfniskröfur
er að finna á www.starfatorg.is
Umsóknarfrestur er til 28. mars nk.
Matvælaráðuneytið
Fyrirtæki
ársins
2021