Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 62

Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 62
Skólastjóri Grunnskóla Seltjarnarness seltjarnarnes.is Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga með víðtæka þekkingu og skýra framtíðarsýn á starfsemi grunnskóla til að leiða nemendur, starfsfólk og foreldra í öflugu skólastarfi. Virðing – Ábyrgð – Vellíðan Seltjarnarnesbær auglýsir lausa stöðu skólastjóra við Grunnskóla Seltjarnarness. Í skólanum eru um 580 nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla (1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.- 10. bekkur). Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru virðing – ábyrgð – vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Skólinn er í miklu samstarfi við Frístundamiðstöð Seltjarnarness um lengda viðveru barna í 1.-4. bekk og félagsmiðstöðina Selið, Tónlistarskóla Seltjarnarness og íþróttafélagið Gróttu. Helstu verkefni og ábyrgðarsvið • Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar á skólastarfi í samræmi við lög og reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Seltjarnarnesbæjar. • Stjórnun og ábyrgð á rekstri skólans og daglegri starfsemi. • Ábyrgð á starfsmannamálum. • Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins. Menntunar og hæfniskröfur • Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum. • Reynsla af faglegri forystu í kennslu og/eða þróunar í skólastarfi. • Leyfi til að nota starfsheitið kennari. • Menntun á sviði stjórnunar. • Kennslureynsla á grunnskólastigi. • Reynsla í starfsmannastjórnun og rekstri. Umsókn um starfið skal fylgja leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og gögn sem staðfesta frekari menntun, ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ. Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar - undir seltjarnarnes.is –Störf í boði. Þar má einnig finna ítarlegri kynningu á starfinu og Grunnskóla Seltjarnarness. Ráðið verður í stöðuna f.o.m. 1. ágúst 2022. Umsóknarfrestur er t.o.m. 28. mars 2022. Upplýsingar um starfið veitir Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Setjarnarnesbæjar, baldur@seltjarnarnes.is Spennandi tímar eru framundan í skólamálum á Seltjarnarnesi, þar sem menntastefna sveitarfélagsins er nú til endurskoðunar og íbúaþing um skólamál verður haldið 2. apríl nk. Á Seltjarnarnesi er lögð áhersla á að reka skóla í fremstu röð þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið skólastarf, sem byggir á góðu starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að mæta þörfum nemenda, ýta undir hæfileika þeirra og auka trú á eigin getu. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Lögð er áhersla á samvinnu milli skólanna, samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi þar sem góð líðan er í fyrirrúmi. Erum við að leita að þér? Aton.JL er leiðandi fyrirtæki í samskiptaráðgjöf og vinnur að því að móta heildstæða stefnu í sam­ skiptum fyrirtækja og stofnana. Við leitum að ráðgjafa til að sinna fjölbreyttum verkefnum í ráðgjöf og stefnumótun. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæð/ ur í vinnubrögðum, sýna framúr­ skarandi samskiptahæfni, og vera mjög fær í textavinnu. Mikil vægt er að viðkomandi búi yfir góðri greiningar hæfni og hæfni til að lesa úr tölulegum upplýsingum. Helstu verkefni: _ Greiningarvinna _ Skýrslugerð _ Skipulögð upplýsingamiðlun _ Stefnumótandi ráðgjöf _ Textavinna Hæfniskröfur: _ Háskólamenntun sem nýtist í starfi _ Reynsla sem nýtist í starfi ↳ kostur er ef viðkomandi býr yfir reynslu úr stjórnsýslu _ Áreiðanleiki, metnaður, samskiptahæfni, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð _ Hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku Við hvetjum hæfileikaríkt fólk af öllum kynjum til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 15. mars. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarlegt kynningarbréf og starfsferilsskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Fyrirspurnir skulu berast Sif Jóhannsdóttur, sif@atonjl.is. Sótt er um starfið á alfred.is. Greinandi ráðgjöf og skýr samskipti Tryggvagata 10 __ 101 Reykjavík __ atonjl.is 22 ATVINNUBLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.