Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 62
Skólastjóri Grunnskóla
Seltjarnarness
seltjarnarnes.is
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga með víðtæka þekkingu og skýra framtíðarsýn á starfsemi
grunnskóla til að leiða nemendur, starfsfólk og foreldra í öflugu skólastarfi.
Virðing – Ábyrgð – Vellíðan
Seltjarnarnesbær auglýsir lausa stöðu skólastjóra við Grunnskóla Seltjarnarness. Í skólanum eru um 580
nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla (1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.-
10. bekkur). Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki.
Einkunnarorð skólans eru virðing – ábyrgð – vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið.
Skólinn er í miklu samstarfi við Frístundamiðstöð Seltjarnarness um lengda viðveru barna í 1.-4. bekk og
félagsmiðstöðina Selið, Tónlistarskóla Seltjarnarness og íþróttafélagið Gróttu.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Fagleg forysta á sviði kennslu og þróunar á
skólastarfi í samræmi við lög og reglugerðir,
aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu
Seltjarnarnesbæjar.
• Stjórnun og ábyrgð á rekstri skólans og daglegri
starfsemi.
• Ábyrgð á starfsmannamálum.
• Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins.
Menntunar og hæfniskröfur
• Leiðtogahæfileikar og færni í mannlegum
samskiptum.
• Reynsla af faglegri forystu í kennslu og/eða
þróunar í skólastarfi.
• Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
• Menntun á sviði stjórnunar.
• Kennslureynsla á grunnskólastigi.
• Reynsla í starfsmannastjórnun og rekstri.
Umsókn um starfið skal fylgja leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og gögn sem staðfesta frekari menntun,
ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ.
Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar - undir
seltjarnarnes.is –Störf í boði. Þar má einnig finna ítarlegri kynningu á starfinu og Grunnskóla Seltjarnarness.
Ráðið verður í stöðuna f.o.m. 1. ágúst 2022. Umsóknarfrestur er t.o.m. 28. mars 2022.
Upplýsingar um starfið veitir Baldur Pálsson, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Setjarnarnesbæjar, baldur@seltjarnarnes.is
Spennandi tímar eru framundan í skólamálum á Seltjarnarnesi, þar sem menntastefna sveitarfélagsins er nú til
endurskoðunar og íbúaþing um skólamál verður haldið 2. apríl nk.
Á Seltjarnarnesi er lögð áhersla á að reka skóla í fremstu röð þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið
skólastarf, sem byggir á góðu starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að mæta þörfum nemenda, ýta undir hæfileika
þeirra og auka trú á eigin getu. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila
er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Lögð er áhersla á samvinnu milli
skólanna, samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi þar sem góð líðan er í fyrirrúmi.
Erum við
að leita
að þér?
Aton.JL er leiðandi fyrirtæki í
samskiptaráðgjöf og vinnur að því
að móta heildstæða stefnu í sam
skiptum fyrirtækja og stofnana.
Við leitum að ráðgjafa til að sinna
fjölbreyttum verkefnum í ráðgjöf
og stefnumótun.
Viðkomandi þarf að vera sjálfstæð/
ur í vinnubrögðum, sýna framúr
skarandi samskiptahæfni, og vera
mjög fær í textavinnu. Mikil vægt
er að viðkomandi búi yfir góðri
greiningar hæfni og hæfni til að
lesa úr tölulegum upplýsingum.
Helstu verkefni:
_ Greiningarvinna
_ Skýrslugerð
_ Skipulögð upplýsingamiðlun
_ Stefnumótandi ráðgjöf
_ Textavinna
Hæfniskröfur:
_ Háskólamenntun sem
nýtist í starfi
_ Reynsla sem nýtist í starfi
↳ kostur er ef viðkomandi býr
yfir reynslu úr stjórnsýslu
_ Áreiðanleiki, metnaður,
samskiptahæfni, skipulögð
og sjálfstæð vinnubrögð
_ Hæfni í tjáningu í ræðu og riti,
á íslensku og ensku
Við hvetjum hæfileikaríkt fólk af
öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til
og með 15. mars.
Umsókn um starfið þarf að
fylgja ítarlegt kynningarbréf og
starfsferilsskrá þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
Fyrirspurnir skulu berast Sif
Jóhannsdóttur, sif@atonjl.is.
Sótt er um starfið á alfred.is.
Greinandi ráðgjöf
og skýr samskipti
Tryggvagata 10 __ 101 Reykjavík __ atonjl.is
22 ATVINNUBLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR