Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 73

Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 73
Almennt er talið að líkaminn þarfnist 13 mismunandi teg- unda vítamína ásamt því að ýmis bætiefni geta haft jákvæð áhrif á mannslíkamann. YOS og Anabox eru tvær ólíkar en frábærar vörur sem hjálpa þér að halda skipulagi og muna eftir þínum nauð- synlegu lyfjum, vítamínum eða bætiefnum dagsdaglega. Það er grundvallaratriði að muna eftir því að innbyrða nauðsynleg lyf, vítamín og bætiefni dag hvern. Heldur algengt er að margir hverjir gleymi að taka inn sína daglegu skammta í amstri dagsins, en því er mikilvægt að skipuleggja sig vel og notast við áhrifaríkar leiðir til að muna eftir öllu því nauðsynlega fyrir jafnt líkamlega sem og and- lega heilsu. Vítamín eru nauðsynleg fyrir eðlilega líkamsstarfsemi Flest erum við meðvituð um það að vítamín tilheyra þeim hópi nauðsynlegra næringarefna sem líkaminn þarfnast í litlu magni fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Virkni vítamína á líkamsstarf- semina eru margvísleg og hafa þau ýmist áhrif á ónæmiskerfið, meltingu, vöxt og viðhald. Hvert vítamín gegnir sérhæfðu hlutverki fyrir líkamann en meginhlutverk þeirra er að taka þátt í stjórnun efnaskipta líkamans. Almennt er talið að líkaminn þarfnist 13 mis- munandi tegunda vítamína ásamt því að ýmis bætiefni geta haft jákvæð áhrif á mannslíkamann. Mikilvægt er að neyta fjölbreyttrar fæðu til þess að fá þau mikilvægu vítamín sem mannslíkaminn þarf á að halda en oft og tíðum er þörf á vítamínum í formi bætiefna. Fituleysanleg og vatnsleysanleg vítamín Vítamín skiptast upp í tvo flokka, fituleysanleg og vatnsleysanleg vítamín. Munurinn byggir helst á hvernig líkaminn frásogar víta- mínin, flutning þeirra og geymslu. Fituleysanleg vítamín eru A-, E-, K- og D-vítamín en ef neytt er umfram þörf safnast þau fyrir í líkamanum og getur líkaminn notað þau síðar. Vatnsleysanleg vítamín eru B1-, B2-, B3-, B6-, B12-, C-vítamín og fólínsýra (B9). Ef líkaminn fær stærri skammta af þessum vítamínum losar hann sig við umfram magn með þvagi þar sem þau varðveitast ekki í líkam- anum og þarf því að neyta þeirra oftar en fituleysanlegra. Hvernig manst þú eftir þínum vítamínum og bætiefnum? Fjölmargir kannast við að vera alltaf á ferðinni og gleyma að taka inn nauðsynleg vítamín og bæti- efni. YOS eru ótrúlega handhægar 375 ml vatnsflöskur sem innihalda fjögurra hólfa vítamínbox og eru gerðar úr endurvinnanlegu efni sem setja má í uppþvottavélina. Með YOS flöskunni slærð þú tvær flugur í einu höggi, flaskan hjálpar þér að muna eftir vítamínum ásamt því að drekka vatn sem er nauðsyn- legt fyrir okkur og gerir alla daga betri. Flöskurnar eru fáanlegar í fimm einstökum litum, bleikum, bláum, grænum, gulum og gráum. Anabox vikuskammtabox er annar frábær kostur til þess að muna eftir bætiefnunum. Boxin eru í þægi- legri stærð sem eru hentug í veskið eða töskuna en þau koma að auki í fjölmörgum litum og geta því allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Allt það helsta á einum stað Mikilvægt er að skipuleggja sig vel svo ekki gleymist að taka inn nauðsynleg bætiefni í amstri dags- ins. Hvort sem hentar þér vatns- flaska eða vikuskammtari, eru hólfin þannig gerð að þau henta þínum ráðlögðu dagskömmtum. Hólfin í f löskunni og í boxunum rúma öll þau nauðsynlegu vítamín sem þörf er á dags daglega. n Með YOS flösku eða Anabox viku- skammtara gleymir þú ekki þínum daglegu skömmtum sem hafa jákvæð áhrif á þína heilsu. Sölustaðir fyrir Anabox eru apótek, Fjarðarkaup og Heimkaup. Sölustaðir fyrir Yos eru apótek, Fjarðarkaup og Nettó. Gott skipulag er lykillinn að góðum degi Yos vatnsflaska með vítamínboxi. Anabox eru falleg lyfja- og vítamínbox sem innihalda 7 box, eitt fyrir hvern dag vikunnar. Boxin fást í fjórum litum; bleikum, grænum, bláum og hvítum. PROBI® vörurnar fást í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum. Það eru ekki allir mjólkursýrugerlar eins! PROBI:MAGE® söluhæstir í Svíþjóð, frábærar móttökur á Íslandi. Góðgerlar og vítamín tuggutöflur með það að markmiði að styðja við eðlilega virkni ónæmiskerfisins. Inniheldur fólasín, D-vítamín og B-12 Vítamín. Bragðgóðar tuggutöflur fyrir alla fjölskylduna. Inniheldur einn af mest rannsökuðu mjólkursýrugerlum heims sem á hafa verið gerðar yfir 50 klínískar rannsóknir. PROBI® FAMILY PROBI® MAGE Vinnur gegn lágum járngildum. Auk járns inniheldur varan einnig fólasín og C-vítamín sem eykur upptöku járns. Hentar á meðgöngu og viðbrjósagjöf. PROBI® JÁRN kynningarblað 7LAUGARDAGUR 12. mars 2022 heilsur ækt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.