Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 73
Almennt er talið að
líkaminn þarfnist
13 mismunandi teg-
unda vítamína ásamt
því að ýmis bætiefni
geta haft jákvæð áhrif á
mannslíkamann.
YOS og Anabox eru tvær
ólíkar en frábærar vörur sem
hjálpa þér að halda skipulagi
og muna eftir þínum nauð-
synlegu lyfjum, vítamínum
eða bætiefnum dagsdaglega.
Það er grundvallaratriði að muna
eftir því að innbyrða nauðsynleg
lyf, vítamín og bætiefni dag hvern.
Heldur algengt er að margir hverjir
gleymi að taka inn sína daglegu
skammta í amstri dagsins, en því
er mikilvægt að skipuleggja sig vel
og notast við áhrifaríkar leiðir til
að muna eftir öllu því nauðsynlega
fyrir jafnt líkamlega sem og and-
lega heilsu.
Vítamín eru nauðsynleg fyrir
eðlilega líkamsstarfsemi
Flest erum við meðvituð um það
að vítamín tilheyra þeim hópi
nauðsynlegra næringarefna sem
líkaminn þarfnast í litlu magni
fyrir eðlilega líkamsstarfsemi.
Virkni vítamína á líkamsstarf-
semina eru margvísleg og hafa
þau ýmist áhrif á ónæmiskerfið,
meltingu, vöxt og viðhald. Hvert
vítamín gegnir sérhæfðu hlutverki
fyrir líkamann en meginhlutverk
þeirra er að taka þátt í stjórnun
efnaskipta líkamans. Almennt er
talið að líkaminn þarfnist 13 mis-
munandi tegunda vítamína ásamt
því að ýmis bætiefni geta haft
jákvæð áhrif á mannslíkamann.
Mikilvægt er að neyta fjölbreyttrar
fæðu til þess að fá þau mikilvægu
vítamín sem mannslíkaminn þarf
á að halda en oft og tíðum er þörf á
vítamínum í formi bætiefna.
Fituleysanleg og
vatnsleysanleg vítamín
Vítamín skiptast upp í tvo flokka,
fituleysanleg og vatnsleysanleg
vítamín. Munurinn byggir helst
á hvernig líkaminn frásogar víta-
mínin, flutning þeirra og geymslu.
Fituleysanleg vítamín eru A-, E-,
K- og D-vítamín en ef neytt er
umfram þörf safnast þau fyrir í
líkamanum og getur líkaminn
notað þau síðar. Vatnsleysanleg
vítamín eru B1-, B2-, B3-, B6-, B12-,
C-vítamín og fólínsýra (B9). Ef
líkaminn fær stærri skammta af
þessum vítamínum losar hann sig
við umfram magn með þvagi þar
sem þau varðveitast ekki í líkam-
anum og þarf því að neyta þeirra
oftar en fituleysanlegra.
Hvernig manst þú eftir þínum
vítamínum og bætiefnum?
Fjölmargir kannast við að vera
alltaf á ferðinni og gleyma að taka
inn nauðsynleg vítamín og bæti-
efni. YOS eru ótrúlega handhægar
375 ml vatnsflöskur sem innihalda
fjögurra hólfa vítamínbox og eru
gerðar úr endurvinnanlegu efni
sem setja má í uppþvottavélina.
Með YOS flöskunni slærð þú tvær
flugur í einu höggi, flaskan hjálpar
þér að muna eftir vítamínum ásamt
því að drekka vatn sem er nauðsyn-
legt fyrir okkur og gerir alla daga
betri. Flöskurnar eru fáanlegar í
fimm einstökum litum, bleikum,
bláum, grænum, gulum og gráum.
Anabox vikuskammtabox er annar
frábær kostur til þess að muna eftir
bætiefnunum. Boxin eru í þægi-
legri stærð sem eru hentug í veskið
eða töskuna en þau koma að auki í
fjölmörgum litum og geta því allir
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Allt það helsta á einum stað
Mikilvægt er að skipuleggja sig
vel svo ekki gleymist að taka inn
nauðsynleg bætiefni í amstri dags-
ins. Hvort sem hentar þér vatns-
flaska eða vikuskammtari, eru
hólfin þannig gerð að þau henta
þínum ráðlögðu dagskömmtum.
Hólfin í f löskunni og í boxunum
rúma öll þau nauðsynlegu vítamín
sem þörf er á dags daglega. n
Með YOS flösku eða Anabox viku-
skammtara gleymir þú ekki þínum
daglegu skömmtum sem hafa
jákvæð áhrif á þína heilsu.
Sölustaðir fyrir Anabox eru
apótek, Fjarðarkaup og Heimkaup.
Sölustaðir fyrir Yos eru apótek,
Fjarðarkaup og Nettó.
Gott skipulag er lykillinn að góðum degi
Yos vatnsflaska með vítamínboxi.
Anabox eru falleg lyfja- og vítamínbox sem innihalda 7 box, eitt fyrir hvern dag vikunnar. Boxin fást í fjórum litum; bleikum, grænum, bláum og hvítum.
PROBI® vörurnar fást í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum.
Það eru ekki allir mjólkursýrugerlar eins!
PROBI:MAGE® söluhæstir í Svíþjóð, frábærar móttökur á Íslandi.
Góðgerlar og vítamín
tuggutöflur með það
að markmiði að styðja
við eðlilega virkni
ónæmiskerfisins. Inniheldur
fólasín, D-vítamín og
B-12 Vítamín.
Bragðgóðar tuggutöflur fyrir
alla fjölskylduna.
Inniheldur einn af
mest rannsökuðu
mjólkursýrugerlum heims
sem á hafa verið gerðar yfir
50 klínískar rannsóknir.
PROBI® FAMILY PROBI® MAGE
Vinnur gegn lágum
járngildum. Auk járns
inniheldur varan einnig
fólasín og C-vítamín sem
eykur upptöku járns.
Hentar á meðgöngu
og viðbrjósagjöf.
PROBI® JÁRN
kynningarblað 7LAUGARDAGUR 12. mars 2022 heilsur ækt