Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 74
Það hefur klárlega
hjálpað mér í
endurhæfingunni að
vera dugleg að hreyfa
mig og æfa mig.
Ellen Helga Steingrímsdóttir
Ellen Helga Steingrímsdóttir
æfir Taekwondo og CrossFit
af fullum krafti. Þegar hún
greindist með þriðja stigs
brjóstakrabbamein fyrir
ári síðan lét hún það ekki
stoppa sig og tók beltapróf í
miðri meðferð.
sandragudrun@frettabladid.is
Ellen er hjúkrunarfræðingur
á Barnaspítalanum og fram-
kvæmdastjóri Neistans, styrktar-
félags hjartveikra barna. Þegar hún
greindist með brjóstakrabbamein
í fyrra var aðeins eitt í stöðunni. Að
halda áfram að hreyfa sig.
„Ég greinist í febrúar í fyrra með
þriðja stigs brjóstakrabbamein
og byrja í lyfjameðferð. Ég reyni
að æfa eins og ég get á meðan og
tek beltapróf í apríl og tek rauða
beltið,“ upplýsir hún, en hún æfir
Taekwondo hjá Mudogym.
Ellen segir að beltapróf séu alltaf
erfið en hún var harðákveðin í
því að taka prófið og láta krabba-
meinið ekki stoppa sig.
„Ég ákvað það um leið og ég
fékk greiningu að ég ætlaði ekki
að hætta að æfa. Ég æfi mig eins
mikið og ég get. Þetta er svolítið
eins og mín geðlyf, hreyfingin.
Það hefur klárlega hjálpað mér í
endurhæfingunni að vera dugleg
að hreyfa mig og æfa mig. En ég æfi
líka CrossFit í CrossFit Reykjavík
og fór líka í Ljósið í ræktina þar,“
segir hún.
„Það koma alveg vikur þar sem
ég dett alveg út. Ég er alveg þar
núna, bara út af verkjum get ég
varla hreyft mig. En það er gott
við CrossFit-ið að þar get ég séð
æfinguna daginn áður og ef það er
einhver brjálæðislega erfið æfing
þá geri ég eitthvað annað í staðinn.
Finn mér þá bara léttari æfingar.“
Finnur æfingar sem henta
Ellen er núna að byggja upp fyrri
styrk hægt og rólega. Hún fór í
brjóstaskurðaðgerð og geisla sem
hún kláraði í nóvember, og er í við-
haldsmeðferð sem lýkur í lok apríl.
„Ég er svolítið á núllpunkti núna
að byggja mig aftur upp. En ég
byrja þá bara á léttustu hringjun-
um. Allir þjálfarar sem ég hef haft,
bæði Taekwondo-þjálfarinn minn
og CrossFit-þjálfararnir hafa verið
yndislegir og leyft mér að gera allt
á mínum hraða,“ segir hún.
„Áður en ég byrjaði í CrossFit
var ég í Boot Camp og ég er með
svo góðan grunn þaðan að ég veit
sirka hvaða æfingar ég get gert til
að taka sömu vöðvahópa og hinir
og ég er alls ekki feimin við að taka
léttari lóð og breyta æfingunni
svo hún henti mér. Ég get til dæmis
ekki gert armbeygjur af því það
var skorið við brjóstið, en ég geri
þá bara eitthvað annað í staðinn,“
segir hún og bætir við að hún hafi
líka nýtt sér þjálfarana í Ljósinu og
farið í tíma þar, þar sem farið er í
liðleika- og styrktaræfingar eftir
brjóstaskurðaðgerð.“
Ellen segist ekki alla tíð hafa
verið mikil íþróttamanneskja, en
hún byrjaði í Boot Camp 25 ára og í
CrossFit fyrir fjórum árum, en hún
er 34 ára í dag.
„Sem unglingur og þangað til
ég byrjaði í Boot Camp var ég alls
ekki íþróttamanneskja. En ég æfði
Taekwondo sem barn og mig hefur
alltaf langaði að klára að svarta
beltinu. Það hefur alltaf setið í mér
að hafa það óklárað. En ég stefni
á að taka það á næsta ári, ég á tvö
beltapróf í viðbót eftir að svarta
beltinu,“ útskýrir hún.
Stuðningurinn ómetanlegur
Ellen segir að það hafi alveg bjargað
sér að æfa í gegnum meðferðina
og stuðningurinn og peppið frá
æfingafélögunum kom henni mjög
langt.
„Ég hefði ekki getað þetta án
þeirra. En núna er endurhæfingin
byrjuð á fullu og ég stefni á að koma
enn sterkari til baka. ITS næringar-
þjálfun er að hjálpa mér mikið með
að endurheimta orkuna mína aftur
svo ég geti æft og byggt mig aftur
upp. En það er næringarþjálfun
sem byggir á að borða rétt hlut-
föll af næringarefnum og skrá þau
undir umsjón og með stuðningi frá
þjálfurum, en þau heita Ingi Torfi
og Linda Rakel og hafa líka stutt
mikið við bakið á mér. Allur þessi
stuðningur er svo ómetanlegur og
mikilvægur í þessu ferli,“ segir hún.
„Ég var alltaf ákveðin í að leggjast
ekki í rúmið. Það er það versta sem
maður getur gert. Maður getur
alltaf gert eitthvað. Ég ætla ekki
að láta þetta stoppa mig. Höldum
áfram! Það er mottóið mitt.“ n
Ég ætla ekki að láta þetta stoppa mig
Ellen kláraði beltapróf í Taekwondo í miðri krabbameinsmeðferð. MYND/AÐSEND
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
8 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt