Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 76
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg
@frettabladid.is
Vilborg Arna Gissurardóttir
er liðsmaður ÍKLÍF, nýlegs
kvennaliðs Íslands í fjalla-
mennsku. Liðið stefnir til
Himalæjafjalla í haust.
„Þetta verkefni kveikir alveg rosa-
lega í mér og ég get ekki lýst því
hversu mikið ég hlakka til að fara
með íslenskum stelpnahópi í fjalla-
leiðangur í Himalæjafjöllin og
prófa að upplifa háfjallamennsku
með vinkonum og jafningjum.
Ég hef auðvitað kynnst stelpum í
fjallamennsku um allan heim en
þetta verður alveg „extra special“,“
segir ævintýrakonan, fjallaleið-
sögumaðurinn og pólfarinn Vil-
borg Arna Gissurardóttir.
Vilborg er liðsmaður íslenska
kvennaliðsins í fjallamennsku
(ÍKLÍF), en að honum stendur
hópur þrettán íslenskra fjalla-
kvenna sem vinna að því að gera
háfjallaleiðangur í Himalæja að
veruleika í haust.
„ÍKLÍF er verkefni að erlendri
fyrirmynd, sem ég kynntist í
gegnum manninn minn. Hug-
myndafræðin er þekkt og byggir
á hópastarfi í fjallamennsku þar
sem einstaklingar innan hópsins
fá tækifæri til að efla hæfni sína,
þekkingu og reynslu, þannig að úr
verður sterkari liðsheild þar sem
allir njóta sín,“ útskýrir Vilborg.
Ytra starfa slík fjallamennskulið
undir íþrótta- og Ólympíusam-
böndum, en ekki enn hér heima.
„Okkur langaði að heimfæra
þessa hugmynd hérlendis. Úti er
gjarnan horft á þennan vettvang
fyrir unga og upprennandi fjalla-
menn en við ákváðum að taka
kvennavinkilinn á þetta. Meðlimir
ÍKLÍF hafa samanlagt yfir 150 ára
reynslu af fjallamennsku og viljum
við setja gott fordæmi og verða
fyrirmyndir fyrir ungar konur
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
greininni,“ segir Vilborg.
Fallegt að vera saman í liði
Með tíð og tíma verður ÍKLIF
opinn félagsskapur þar sem fleiri
en þessar þrettán í stofnliðinu geta
eflt sig innan fjallamennskunnar.
„Við horfum til krefjandi ferða
þar sem við þjálfum okkur saman
til að takast á við verkefnið. Það
sem er svo fallegt við að vera í liði
er að fólk kemur inn með mis-
munandi styrkleika og í liði er
horft til þess að allir styrkleikar
fái notið sín. Við erum alltaf að
skoða hvernig við getum orðið
öflugri í okkar fagi en horfum líka
á menntun, þekkingu og reynslu
innan fjallamennskunnar. Í liðinu
eru öflugar og kröftugar stelpur
sem hafa menntað sig og kenna
Fjallaferðir með öðrum skapa djúpa vináttu
Vilborg Arna
segir mikilvægt
að búa til vett-
vang sem ÍKLÍF
er, svo þekking
og reynsla
kvenna í fjalla-
mennsku skili
sér til komandi
kynslóða.
MYND/ÁSTA KRIST-
JÁNSDÓTTIR
ÍKLÍF-konur á
Svínafellshrygg
þar sem þetta
gat er í kletti og
útsýnið út um
það og allt um
kring stórfeng-
legt. Lóma-
gnúpur í fjarska.
MYND/AÐSEND
í fjallamennskunámi og margar
hafa tengingar við fjallaleiðsögn.
Þá eru í hópnum hjúkrunarkonur
og bráðaliði, sem er mikilvægt
fyrir okkur á ferð í óbyggðum.“
Vilborg segir vaxandi áhuga
kvenna á fjallamennsku og æ fleiri
konur að stíga upp til að leiða
slíkar ferðir.
„Við viljum að reynsla okkar
og þekking færist áfram til þeirra
sem vilja taka þátt í verkefninu
og taka við keflinu seinna meir.
Hugmyndafræðin að baki er sú
að reynsla sem myndast færist
áfram og að í liðinu sé stuðningur
og félagsskapur. Það er mikilvægt
að koma þekkingu til framtíðar,
og dýrmætt að geta leitað í slíkan
viskubrunn; það fann ég sjálf þegar
ég fór af stað á sínum tíma, en þá
upplifði ég mig mjög eina. Nú er
þetta sem betur fer breytast. Við
sáum það í stóru kvennaferðinni á
Hvannadalshnjúk í fyrra og var ein-
stök upplifun að eingöngu konur
sáu um fjallaleiðsöguna. Það hefði
verið erfitt þegar ég var að byrja
í mínum fyrstu ferðum, en nú fer
kvenleiðsögumönnum fjölgandi og
á sama tíma búum við til menn-
ingarvettvang þar sem þær geta
komið til að þjálfa sig og takast á
við leiðangra í framtíðinni.“
Óvenjuleg nálgun á Himalæja
Hægt er að sækja um að vera með í
næsta leiðangri ÍKLÍF og taka þátt í
undirbúningsvinnunni.
„Konur þurfa þó að hafa bak-
grunn í fjallamennsku, til dæmis úr
Íslenska alpaklúbbnum, björgunar-
sveitunum eða fjallaleiðsögunámi.
Það er fullt af frábærum stelpum að
gera mjög flotta hluti þarna úti en
með því að búa til þennan vettvang
horfum við til framtíðar íslenskra
fjallakvenna. Við komum til með að
bjóða upp á ferðir og vekja athygli
á fagmennsku og menntun í fjalla-
leiðsögn, fjallamennsku og ýmsum
málum þeim tengdum,“ upplýsir
Vilborg Arna.
„Við erum lið og lið vinna saman.
Við skiptum með okkur verkum í
hópastarfi. Þannig velur einn hópur
búnað, annar vinnur í kringum
leiðangurinn, þá er hjúkrunar-
hópur og einn sem heldur utan um
viðburði,“ segir Vilborg og bætir við
að mikill spenningur sé fyrir fyrsta
stóra leiðangri ÍKLÍF til Himalaya-
fjalla í haust.
„Við stefnum á Himalæja en
erum ekki alveg tilbúnar að opin-
bera hvert viðfangsefnið nákvæm-
lega verður. Óhætt er að segja að
það verður mjög spennandi og
óvenjuleg nálgun. Ég hlakka mikið
til og persónulega er starfið okkar
í ÍKLIF mikil hvatning fyrir mig til
að gera enn betur, æfa mig og halda
mér við efnið.“
Með páskaegg á Grænlandsjökli
Fjallamennska er ástríða hjá Vil-
borgu.
„Markmiðasetning er heillandi
og alltaf gaman að verða aðeins
betri í hvaða sporti sem er; þegar
maður horfir á nýja klifurleið og
þarf að þjálfa hæfni sína, styrk og
kjark til að geta tekist á við verk-
efnið. Slíkt er líka hægt að spegla
á lífið sjálf og við sameinumst í að
efla hvora aðra í nýjum áskor-
unum,“ segir Vilborg.
Hún hefur farið ein síns liðs um
langan veg, eins og á Suðurpólinn
árið 2012 til 2013 og árið eftir á
topp sjötta hæsta fjalls heims,
Cho Oyu í Tíbet.
„En að upplifa slíkar ferðir með
öðrum skapar svo djúpa vináttu.
Að fara í gegnum þjálfunarferlið
og hlutina saman. Við fjallastelp-
urnar tölum líka um tilfinningar,
eins og kjark og þor, því frammi
fyrir nýjum áskorunum finnum
við, eins og allir aðrir, ótta eða
óvissu. Það þarf ekki endilega að
vera háfjallaleiðangur, kannski
bara ný leið sem er einni gráðu
erfiðari og kallar á að maður
stækki þægindahringinn og vaxi í
sinni grein.“ n
Sjá meira á iklif.is
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Í ÞÍNU BESTA FORMI
HEIMA Í STOFU
Æfingatæki, rúllur, lóð og boltar
10 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt