Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 78
Ókeypis og áhugaverður fyrirlestur.
starri@frettabladid.is
VIRK, Embætti landlæknis og
Vinnueftirlit ríkisins bjóða upp
á morgunfund um heilsueflandi
vinnustaði í streymi miðviku-
daginn 16. mars kl. 8.30-10.
Yfirskrift fundarins er Heilsu-
eflandi forysta og vellíðan í starfi,
og er fyrirlesari dr. Sigrún Gunn-
arsdóttir, hjúkrunarfræðingur og
prófessor í Viðskiptafræðideild
Háskóla Íslands og formaður Þekk-
ingarseturs um þjónandi forystu.
Morgunfundurinn er sá níundi
í fundaröðinni um heilsueflingu
á vinnustöðum og er hluti af sam-
starfi VIRK, Embættis landlæknis
og Vinnueftirlitsins, um heilsuefl-
ingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið samstarfsins er að
stuðla að betri heilsu og vellíðan
vinnandi fólks á vinnustöðum,
fyrirbyggja kulnun og minnka
brottfall af vinnumarkaði.
Í erindinu verður kynnt tillaga
að líkani sem byggir á sannreyndri
þekkingu um heilsueflandi forystu
með heildrænni nálgun, sem eflir
heilbrigt starfsumhverfi og vel-
líðan þar sem áhersla er á 1) sjálf-
ræði og gagnkvæman stuðning; 2)
persónulegan styrk og innri starfs-
hvöt og 3) sameiginlegan tilgang
og skýra ábyrgðarskyldu.
Streymið verður aðgengilegt á
vefsíðum stofnananna. n
Nánari upplýsingar á virk.is.
Heilsueflandi
forysta og
vellíðan í starfi
Dagleg hreyfing eykur líkur á hreysti
á efri árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
thordisg@frettabladid.is
Regluleg hreyfing er mikilvæg til
að viðhalda líkamlegri og andlegri
getu og vellíðan. Raunhæf mark-
mið, hæfilegur stígandi í álagi og
góð beiting líkamans, eru dæmi
um atriði sem einkenna hreyfingu
sem heilsurækt. Óraunhæfar
væntingar, of mikið álag og röng
beiting líkamans stuðla hins vegar
að meiðslum og vanlíðan.
Samkvæmt opinberum ráð-
leggingum um hreyfingu ættu
fullorðnir að stunda miðlungs-
erfiða hreyfingu í minnst 30
mínútur á dag, en tímanum má
skipta yfir í nokkur styttri tímabil
yfir daginn, til dæmis 10 til 15
mínútur í senn.
Með því að hreyfa sig lengur
eða með meiri ákefð er mögulegt
að bæta heilsuna enn frekar. Til
viðbótar er því æskilegt að full-
orðnir stundi erfiða hreyfingu að
minnsta kosti tvisvar í viku, í 20 til
30 mínútur í senn. Það bætir enn
frekar þol, vöðvastyrk, liðleika,
jafnvægi og beinheilsu, og eykur
líkur á hreysti á efri árum.
Æskilegast er að stunda reglu-
lega hreyfingu alla ævi en það er
aldrei of seint að byrja. Mikilvæg-
ast er takmarka tíma sem varið
er í kyrrsetu og velja fjölbreytta
hreyfingu í samræmi við getu og
áhuga. Hreyfing í góðum félags-
skap er hvetjandi fyrir marga. n
HEImILd: HEILsuvERA.Is
Hreyfing viðheldur góðri heilsu og vellíðan
Veggtennis trónir á toppnum á lista
Forbes. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sandragudrun@frettabladid.is
Samkvæmt Forbes er vegg-
tennis heilnæmasta íþrótt í heimi.
Forbes talaði við einkaþjálfara,
íþróttakennara og íþrótta-
fræðinga og bjó út frá því til lista
yfir tíu íþróttir sem taldar voru
heilnæmastar út frá hjarta- og
öndunarþoli, vöðvastyrk, vöðva-
þoli, liðleika, brennslu hitaeininga
á 30 mínútum og meiðslahættu.
Samkvæmt Forbes er ástæða þess
að veggtennis skarar fram úr sú að
í hálftíma leik næst fram ótrúlega
góð þjálfum á hjarta- og öndunar-
þoli. Sífelld hlaup bæta þol og
vöðvastyrk í neðri hluta líkamans
og veggtennis getur líka aukið
liðleika í bakinu vegna stöðugra
snúninga í leiknum. Þannig að
veggtennis er góð hugmynd fyrir
þau sem vilja stunda heilsubæt-
andi íþrótt. n
Veggtennis er
besta íþróttin
Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík
Líkamsrækt, sjúkraþjálfun, sálfræðingar og sérfræðilæknar - allt á einum stað
Heilsuklasinn er líkamsrækt fyrir alla
Konur og karlar, ungir og gamlir, hraustir og veikir - skiptir ekki máli.
Allir njóta góðs af reglulegri heilsurækt og því eru allir velkomnir í
Heilsuklasann. Hjá okkur færðu faglega þjálfun út frá þínum kröfum
og þínum væntingum. Sama þjálfunin hentar ekki fyrir alla og því
leitum við eftir því að finna þá þjónustu sem hentar þér best.
- heilbrigt samfélag
12 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt