Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 90
Góðar hugmyndir eru
þannig að maður gleymir
þeim ekki þótt maður
skrifi þær ekki niður.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Sigurðardóttir
Sólheimum 25,
lést á Landspítalanum 7. mars.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 16. mars kl. 15.
Kristín Petersen Renato Gruenenfelder
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, afi og sonur,
Árni Þorgilsson
frá Sökku, Svarfaðardal,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ
föstudaginn 4. mars.
Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
laugardaginn 19. mars klukkan 13.30.
Þökkum innilega starfsfólkinu á Dalbæ fyrir einstaka
umönnun og alúð.
Birkir Árnason Sigurður Óli Árnason
Elsa Borg Sveinsdóttir Helga Svala Sigurðardóttir
Ísafold Esja Birkisdóttir
Arney Elísabet Birkisdóttir Þorgils Gunnlaugsson
Hrafnkatla Eir Birkisdóttir Olga Steingrímsdóttir
Við sendum hjartans þakkir fyrir
auðsýnda samúð og hlýhug við andlát
og útför föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Steinþórs Ingvarssonar
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu
á Hlíðarbæ og á Droplaugarstöðum fyrir
framúrskarandi umönnun í erfiðum veikindum.
Sigurður I. Steinþórsson
Gunnar Steinþórsson Ágústa Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar yndislegi
Hjörvar Rögnvaldsson
f. 29.07.1975
varð bráðkvaddur á heimili sínu í
Gateshead, Newcastle, 16. febrúar sl.
Útför hefur farið fram.
Susannah Marie Ceska
Kristín Magnúsardóttir Hafsteinn Hafsteinsson
Magnús Rögnvaldsson Gunnlaug Gissurardóttir
Gunnar H. Hafsteinsson Lára H. Snorradóttir
Hjördís Björnsdóttir
Rögnvaldur Jóhannesson Soffía Jakobsdóttir
Jakob R. Austmann Andrea H. Austmann
Eyþór Rögnvaldsson Daniela Padrón
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Ingibjörg Sólbjört
Guðmundsdóttir
frá Litla-Kambi á Snæfellsnesi,
síðast til heimilis að Gullsmára 11,
lést í faðmi fjölskyldunnar á hjúkrunarheimilinu Grund
1. mars. Útförin fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 16. mars klukkan 13.
Svanborg Birna Guðjónsdóttir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir Guðjón Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Skúli Sigurðsson
vélfræðingur,
Smárarima 102, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 2. mars.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju miðvikudaginn
16. mars, kl. 13.00. Athöfninni verður einnig streymt á
www.streyma.is
Anna Dýrfjörð
M. Stella Skúladóttir Þorgeir Pétursson
Skúli Skúlason Kristín Björnsdóttir
Signý S. Skúladóttir Ómar Þorsteinsson
Guðmundur K. Thoroddsen Halldóra Elíasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Oddsteinn Runólfur
Kristjánsson
Hvammi í Skaftártungu,
lést sunnudaginn 6. mars sl. á
hjúkrunarheimilinu Klausturhólum.
Útför hans fer fram frá Grafarkirkju
laugardaginn 19. mars kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á að láta Hjúkrunarheimilið Klausturhóla,
Kirkjubæjarklaustri, njóta þess. Athöfninni verður
útvarpað í bíla við kirkjuna og upptaka verður á
Facebook-síðu Kirkjubæjarklaustursprestakalls.
Gunnar Kristján Oddsteinsson Sigurbjörg Kristín Óskarsd.
Inga Björt H. Oddsteinsdóttir Brandur Jón H. Guðjónss.
Kristbjörg Elín Oddsteinsdóttir Tryggvi Agnarsson
Páll Símon Oddsteinsson Jónína Jóhannesdóttir
og fjölskyldur.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Þóra Helgadóttir
frá Seljalandsseli,
lést á dvalarheimilinu Grund
föstudaginn 4. mars. Útförin fer fram
17. mars frá Garðakirkju klukkan 13.
Helga Herbertsdóttir Guðmundur Þ. Halldórsson
Henný Júlía Herbertsdóttir Reynir Sigurjónsson
Ágústa Benný Herbertsdóttir
Gunnar Herbertsson Sigrún Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Páll Örvar Garðarsson
lést á líknardeild Landspítalans,
fimmtudaginn 3. mars.
Útför hans fer fram frá Seltjarnarnes-
kirkju, mánudaginn 21. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð
en þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið.
Guðfinna Kaldalóns Pálsdóttir Inge Henriksen
Helgi Hrafn Pálsson
Anna Margrét Jóhannsdóttir
Einar Örn Jóhannsson
Jórunn Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulega rósin okkar,
Elínrós Kristín
Guðmundsdóttir
Kirkjubraut 5, Innri-Njarðvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 4. mars. Útförin fer fram
frá Innri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn
18. mars klukkan 13.
Guðlaugur Guðjónsson
Kristjana E. Guðlaugsdóttir Erlingur J. Leifsson
Ingibjörg Jóna Guðlaugsdóttir Þorsteinn Jónsson
Una Guðlaugsdóttir Eðvald Heimisson
Rannveig Erla Guðlaugsdóttir Leó Ingi Leósson
barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu.
38 Tímamót 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Sálfræðitryllirinn Kverkatak er
nýjasta verk Kára Valtýssonar.
Hann fullvissar lesendur um að
þótt þeir séu báðir lögfræðingar
eigi hann fátt sameiginlegt með
söguhetjunni.
arnartomas@frettabladid.is
„Þetta er í rauninni bók sem ég byrjaði
að hugsa um fyrir sjö árum og var byrj-
aður að vinna í þá,“ segir rithöfundur-
inn og lögmaðurinn Kári Valtýsson
um nýjustu bók sína, Kverkatak, sem
gefin var út á dögunum af bókaútgáf-
unni Hringaná. „Ég skrifaði svo tvær
bækur í millitíðinni en þessi bók var
alltaf að malla í undirmeðvitundinni.
Góðar hugmyndir eru þannig að maður
gleymir þeim ekki þótt maður skrifi
þær ekki niður.“
Vafasöm vegferð
Kári segist aldrei hafa verið ánægður
með hvernig bókin kom út en ákvað
fyrir tveimur árum að hugmyndin væri
það góð að hann gaf sig allan í að skrifa
hana alveg upp á nýtt. Hugmyndin að
baki bókinni segir Kári vera klassísku
spurninguna: „Hvað ef?“
„Mig langaði að skoða hvað gerist
ef ráðsettur lögmaður í Vesturbænum
kemur sér í vandræði, þarf að grafa lík
og takast á við af leiðingar þess,“ segir
hann. „Lesandinn fylgist með þessum
lögfræðingi sem hefur í rauninni allt en
er samt óánægður. Hann lendir reyndar
í miklu áfalli í bókinni og í sorginni
knýr grái fiðringurinn dyra. Þegar ung
kona byrjar að vinna í fyrirtækinu þar
sem hann vinnur tekur við vægast sagt
vafasöm vegferð.“
Sum sé, miðaldra lög fræðingur á
besta stað í lífinu sem leiðist út í tryll-
ingslega myrka atburðarás. Þurfa vinir
þínir og vandamenn að hafa einhverjar
áhyggjur, Kári?
„Nei, það er ekki þannig, og sem
betur fer byggir hann ekki á mér,“ segir
Kári og skellir upp úr. „Í rauninni er það
eina sem við eigum sameiginlegt að við
erum báðir lögfræðingar og hann er jú
líka frá Akureyri eins og ég. En sem
betur fer stoppa okkar líkindi þar! Ég er
í raun bara að stytta mér leiðir og skrifa
um það sem ég þekki. Ef hann væri frá
Raufarhöfn hefði ég þurft að setja mig
inn í staðhætti þar. “
Harðsoðinn stíll
Með sálfræðitryllinum Kverkataki
breytir Kári aðeins til frá fyrri verkum
sínum, vestrunum Hefnd frá árinu 2018
og Heift frá 2019.
Eru þetta keimlík verk?
„Flæðið er kannski með svipaðri
myndrænni áferð. Stíllinn er samt öðru
vísi og útgefandi minn lýsti honum
sem „harðsoðnum“,“ segir Kári. „Bókin
er sögð í fyrstu persónu og í nútíð og
það breytir strax aðeins hvernig sagan
er sögð. En ég vona samt að stíllinn sé
nógu svipaður til að fólk sjái hver hafi
skrifað hana – að ég sé að finna mér ein-
hvers konar rödd.“ n
Hægeldaður tryllir
Kverkatak er þriðja bók Kára Valtýssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI