Fréttablaðið - 31.03.2022, Síða 14
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð
ve
rð
ge
tu
r b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
Costa del Sol
20. apríl í 10 nætur
Bajondillo Apartments
595 1000 www.heimsferdir.is
Flug & hótel frá
97.675
10 nætur
Verð frá kr.
99.200
aaaa
Ég varð fimmtugur hinn 8. janúar
síðastliðinn. Þannig er ég orðinn
miðaldra karl, gagnkynhneigður,
miðaldra karl. Ég hef aldrei efast um
kynhneigð mína, en ég er hugsi. Ég er
hugsi yfir þeim óskráðu samfélags-
reglum, sem mér ber að hlíta. Ein af
þeim óskráðu reglum hljóðar þannig
að ég eigi ekki að setja á mig bleikt
naglalakk. Fyrir nokkrum árum
valdi ég að brjóta þá reglu og geng því
um með bleikt naglalakk, þegar mér
sýnist. Ég er að vinna á leikskóla og
mér finnst mikilvægt að börnin sjái
að miðaldra karl eins og ég hafi þetta
val um að setja á sig bleikt naglalakk.
Og óskráðu samfélagsreglurnar,
sem mér ber að hlýða, eru f leiri.
Þegar ég var lítill drengur horfði ég
með mikilli aðdáun á snyrtidótið
hennar mömmu. Mér fannst eitt-
hvað svo heillandi að sjá ilmvötnin
hennar og allar snyrtivörurnar. Það
heillaði mig sérstakega að sjá varalit-
ina. Ég man hvað mig langaði mikið
til að reyna þessar snyrtivörur, en ég
vissi að það var alveg forboðið. Ég
var meðvitaður um að litlar stúlkur
áttu ekki að setja á sig varalit og aðrar
snyrtivörur, einungis eldri stúlkur,
en fyrir drengi var það algjörlega
bannað. Það sögðu samfélagsregl-
urnar og ég átti að gera eins og þær
sögðu.
Það var síðan á unglingsárunum,
sem mig langaði oft til að setja á
mig snyrtivörur eins og jafnaldra
stúlkur. Og þrátt fyrir að löngunin
væri sterk, lét ég ekki verða af því.
Samfélagsreglurnar sögðu mér að
það væri útilokað. Þetta var eitthvað,
sem unglingsstrákar gerðu aldrei og í
raun máttu ekki gera. Mér er í fersku
minni hvað ég öfundaði stúlkurnar
af að mega setja á sig varalit, púður,
naglalakk, augnskugga og f leira.
Þetta var allt svo litríkt og þetta var
allt svo spennandi. Og fyrir mig var
þetta óheimilt. Ég velti fyrir mér öllu
aðkastinu, sem ég yrði fyrir ef ég
reyndi til að mynda að varalita mig.
Þetta voru samfélagsreglurnar.
Og núna er ég orðinn miðaldra
karl. Og ég spyr mig að því af hverju
gagnkynhneigður, miðaldra karl
eins og ég megi ekki setja á sig vara-
lit, naglalakk, maskara, augnskugga
og fleira. Ég fæ ekkert svar. Það er
vegna þess að það er ekkert svar.
Þetta er vitleysa. Ég segi að gagn-
kynhneigður, miðaldra karl eins og
ég megi setja á sig naglalakk og vara-
lit. Ég segi að hann megi setja á sig
maskara, augnskugga og púður.
Ég set á mig bleikt naglalakk. Og
fyrir nokkru síðan fór ég í verslunina
Stellu í Bankastræti og keypti mér
varalit, hárauðan varalit. Ég valdi
þann lit af því að ég vil segja: „Ég má
þetta.“ Og ég er farinn að ganga um
með rauðan varalit; bleikt naglalakk
og rauðan varalit. Og ég keypti mér
maskara og augnabrúnablýant. Ég á
eftir að kaupa mér fleiri gerðir af lit-
ríkum varalit, ég á eftir að kaupa mér
augnskugga og púður. Já, sem gagn-
kynhneigður, miðaldra karl á ég eftir
að gera margt fleira skemmtilegt.
En hvað með samfélagsreglurnar?
Ég hugsa til litla drengsins Eiðs og
unglingsins Eiðs þegar ég reyni að
leggja mitt af mörkum til að breyta
þeim. ■
Karlmaður með varalit
Hólmsteinn
Eiður
Hólmsteinsson
starfsmaður á
leikskóla
Sögulega réttlætingu á ofríki Rússa
gagnvart Úkraínu má rekja til hug-
myndarinnar um hið mikla Rúss-
land sem mótaðist í Moskvuríki
á 14.-16. öld. Kenning þessi á sér
nokkrar meginstoðir. Hin fyrsta
kveður á um að Moskvuríki eigi til-
kall til þeirra landa sem áður heyrðu
undir Kænugarð og Rús. Útþenslu
Moskvuríkis voru engin takmörk
sett – ekki frekar en útþenslu rúss-
neska heimsveldisins eða Sovétríkj-
anna síðar meir. Þessi gegndarlausa
útþensla var afsprengi tatarskrar
eða mongólskrar stjórnsýslu sem
byggði á lóðréttum valdastrúktúr:
aðal khaninn var sá sem allir
greiddu skatt, á hann reiddi fólk sig
í skilyrðislausri undirgefni. Stjórn-
sýsla Rússlands hefur í aðalatriðum
verið rekin með sama hætti fram á
þennan dag.
Önnur meginforsenda hins
mikla Rússlands grundvallast á trú.
Kristnitakan átti sér stað á jöðrum
Rússlands, í Kænugarði. Trúin varð í
auknum mæli að valdatæki á 17. öld,
samfara útþenslu Moskvuríkis til
vesturs. Á þessu skeiði glötuðu úkra-
ínsk svæði sínum höfuðstað og lönd
í Hvíta-Rús, að megninu til grísk-
kaþólsk, voru þvinguð undir vald-
svið rétttrúnaðarins með höfuð-
stöðvar sínar í Moskvu. Í hönd fóru
aldir þar sem trúarstofnanir urðu
boðberar kenningarinnar um hið
mikla Rússland, hina þríeinu þjóð
[þ.e. Rússland, Hvít-Rús og Úkraínu
– aths. þýð.], krýningu nýrra keisara
og innlimun landsvæða sem áður
tilheyrðu Hvíta-Rús og Úkraínu. Þá
voru flestallir klerkar og meðlimir
sveitarstjórna (zemstvo) rússnesku-
mælandi.
Þriðja meginstoðin undir hið
mikla Rússland fólst í krýningu keis-
arans. Á 14.-18. öld mótaðist sú hug-
mynd að rekja mætti keisaraveldið
aftur til rómversks ellegar býsansks
uppruna. Sú hugmynd umbreyttist
í kenninguna um hina þriðju Róm
sem bæri að endurreisa – frá mærum
Kænugarðs til hinnar mikilfenglegu
„rússnesku“ þjóðar. Eins þótt þessi
hugmynd hafi tekið breytingum í
aldanna rás hefur hún eigi að síður
lifað af hrun Sovétríkjanna og þjón-
ar enn í dag sem vegvísir að hinni
útvöldu braut Rússlands – hinnar
þríeinu þjóðar, sameiginlegrar sögu
hennar og sameiginlegrar kirkju.
Hugmyndin um þriðju Róm teng-
ist með beinum hætti úkraínsku
svæðunum. Kristnitakan í Kænu-
garði, helgir gripir og Rús – þetta er
allt saman langt í burtu frá Moskvu,
eða við bakka Dnípro-fljótsins.
Þrátt fyrir langvarandi tilburði
rússneskra stjórnvalda til innlim-
unar og brenglunar á sögulegum
staðreyndum hafa úkraínsk þjóð-
arbrot ítrekað lýst yfir sjálfstæði.
Í sögulegum heimildum, einkum
vestrænum, er „Rús“ og „Rússland“
iðulega lagt að jöfnu. Vert er að
staldra við þetta atriði: Rússar eru
ekki með beinum hætti skyldir
íbúum Kænugarðs eða Rús. Það er
þetta sem veldur forseta Rússlands
áhyggjum – í þessu sögulega sam-
hengi kristallast áskorunin gagn-
vart Úkraínu, að hans mati.
Vladímír Pútín lítur ekki á Úkra-
ínu sem sjálfstætt ríki. Þetta hefur
ítrekað komið fram opinberlega hjá
rússneskum stjórnvöldum, og eins
á leiðtogafundi NATO í Búkarest
árið 2008. Rússar verja söguskoðun
sína með kjafti og klóm. Samkvæmt
Kreml er Úkraína sýsla sem gert
hefur uppreisn gegn valdamiðjunni,
og nú ríður á að lægja öldurnar.
Opinber niðurlæging og valdbeiting
hefur löngum verið beitt gagnvart
fyrrum Sovétlýðveldum og hér-
uðum rússneska keisaradæmisins.
Lýðfræðilegi þátturinn og lang-
varandi hnignun rússneska þjóðar-
brotsins innan sjálfs Rússlands
tengjast með beinum hætti: Í Kákas-
us hefur orðið sprenging í fæðingar-
tíðni, sem og í vestanverðri Síb-
iríu. Þorp í nágrenni Moskvu týna
tölunni en ekki í Úkraínu. Á ríður
að viðhalda velmegun í Rússlandi
með því að grípa til innlimunar.
Þá rennir her og iðnaður hýru auga
til svæða á borð við Lúgansk, Khar-
kív, Dnípro, Saporísjía og Kænu-
garðs. Í Odesu er lykilhöfn að Svarta-
hafi. Rússar hafa ekki yfir stöndugri
höfn að ráða á þessum slóðum:
Höfnin í Novorossísk er klemmd á
milli sjávar og lægri fjallshryggja
Kákasuss; umferð um hafnarsvæðið
er takmörkuð á haustin og veturna
sakir sterkra vinda frá skógunum.
Hvers vegna er Pútín jafn hel-
tekinn af sögunni og raun ber
vitni? Án efa er það vegna þess að
þannig getur hann skýrt fyrir mér,
þér og Rússum að ofríki Rússa eigi
sér sögulega réttlætingu. Lýsingar
Pútíns á klofinni þjóð sem beri að
sameina skilgreinir Úkraínumenn
sem tala rússnesku – í krafti þeirrar
Rússa-væðingar sem átt hefur sér
stað – sem Rússa. Þessi aðferð gerir
honum kleift að viðhalda málstað
hinnar þríeinu þjóðar sem tilheyri
einu og sama ríkinu. Á fundi örygg-
isráðsins í Rússlandi varð enn eina
ferðina ljóst að rússneska elítan lítur
ekki á Úkraínu sem sjálfstætt ríki.
Undir því falska flaggi að Lenín hafi
búið til Úkraínu leitast Pútín við að
réttlæta fyrir forréttindastéttum
og Rússum almennt að Úkraína sé
gerviríki sem hafi engan tilverurétt.
Staðan sem verið hefur uppi á
teningnum frá árinu 2014 er liður
í sögu sem rekja má aftur til hruns
rússneska keisaraveldisins og
valdatöku bolsévika. Í þeim hildar-
leik naut Úkraína ekki stuðnings
Vesturlanda; hún var berskjölduð
gagnvart nágranna sínum í austri. Í
hönd fóru tímar þar sem þjóðin stóð
af sér þrjár hungursneyðir, hund-
ruð þúsunda urðu landflótta, vett-
vangi menntamanna var sundrað og
úkraínsk tunga var enn eina ferðina
bönnuð.
Hið tvísýna stríð sem Rússar heyja
gegn Úkraínu hófst 24. febrúar 2022.
Enda þótt stríðið kunni að dragast
á langinn má ljóst heita að breyting
hefur orðið á úkraínsku samfélagi.
Meira að segja í rússneskumæl-
andi héruðum mætir árásarliðið
mótstöðu og mótmælum þar sem
úkraínski fáninn er reiddur á loft.
Rússland hefur beðið ósigur í upp-
lýsingastríðinu en ekki er útséð um
hernaðarlega eða pólitíska útkomu
stríðsins. Ef veldi Pútíns fellur mun
það hafa dómínóáhrif á geópólit-
ískar umbreytingar í fyrrum Sovét-
lýðveldum. Þess vegna reynir Rúss-
land með öllum tiltækum ráðum
að snúa gangi stríðsins sér í hag, en
hefur ekki unnið neina skjótfengna
sigra. ■
Af hverju ræðst Rússland á Úkraínu?
Er Kreml flækt í hjól sögunnar?
Sergii Iaromenko
dósent við Hag-
fræðiháskóla
Odesu í Úkraínu
Geta sveitarfélaga til að ráðast í
framkvæmdir og bæta þjónustu
ræðst af stöðu bæjar- eða borgar-
sjóðs. Ef sveitarfélög standa sterk,
geta þau staðið fyrir kraftmiklum
fjárfestingum þegar á þarf að
halda. Reykjavík, sem langstærsta
og langöflugasta sveitarfélag lands-
ins, hefur á undanförnum árum
gefið kröftuglega í hvað varðar
framkvæmdir, því við höfum haft
möguleikana til þess. Fjölskyldur,
atvinnulífið og hagkerfið allt hefur
þurft á innspýtingu og stuðningi að
halda og við því var brugðist.
Hægt er að sjá, af hve mikilli festu
var brugðist í samantektum Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga. Á vef
Sambandsins sést að sveitarfélögin
öll og fyrirtæki þeirra stefna að því
að fjárfesta fyrir tæpa 92 milljarða á
þessu ári, umfram það sem þau ætla
að selja af eignum.
Reykjavík stendur fyrir
helmingi fjárfestinga
Fjárfesting Reykjavíkur og fyrir-
tækja hennar 2022 verður, sam-
kvæmt þessu, 49% af heildarfjárfest-
ingum sveitarfélaga. Á sama tíma
eru öll önnur sveitarfélög á höfuð-
borgarsvæðinu með 15% hlut. Þar
er stærst Kópavogur með 7% fjár-
festinga og Garðabær með um 5%,
aðeins minna en framlag Árborgar
til heildarfjárfestinga sveitarfélaga.
Þetta er ekki einsdæmi.
Í fyrra voru fjárfestingar Reykja-
víkur og fyrirtækja hennar um 57%
af heildarfjárfestingum sveitar-
félaga. Samanlagt framlag sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu til fjár-
festinga, utan Reykjavíkur, var 12%.
Fjármálaráðherra óskaði eftir
því að sveitarfélögin myndu taka
þátt í að halda uppi atvinnulífi og
fjölskyldum landsins, með því að
auka við fjárfestingar. Svo virðist
sem Reykjavík ein hafi hlustað
hér á höfuðborgarsvæðinu og nýtt
stærð sína og krafta til að styðja
við aðgerðir ríkisins til að ýta efna-
hag Íslands upp úr efnahagslegum
öldudal. Á sama tíma virðist sem
ákall Bjarna hafi verið sett fram
fyrir daufum eyrum bæjarstjórna
hér í kring, sem öllum er stjórnað af
Sjálfstæðisflokknum.
Með lægsta skuldahlutfallið
Þegar horft er á skuldahlutfall
borgar- og bæjarsjóða á höfuð-
borgarsvæðinu í fjárhagsáætlunum
2022, er augljóst af hverju það stafar.
Skuldahlutfall borgarsjóðs er mun
lægra en annarra og hefur því meira
rými til fjárfestinga. Hæst verður
hlutfallið á Seltjarnarnesi, 142%. Í
Hafnarfirði verður hlutfallið 135%.
Í Mosfellsbæ verður hlutfallið 124%.
Í Kópavogi verður hlutfallið 122%.
Í Garðabæ verður hlutfallið 120%.
Reykjavík rekur svo hér lestina með
lægsta skuldahlutfall borgar- og
bæjarsjóða, sem verður 114%.
Vegna stöðu sinnar hefur Reykja-
vík haft mikið rými til að fara í skyn-
samar fjárfestingar sem mun bæta
þjónustu og einfalda lífið í borginni.
Við höfum haft rými til að stórauka
framlög til skóla og leikskóla og fara
í stórátak í viðhaldsmálum skóla. Til
að fjárfesta í stafrænni þjónustu sem
mun umbylta allri þjónustu borg-
innar og vísa veginn fyrir önnur
sveitarfélög. Við höfum haft rými
til að fjárfesta með íþróttafélögum
í íþróttamannvirkjum, byggja nýja
sundlaug í Úlfarsárdal, endurhanna
borgarrými og gera umhverfið
okkar allt meira aðlaðandi.
Verkefni á komandi kjörtímabili
Það verða fjölmörg verkefni á næstu
fjórum árum sem þarf að taka
föstum tökum. Við höfum verið í
stórátaki í fjárfestingum. Það átak
á ekki að vara langt inn í verð-
bólgutíma og ef skortur verður hér
á starfsfólki.
Við hófum undirbúning á sölu
á Malbikunarstöðinni Höfða, sem
þarf að klára. Þá er vert að skoða
hvort betra sé að kaupa þjónustu
einkaaðila til að sinna sumum
öðrum verkefnum borgarinnar.
Það á að vera forgangsatriði að
þjónustan sem borgin veitir sé góð
og sinnt af virðingu við borgarbúa.
Það á að skipta minna hver greiðir
þeim starfsmönnum laun og launa-
tengd gjöld. ■
Sterkt sveitarfélag
fjárfestir í þágu íbúa
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
oddviti Viðreisnar
í Reykjavík og for-
maður borgarráðs
14 Skoðun 31. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ