Fréttablaðið - 31.03.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 31.03.2022, Blaðsíða 24
5. febrúar - 22. maí 2022 Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá 12 -17, ókeypis aðgangur. Sjá nánar á www.listasafnarnesinga.is Þú ert kveikjan - Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir Rólon - Magnús Helgason Hringrás - Þórdís Erla Zoëga Buxnadragt - Lóa H. Hjálmtýsdóttir Sýningarstjóri: Erin Honeycutt Safnaráð - Myndlistarsjóður - Uppbyggingarsjóður Suðurlands Litafantasía sem flaggar dramatík „Dramatíski titillinn á sýningunni kemur inn á þá klisju að einn daginn gengur allt upp og maður er besti myndlistarmaður í heimi og svo næsta dag er allt ómögu- legt og mann langar að kveikja í öllu draslinu,“ segir Davíð. „Þessi dramatík er í lífi allra, en lista- maðurinn fær leyfi til að flagga því meira en aðrir. Verkin mín eru abstraktverk með mjög æstum litum en með þessum fundnu verkum læðast inn ljós- myndir af þýskri náttúru og dýrum sem ég reyni að fela með mínu sulli, en það skín smá í gegn, þó að þau sé hálffalin bak við málninguna. En það er ekki neitt sterkt þema eða neitt slíkt, þetta er eiginlega bara litafantasía hjá mér,“ segir Davíð. „Öll verkin bera titla sem eru svolítil vitleysa. Ég gríp bara eitt- hvað úr loftinu, en það er kannski svona pínu akkeri og veitir manni kannski einhvern skrítinn aðgang að verkunum.“ Þróast með efnunum Davíð segist draga innblástur frá öllu í kringum sig. „Það er náttúrulega fegurð og ljótleiki í öllu en þau eru líka innblásin af vinnusemi, að vera á einhverri línu og vera með reynslu af því að vinna með efnin sem ég hef verið að nota. Efnisnotkunin drífur mann áfram og áhugi á að sjá hvað kemur út úr alls kyns tilraunamennsku,“ segir hann. „Þegar maður fær nýtt efni, eins og þessa epoxy-kvoðu sem ég fór að nota eftir að hafa aðstoðað annan listamann, vakna nýir möguleikar sem kveiktu í mér.“ Hvers vegna kýs Davíð að beita óhefðbundnum aðferðum við að búa til verk? „Maður hefur náttúrulega próf- að alls kyns aðferðir, en ástæðan fyrir því að ég nota þetta olíulak og spreyið eru helstu kostir þess. Það er af því að ég vinn í lögum þannig að ég vil að hlutir þorni hratt svo ég get farið að vinna í næstu lögum og vinnuaðferðir mínar hafa í rauninni þróast með kostum og göllum efnisins,“ útskýrir Davíð. „Þegar maður sér möguleikana í efninu heldur maður áfram að þróast með því. Til að byrja með fannst auðvitað öllum öðrum þetta skrítnara en manni sjálfum, en þetta eru ekki neitt exótísk efni, þannig séð.“ Davíð segir að það sé mikil vinna á bak við hverja einustu mynd. „Maður er einhvern veginn alltaf að reyna að finna jafnvægi milli þess að halda í frumdrögin að verkinu og þessum endalausa eltingaleik við að ofskreyta. Þar á milli er eitthvert jafnvægi sem ég er að leita að en stundum gerir maður of mikið og oftast finnst manni maður gera of lítið. Þessi eltingaleikur tekur tíma,“ segir hann. „Þetta eru lítil verk, sem þýðir mikla nákvæmnisvinnu sem getur gert hvern sem er brjálaðan, en einhvern veginn hef ég enda- lausa þolinmæði fyrir þessu.“ Hefur það gott í Stuttgart Davíð hefur unnið og starfað í Stuttgart í fjögur ár en telur líklegt að hann komi einhvern tímann aftur til Íslands. „Heitkona mín er þýsk og bjó á Íslandi í 12 ár. Við bjuggum saman hér á landi en fengum smá Reykja- víkurleiða og ákváðum að fara til Stuttgart í einhvern tíma. En okkur líkar það bara mjög vel og höfum komið okkur vel fyrir. Hún er að byrja í háskóla og ég er með rosa fína vinnustofu og gott umhverfi til að skapa í, svo það er alls kostar óráðið hvenær við komum aftur. Ég finn í beinunum að við komum aftur, en ég get ekki lofað neinu án þess að tala við konuna mína,“ segir hann að lokum og hlær. n 4 kynningarblað 31. mars 2022 FIMMTUDAGURMYNDLIST Á ÍSLANDI Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson opnar í dag sýninguna Mitt litla líf – pappír eða plast, í Hverfis- galleríi, en sýningin stendur yfir til 23. apríl. Sýningin er samansafn af smærri verkum sem Davíð hefur unnið undanfarin þrjú ár og eru meðal annars afrakstur af vinnu hans með ný efni. oddurfreyr@frettabladid.is Davíð Örn Halldórsson er reyndur myndlistarmaður sem hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á Íslandi og víða erlendis á undan- förnum árum, en hann er búsettur og starfar í Stuttgart. Davíð notar frekar óhefðbundnar málunar- aðferðir, en hann hefur málað og spreyjað með mismunandi máln- ingu og efnum á ýmsa fundna hluti og í seinni tíð hefur hann verið að prófa sig áfram með ný efni sem skapa um leið nýja möguleika. Offlæði verka í litla salnum „Ég hef verið að leika mér að því að vinna minni verk undanfarin ár, en ég er að gera svipaða hluti og venjulega, að mála á fundna hluti og fegra þá, það er bara aðeins meiri fjölbreytni í verkunum núna. Það er reyndar stundum erfitt að segja hvað er skissa og hvað er málverk og þegar ég er að vinna í þessum minni verkum er ég alltaf að hugsa til stærri verka,“ segir Davíð og hlær. „En maður hefur komist að því að stærðin skiptir engu, verkin er jafn sterk hvort sem þau eru stór eða lítil. Það spilar líka inn í hvað maður finnur og hversu auðvelt er að flytja hlutina. Þetta er starf síðustu þriggja ára og ég er eiginlega bara að safna saman pappaverkum og þessum fundnu verkum sem eru núna komin í hinar ýmsu stærðir, ásamt því að sýna tilraunir með ný efni eins og epoxy. Gamli draumurinn var að gera alvöru listasýningu í salon-stíl af því að verkin hafa aldrei verið sýnd í Reykjavík,“ segir Davíð. „Ég hef alltaf verið að búa þetta til milli sýninga eða stærri verkefna og mig langaði að safna þeim saman, en ég gerði líka alveg 25 ný verk fyrir þessa sýningu og alls eru þetta næstum 60 myndir. Fyrir vikið get ég haft offlæði af verkum og þess vegna lagði ég til við Hverfisgallerí að fá að sýna í stofunni hjá þeim, sem er aðeins minni en aðalsalurinn. En sá salur er mjög glæsilegur og það hræðir mig eiginlega að vera að hengja upp í hann,“ segir Davíð. „Það er svo önnur sýning í fremri salnum frá Krot & Krass hópnum og tíma- setningin virkaði af því að mig langaði að fá innri salinn. Vonandi vinnur mitt litabrjálæði vel með hinni sýningunni.“ Fegrar fundna hluti á óhefðbundinn hátt Davíð Örn Halldórsson var að opna nýja sýningu með næstum 60 myndum í Hverfisgallerí. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Davíð vildi setja upp alvöru listasýningu í salon-stíl og hafa offlæði af verkum. Verk Davíðs eru abstraktverk með mjög æstum litum en ljósmyndir af þýskri náttúru og dýrum læðast líka inn. MYND/AÐSEND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.