Fréttablaðið - 31.03.2022, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 31.03.2022, Blaðsíða 48
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Einhverja afdrifaríkustu ákvörðun lífs míns tók ég haustið 1988. Eftir að hafa púað sígarettur í einhverjar vikur ákvað ég að nú skyldi ég gera þetta almennilega og taka ofan í mig reykinn. Í kjölfarið fann ég fyrir miklum svima og ógleði en ég lét það ekki stoppa mig og hélt ótrauður áfram og var nokkrum vikum síðar orðin líkamlega, andlega og tilfinningalega háður nikótíni. Tíu árum síðar, 1998, þá verðandi faðir, prófaði ég að hætta að reykja í fyrsta sinn. Eftir eins árs reykbind- indi taldi ég það góða hugmynd að halda upp á áfangann með einum smávindli. Það hliðarspor stóð stutt yfir og innan skamms var ég skít- fallinn. Svona gekk þetta næsta ára- tuginn. Ég hætti í einhverja mánuði en tók síðan ranga ákvörðun og bauð tóbakinu aftur upp í dans með ömurlegum afleiðingum. Samband mitt og nikótíns tók þó breytingum árið 2012 þegar ég var í norskri flugstöð og upp- götvaði að þar væri stranglega bannað að reykja. Í fráhvörfunum birtist lausnin. Norska fríhöfnin seldi sænskt munntóbak. Ég keypti strax dós og tróð feitri lummu undir efri vör. Tilfinningin sem helltist yfir mig var slík að ég keypti samstundis 10 dollur til viðbótar sem ég smyglaði til Íslands. Við tók tímabil af munntóbaksnotkun og ég lagði sígarettur að mestu á hilluna. Munntóbaki fylgir engin lykt og hægt er að taka það hvar og hvenær sem er. Með gular tennur og efri vör sem leit út eins og ég hefði verið kýldur ásamt sívaxandi og stöðugum aðfinnslum konu minnar tók ég loks þá ákvörðun að hætta í ársbyrjun 2020. Eftir 33 ára samband með sígarettum, munn- tóbaki og nikótíntyggjói hef ég lært eftirfarandi. Nikótínfíknin sefur en fer aldrei. Ekki reyna að dansa við hana. n Nikótín Tilboðsverð Gem Gem 310 gasgrill frá Broil King. Þrír brennarar úr ryðfríu stáli, grillgrindur úr steypujárni og grillkerfi með ryðfríu Flav- R-Wave™ grillkerfi. Rafstýrður Sure-Lite™- kveikibúnaður og felliborð á hliðum. 39.916 50657519 Almennt verð: 49.895 -20% 6,8 Kílóvött 3 Brennarar Sumarið er rétt handan við hornið Tilboðsverð Royal Þriggja brennara grill frá Broil King með þremur ryðfríum Dual-Tube™ brennurum, og postulínshúðuðum grillgrindum sem hægt er að snúa við. Í lokinu á grillinu er innbyggður hitamælir og hliðarhillur sem hægt er að leggja niður. 55.595 50657513 Almennt verð: 85.595 -36% 8,8 Kílóvött 3 Brennarar Tilboðsverð Monarch Þriggja brennara grill frá Broil King með þremur ryðfríum Dual-Tube™ brennurum, og postulínshúðuðum grillgrindum sem hægt er að snúa við. Það er innbyggður hitamælir á grillinu og hliðarhillur sem hægt er að setja niður. 71.988 50657511 Almennt verð: 89.985 -20% 8,8 Kílóvött 3 Brennarar Tilboðsverð Signet Signet 320 gasgrill með þremur brennurum úr ryðfríu stáli, postulínshúðaðar grillgrindur og grillkerfi með ryðfríum Flav- R-Wave™ bragðburstum og fellanlegum hliðarborðum. 105.276 50657506 Almennt verð: 131.595 -20% 11,4 Kílóvött 3 Brennarar Verslaðu á netinu byko.is Ö ll ve rð e ru b ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi llu r og /e ða m yn da br en gl . HRINGINN OPIÐ ALLAN SÓLAR- Á GRANDA OG Í MJÓDD Fermingar- skraut Faxafeni 11, 108 Reykjavík www.partybudin.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.