Fréttablaðið - 31.03.2022, Qupperneq 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Einhverja afdrifaríkustu ákvörðun
lífs míns tók ég haustið 1988. Eftir
að hafa púað sígarettur í einhverjar
vikur ákvað ég að nú skyldi ég gera
þetta almennilega og taka ofan
í mig reykinn. Í kjölfarið fann ég
fyrir miklum svima og ógleði en
ég lét það ekki stoppa mig og hélt
ótrauður áfram og var nokkrum
vikum síðar orðin líkamlega,
andlega og tilfinningalega háður
nikótíni.
Tíu árum síðar, 1998, þá verðandi
faðir, prófaði ég að hætta að reykja í
fyrsta sinn. Eftir eins árs reykbind-
indi taldi ég það góða hugmynd að
halda upp á áfangann með einum
smávindli. Það hliðarspor stóð stutt
yfir og innan skamms var ég skít-
fallinn. Svona gekk þetta næsta ára-
tuginn. Ég hætti í einhverja mánuði
en tók síðan ranga ákvörðun og
bauð tóbakinu aftur upp í dans
með ömurlegum afleiðingum.
Samband mitt og nikótíns tók
þó breytingum árið 2012 þegar
ég var í norskri flugstöð og upp-
götvaði að þar væri stranglega
bannað að reykja. Í fráhvörfunum
birtist lausnin. Norska fríhöfnin
seldi sænskt munntóbak. Ég keypti
strax dós og tróð feitri lummu
undir efri vör. Tilfinningin sem
helltist yfir mig var slík að ég keypti
samstundis 10 dollur til viðbótar
sem ég smyglaði til Íslands. Við
tók tímabil af munntóbaksnotkun
og ég lagði sígarettur að mestu á
hilluna. Munntóbaki fylgir engin
lykt og hægt er að taka það hvar og
hvenær sem er. Með gular tennur
og efri vör sem leit út eins og ég
hefði verið kýldur ásamt sívaxandi
og stöðugum aðfinnslum konu
minnar tók ég loks þá ákvörðun að
hætta í ársbyrjun 2020. Eftir 33 ára
samband með sígarettum, munn-
tóbaki og nikótíntyggjói hef ég lært
eftirfarandi. Nikótínfíknin sefur en
fer aldrei. Ekki reyna að dansa við
hana. n
Nikótín
Tilboðsverð
Gem
Gem 310 gasgrill frá Broil King.
Þrír brennarar úr ryðfríu stáli, grillgrindur
úr steypujárni og grillkerfi með ryðfríu Flav-
R-Wave™ grillkerfi. Rafstýrður Sure-Lite™-
kveikibúnaður og felliborð á hliðum.
39.916
50657519
Almennt verð: 49.895
-20%
6,8
Kílóvött
3
Brennarar
Sumarið er rétt
handan við hornið
Tilboðsverð
Royal
Þriggja brennara grill frá Broil King með
þremur ryðfríum Dual-Tube™ brennurum, og
postulínshúðuðum grillgrindum sem hægt er að
snúa við. Í lokinu á grillinu er innbyggður hitamælir
og hliðarhillur sem hægt er að leggja niður.
55.595
50657513
Almennt verð: 85.595 -36%
8,8
Kílóvött
3
Brennarar
Tilboðsverð
Monarch
Þriggja brennara grill frá Broil King með
þremur ryðfríum Dual-Tube™ brennurum, og
postulínshúðuðum grillgrindum sem hægt er að
snúa við. Það er innbyggður hitamælir á grillinu
og hliðarhillur sem hægt er að setja niður.
71.988
50657511
Almennt verð: 89.985 -20%
8,8
Kílóvött
3
Brennarar
Tilboðsverð
Signet
Signet 320 gasgrill með þremur
brennurum úr ryðfríu stáli,
postulínshúðaðar grillgrindur
og grillkerfi með ryðfríum Flav-
R-Wave™ bragðburstum og
fellanlegum hliðarborðum.
105.276
50657506
Almennt verð: 131.595
-20%
11,4
Kílóvött
3
Brennarar
Verslaðu á netinu byko.is
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
llu
r
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.
HRINGINN
OPIÐ ALLAN
SÓLAR-
Á GRANDA
OG Í MJÓDD
Fermingar-
skraut
Faxafeni 11,
108 Reykjavík
www.partybudin.is