Fréttablaðið - 31.03.2022, Page 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Valdís Sigurgeirsdóttir er flug-
freyja og segir að eitt af vandamál-
unum við að fljúga sé að loftið um
borð getur orðið þurrt og húðin
vilji þorna mikið. „TARAMAR
vörurnar hafa virkað sérstak-
lega vel fyrir mig og ég nota bæði
dagkremið og næturkremið til að
halda góðum raka í húðinni. Ég
hef einnig notað augnkremið og
upplifi það á mjög jákvæðan hátt.
Kremið hefur svo mikil og góð
áhrif á húðina, lyftir henni og lýsir
upp allt augnsvæðið. Mér finnst öll
þessi krem mjög góð undir farða
og ekki er verra að þau eru svo
hrein og gerð úr íslensku vatni og
jurtum.“
Vildarklúbbur TARAMAR
TARAMAR vildarklúbburinn er
mjög sérstakt fyrirbæri í íslenskri
sprotamenningu. Í dag eru rúm-
lega 4.000 manns í klúbbnum og
á hverjum degi bætast við 10-40
manns. Frábær vildarkjör fylgja
með inngöngu í klúbbinn en inn-
ritun, sem er ókeypis, fer fram á
vefsíðu TARAMAR (taramar.is).
Við inngöngu fá vildarklúbbsmeð-
limir 5.000 punkta (hver punktur
er 1 króna) sem þeir geta notað
strax til að kaupa vörur hjá fyrir-
tækinu, segir Viðar Garðarsson
markaðsstjóri TARAMAR. „Hug-
myndin með vildarklúbbnum er
að gefa þeim Íslendingum sem
nota TARAMAR vörunar tæki-
færi á að fylgjast með þróun og
nýsköpun hjá félaginu sem og að
vinna sér inn vildarkjör sem veita
afslætti allt að 48%. Þannig hækka
afslættirnir úr 15% (bronz aðild
þegar kaup síðustu 12 mánaða
hafa náð 25.000 krónum) í 25%
(silfur aðild) og 40% (gull aðild
þegar kaup síðustu 12 mánaða ná
150.000 krónum).“
Auk þessa fá viðskiptavinir
vildarpunkta í hvert skipti sem
þeir versla en þeir nema 2-8%
af kaupverðinu, að sögn Viðars.
„Þessir punktar leggjast inn á
vörslureikning vildarklúbbsmeð-
lima, sem þeir geta síðan notað
næst þegar þeir versla. Því geta
afslættir numið allt að 48% hjá gull
meðlimum. Einnig eru oft sérstök
tilboð í gangi fyrir vildarklúbbs-
meðlimi og því mörg tækifæri til
að gera frábær kaup.“
Vildarklúbbsmeðlimir
taka þátt í prófunum
TARAMAR vörurnar eru þró-
aðar af prófessorum við Háskóla
Íslands og byggja á rannsóknum
í matvæla- og næringarfræði.
„TARAMAR eru taldar vera með
hreinustu húðvörum sem völ er á.
Sérstaða þeirra felst í því að þessar
vörur innihalda mikla lífvirkni
sem mótar og heilar húð um leið og
þær eru afburða hreinar og í raun
svo hreinar að það mætti leggja
þær sér til munns.“
Alveg frá upphafi hefur
TARAMAR unnið mjög náið með
viðskiptavinum og neytendum
TARAMAR varanna, segir Viðar.
„Strax árið 2015 þegar TARAMAR
fór inn á íslenska markaðinn var
ljóst að það var mikill áhugi á
að fá að fylgjast með þróun og
nýsköpun hjá félaginu. Þannig hafa
vildarklúbbsmeðlimir tekið þátt í
mörgum prófunum og könnunum
og haft áhrif á þróun varanna.
Sumar af TARAMAR vörunum eru
að öllu leyti þróaðar eftir óskum
vildarklúbbsmeðlima okkar.“
Vildarklúbbsmeðlimir
fá fyrstir að prófa
Á þessu ári koma margar nýjar
vörur frá TARAMAR, að sögn Við-
ars. „Efst á blaði eru ICEBLU vör-
urnar sem eru þróaðar í samstarfi
við VAXA Life á Hellisheiði. Þær
byggja á lífvirkni bláa Phycoscyan-
ine próteinsins sem er unnið er úr
spírulínaþörungum sem VAXA
ræktar með sérstakri tækni í
verksmiðjunni sinni á Hellisheiði.
Þróunin á þessum vörum er styrkt
af Lóusjóðnum og fyrsta reynsla
af vörunum hefur gefið gríðarlega
spennandi niðurstöður. Þessar
vörur verða fyrst kynntar í vildar-
klúbbnum og þar fá vildarklúbbs-
meðlimir tækifæri til að setja þær í
körfuna sem kaupauka þegar þeir
kaupa TARAMAR vörurnar.“ n
„Mér finnst öll
þessi krem mjög
góð undir farða
og ekki er verra
að þau eru svo
hrein og gerð úr
íslensku vatni
og jurtum,“
segir Valdís
Sigurgeirs dóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
TARAMAR eru
taldar vera með
hreinustu húðvörum
sem völ er á. Sérstaða
þeirra felst í því að þessar
vörur innihalda mikla
lífvirkni sem mótar og
heilar húð um leið og
þær eru afburða hreinar.
2 kynningarblað A L LT 31. mars 2022 FIMMTUDAGUR