Fréttablaðið - 31.03.2022, Qupperneq 34
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ásta Kristjánsdóttir
sem lést á dvalarheimilinu Grund
við Hringbraut, þriðjudaginn 15. mars,
verður jarðsungin frá Áskirkju
föstudaginn 1. apríl klukkan 15.
Starfsfólki Grundar er þakkað fyrir umhyggju og hlýhug.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Ástusjóð
(astusjodur.is).
Sigríður Einarsdóttir Þorgeir Kristjánsson
Stefán Einarsson Inga Þórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðurbróðir okkar og vinur,
Otti Pétursson
Orrahólum 5, Reykjavík,
andaðist fimmtudaginn 24. mars
á Hrafnistu Laugarási.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
mánudaginn 4. apríl klukkan 11.00.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Miklatorgi fyrir frábæra
umönnun og aðhlynningu.
Guðrún Guðbjartsdóttir Guðjón Þ. Sigfússon
Kristinn H. Guðbjartsson Laufey Ó. Hilmarsdóttir
Álfheiður J. Guðbjartsdóttir Olaf Sveinsson
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Sigríður Jóhanna
Valdimarsdóttir
Austurvegi 5, Grindavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
mánudaginn 28. mars.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Brynjólfur Einarsson
Valdimar Einarsson Fanný Þóra Erlingsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, afi, bróðir og mágur,
Ásmundur Karlsson
Brekkubyggð 40,
lést á blóðlækningadeild Landspítalans
mánudaginn 21. mars. Útförin fer fram frá
Vídalínskirkju fimmtudaginn 7. apríl kl. 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks blóðlækningadeildar 11G
og göngudeildar 11B/C fyrir einstaklega hlýja og góða
umönnun. Útförinni verður streymt. Hlekkur á streymi:
www.netkynning.is/asmundur-karlsson
Guðbjörg Alfreðsdóttir
Axel Ásmundsson
Máni Snær Axelsson Brynja M. Dan Gunnarsdóttir
Guðríður Karlsdóttir Guðni R. Eyjólfsson
Hólmfríður K. Karlsdóttir Friðrik Sigurgeirsson
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðmundur Lárusson
húsasmíðameistari,
Smárahvammi 11, Hafnarfirði,
lést á Borgarspítala sunnudaginn 20. mars.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
fimmtudaginn 31. mars klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Einstök börn.
Unnur Einarsdóttir
Jón Ragnar Guðmundss. Hulda Ólafsdóttir
Elín Guðmundsdóttir Kristinn Frímann Kristinsson
Lárus Jón Guðmundsson Aðalheiður Ólöf Skarphéðinsd.
Hólmfríður Guðmundsd.
Einar Bjarki Guðmundss. Amanda Jean Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær frændi okkar,
Osvald H. Kratsch
hárgreiðslumeistari,
Hönefoss, Noregi,
áður í Stigahlíð 20, Reykjavík,
sem lést þann 23. febrúar, verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu,
mánudaginn 4. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Styrktarsjóð skáta,
kt. 4401692879, reikningsnr. 528-14-403279.
Systkinabörn hins látna.
1889 Eiffelturninn vígður.
1905 Gull finnst við jarðborun við
Öskjuhlíð í Reykjavík en magnið
er of lítið til að vera vinnanlegt.
1917 Bandaríkin kaupa Dönsku Vest-
ur-Indíur af Dönum og borga 25
milljónir dollara fyrir. Síðan hafa
eyjarnar heitið Bandarísku Jóm-
frúaeyjar.
1943 Bandaríski leikarinn Christopher
Walken fæðist.
1955 Togarinn Jón Baldvinsson
strandar við Reykjanes. Allri
áhöfninni er bjargað, 42
mönnum.
1959 Tenzin Gyatso, fjórtándi Dalaí
Lama, fær pólitískt hæli á Ind-
landi.
1967 Á Raufarhöfn mælist 205 cm snjódýpt sem þykir
með fádæmum í þéttbýli á Íslandi.
1989 Línuhraðall, tæki til geislameðferðar vegna krabba-
meina, er tekinn í notkun á Landspítala Íslands.
Merkisatburðir
Handskrifuð sjálfsævisaga Páls
Skúlasonar frá Bræðratungu
dúkkaði óvænt upp eftir lát hans.
arnartomas@frettabladid.is
Bókaútgáfan Sæmundur undirbýr um
þessar mundir útgáfu á sjálfsævisögu
Páls Skúlasonar frá Bræðratungu. Hand-
skrifuð ævisagan fannst óvænt eftir lát
Páls en í henni segir hann frá uppvexti,
námsárum og störfum á hinum ýmsu
sviðum.
Páll Skúlason fæddist árið 1940 og
var uppalinn í Bræðratungu þar sem
foreldrar hans voru bændur. Hann nam
síðar lögfræði í Reykjavík sem varð hans
iðja ásamt ýmsum menningarstörfum.
Tímaritin Bókaormurinn og Skjöldur
voru gefin út sem persónuleg málgögn
Páls sem var stundum kallaður Júnker-
inn af Bræðratungu.
„Hann var oft í gamni kallaður þetta
því að um sumt voru lifnaðarhættir
hans kannski ekki ósvipaðir lífi skáld-
sögupersónu eftir Halldór Laxness sem
er kallaður þessu nafni,“ segir Bjarni
Harðarson, eigandi Bókaútgáfunnar
Sæmundar, sem var persónulegur vinur
Páls. „Við vissum ekki að hann hefði
skrifað ævisögu sína fyrr en bróðurson-
ur hans rakst óvænt á snyrtilega og vel
frá gengna möppu með ævisögu Páls.“
Bjarni segir ævisöguna vera skemmti-
lega gamaldags þar sem hann segir blátt
áfram og hreinskilnislega frá samferða-
mönnum og lífi sínu. „Hann talar yfir-
leitt vel um fólk þótt það sé stundum
blæbrigðamunur þar á. Það er ekki mikil
bersögli í máli um átök við aðra menn.“
Dyggur hirðmaður Bakkusar
Eitt af því sem vakti athygli Bjarna í ævi-
sögunni var hispursleysi Páls gagnvart
vínhneigð sinni.
„Hann var alla tíð heill í því að vera
hirðmaður Bakkusar konungs, og í ævi-
sögunni örlar hvergi á eftirsjá eða harmi
yfir því hlutskipti,“ segir Bjarni. „Lang-
flestir í þeirri hirð eiga það sammerkt
að á einhverjum tímapunkti formæla
þeir Bakkusi. Þessa varð maður aldrei
var í lífi Páls, og í ævisögunni sést alveg
að hann var heill og lítur ekki svo á að
þetta hafi getað eða átt að fara á annan
veg. Þetta er athyglisvert sjónarhorn sem
mér finnst að megi heyrast, þótt ég taki
kannski ekki skilyrðislaust undir það.“
Páll var fagurkeri á íslenskt mál og
segir Bjarni að textinn sé skemmtilega
skrifaður.
„Hann var afskaplega vel lesinn og til-
heyrði öllum helstu kreðsum síns tíma,
sem fylgir jafnan lífi eins og hans. Hann
átti alls staðar heima, eða kannski mætti
segja alls staðar og hvergi.“
Þeir sem vilja tryggja sér eintak af bók
Páls geta skráð sig í bókakaffisbúðum
Sæmundar í Reykjavík og á Selfossi eða
á Facebook-síðu útgáfunnar. n
Júnkerinn frá Bræðratungu
Páll var fagurkeri í máli og gaf út ritin Bókaormurinn og Skjöldur. MYND/AÐSEND
Bjarni Harðarson, eigandi Bókaútgáf-
unnar Sæmundar.
Hann átti alls staðar
heima, eða kannski mætti
segja alls staðar og hvergi.
Bjarni
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 31. mars 2022 FIMMTUDAGUR