Fréttablaðið - 31.03.2022, Blaðsíða 40
Leikritið er mjög
fyndið en líka djúpt,
krefjandi og drama-
tískt.
24 Menning 31. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Nýtt íslenskt leikrit, Sjö ævin
týri um skömm eftir Tyrfing
Tyrfingsson, verður frumsýnt
í Þjóðleikhúsinu föstudaginn
1. apríl. Leikstjóri er Stefán
Jónsson og Ilmur Kristjáns
dóttir fer með aðalhlutverkið,
leikur Öglu sem leitar ráða hjá
geðlækni.
kolbrunb@frettabladid.is
Agla ryðst inn á stofu geðlæknis og
krefst þess að hann skrifi upp á lyf
sem nái að svæfa hana strax. Geð
læknirinn vill ekki verða við þessari
ósk Öglu en segir henni hins vegar
frá kenningu sinni um að sjö ævin
týri um skömm liggi að baki allri
geðveiki. Agla neyðist til að rekja sig
í gegnum þessi ævintýri sem stjórna
lífi hennar ef hún vill eiga einhvern
möguleika á bata.
„Agla kom mjög auðveldlega til
mín, strax á fyrsta samlestri,“ segir
Ilmur. Hún er lögga, töffari sem er
með brynju og sýnir af sér stæla en
er brotin undir niðri. Áhorfandinn
kynnst báðum þessum hliðum á
henni. Mér finnst gaman að leika
konur eins og hana, sem eru marg
laga.“
Gert grín að alvörunni
Spurð hvort leikrit Tyrfings sé
dramatísk eða fyndið eða kannski
bæði segir hún: „Leikritið er mjög
fyndið en líka djúpt, krefjandi og
dramatískt. Tyrfingur opinberar
í verkinu að fólk getur orðið mjög
hlægilegt í allri sinni miklu drama
tík en líka eðlilegt. Stefán Jónsson
leikstjóri er líka mjög góður í að
draga fram akkúrat þessi sam
mannlegu kómísku element og gera
hressilegt grín að alvörunni.“
Sjö ævintýri um skömm er sjö
unda verk Tyrfings sem er sviðsett í
íslensku leikhúsi og það fyrsta sem
hann skrifar fyrir Þjóðleikhúsið.
„Mér finnst skemmtilegast að leika
í nýjum íslenskum leikritum og
tengi langsterkast við þau,“ segir
Ilmur. „Persónurnar eru nær manni
en persónur sem eru skrifaðar í
útlöndum fyrir áratugum eða jafn
vel einhverjum öldum. Auðvitað er
eitthvað sammannlegt í f lestöllum
leikverkum sem maður getur gert að
sínu en það er auðveldara ef verkið
talar beint inn í samtímann.“
Aldrei eins
Ilmur segir að samvinna hópsins á
æfingatímanum hafi verið frábær.
Auk hennar leika í verkinu Hilmir
Snær Guðnason, Ólafía Hrönn Jóns
dóttir, Eggert Þorleifsson, Kristbjörg
Kjeld, Kristín Þóra Haraldsdóttir,
Edda Arnljótsdóttir, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir
og Vincent Kári van der Valk. „Þetta
er sterkur hópur, það er búið að vera
gaman og verður örugglega áfram,“
segir Ilmur.
Spurð hvernig tilfinning það sé
að frumsýna í vikunni segir hún:
„Ég er nýbúin að kynnast íþrótta
hliðinni á mér, tók í fyrsta skipti
þátt í nokkrum íþróttakeppnum í
fyrra og fattaði að frumsýningar
vika er eins og vikan fyrir keppni.
Ég er bara með einn fókus sem er að
klára frumsýninguna og hámarka
hæfni mína fram að því. Þetta er
síðasta vikan sem maður fær til að
prófa eitthvað nýtt og ganga eins
langt og maður getur, en svo mun
sýningin halda áfram að þróast án
þess að breytast. Það er leikhúsið –
aldrei eins.“ n
Leikrit um marglaga konu
Ilmur leikur lögreglukonuna Öglu sem ryðst inn á stofu geðlæknis. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
kolbrunb@frettabladid.is
Laugardaginn 2. apríl klukkan
16 verður opnuð sýning Eyglóar
Harðardóttur, Hleðsla – Draumur I
í Gallerí Undirgöngum við Hverfis
götu 76 í Reykjavík.
Sýningin samanstendur af röð
málverka sem mynda eina innsetn
ingu sem unnin er sérstaklega fyrir
sýningarrýmið.
Litir verksins sem birtast í þremur
sextettum voru valdir á grundvelli
sambands þeirra hvers við annan
og út frá staðsetningu verksins og
umhverfi þess. Litirnir kallast á í
uppstillingunni og brjóta upp eins
leitni umhverfisins.
Verkin búa yfir krafti og ákefð
og lýsa upp af innri bjarma þetta
almenningsrými götunnar. Í inn
setningunni í undirgöngunum, í
stanslausum klið bæði bíla og gang
andi vegfarenda, gefa verkin vegfar
endum möguleika á að sjá rýmið í
nýju ljósi og vekja á táknrænan hátt
meiri athygli á því sem fyrir augu ber
hinum megin við bílrúðuna.
Eygló Harðardóttir er fædd í
Reykjavík. Hún hlaut Íslensku
myndlistarverðlaunin 2019 fyrir
einkasýninguna Annað rými, sem
haldin var í Nýlistasafninu 2018.
Hún hefur starfað og sýnt verk
sín hér heima og erlendis og verk
hennar eru í eigu opinberra safna. n
Hleðsla Eyglóar í Undirgöngum
Eygló Harðardóttir sýnir málverk við
Hverfisgötu. MYND/AÐSEND
ALLT ÞETTA
EXTRA
Í PÁSKAEGGINU