Fréttablaðið - 31.03.2022, Side 42
Einleiksverkið Síldarstúlkur,
um konur á síldarárunum,
er frumsýnt á sunnudaginn í
Síldarminjasafninu á Siglu-
firði. Þrjár konur standa að
verkinu sem unnið er í sam-
starfi við safnið.
ninarichter@frettabladid.is
„Þetta er frumraun mín á sviði á
Íslandi,“ segir Halldóra Guðjóns-
dóttir leikkona. „Ég lærði leiklist
í Los Angeles og útskrifaðist árið
2013 og hef aðallega verið í veit-
inga- og hótelgeiranum síðan,“ segir
hún. Halldóra rekur tvo veitinga-
staði á Siglufirði og annar þeirra er
Rauðka.
Fræddist um síld eftir flutninga
„Ég f lutti á Siglufjörð fyrir fimm
árum síðan. Mér fannst mjög merki-
legt þegar ég kom fyrst í bæinn hvað
sagan hér er rík. Það er Síldarminja-
safnið og ummerki um þessa miklu
menningu sem var í bænum, og fór
að fræðast um síldarárin,“ segir
hún.
Halldóra kveðst hafa fengið hug-
myndina að verkinu út frá efri hæð
veitingastaðarins Rauðku. „Þar er
fullkomið leikhús, sem er svona
söguloft,“ segir hún. „Þannig byrjaði
þessi hugmynd að myndast sem til-
raunaverkefni, eitt skref í einu og ég
hugsaði: Hvað gerist ef ég gefst ekki
upp?“
Hún segir Hlín Agnarsdóttur leik-
skáld hafa tengt þær Andreu saman.
„Þá vissi ég ekki að Andrea væri
ættuð frá Siglufirði,“ segir Halldóra
og gefur Andreu Elínu Vilhjálms-
dóttur, dramatúrg og leikstjóra
verksins, orðið.
Alin upp við sögur úr síldinni
„Upp frá því ákváðum við Hall-
dóra að sækja um listamannalaun.
Við fengum út úr Covid-aukaút-
hlutuninni til að skrifa handrit sem
var einleikur. Þá fórum við í rann-
sóknarvinnu í samstarfi við Síldar-
minjasafnið,“ segir hún. „Mamma
mín er fædd og uppalin á Siglufirði
og var tólf ára gömul í Síldinni. Ég er
þannig alin upp við kvöldsögur frá
mömmu úr síldinni.“
Andrea Elín minnist sögu sem
hún heyrði af ömmu sinni frá síld-
arárunum. „Þegar það var ræst út
einn daginn, þá var kallað ræs. Hún
kallar til baka út um gluggann: Ég
kemst ekki, ég var að fæða,“ segir
hún. „En örfáum dögum síðar var
amma mætt á síldarplanið að salta
með ungbarn framan á sér. Þetta
var svo mikið gullæði, fólk mætti
bara og hélt áfram að vinna. Þetta
er í mínu blóði og ég er alin upp við
þessar sögur.“
Söfnuðu sér fyrir þvottavél
Síldarminjasafnið tók viðtöl við
ömmu Andreu á sínum tíma, sem
varðveitt eru á safninu. „Verkið er
innblásið af sögum þessara ólíku
kvenna. Þrjár persónur urðu til
í þessu handriti sem tekst á við
hvernig lífið gat verið fyrir konur af
mismunandi stéttum og fyrir hverju
konur voru að safna,“ segir Andrea.
„Þegar síldin kom sköpuðust f leiri
tækifæri fyrir konur til að afla sér
tekna.“
Hún segir sumar konur þannig
hafa safnað sér til að ganga mennta-
veginn eða til að djamma alla daga.
„Eða keyptu þvottavél fyrir heimilið
eins og amma Halldóru gerði til að
geta staðið sig betur sem húsmæður
á þessum tíma.“
Sér Siglufjörð öðrum augum
Margrét Arnardóttir harmónikku-
leikari hefur tekið þátt í fjölda
stórra verkefna í íslenskri leik-
listar- og tónlistarsenu. Hún segir
mjög ólíka reynslu að koma til Siglu-
fjarðar, núna eftir að hún kynnti sér
Síldarárin. „Og líka verandi harm-
ónikkuleikari.
Ég sá þetta ekki. Þegar þú þekkir
ekki söguna er þetta ekki eins
áþreifanlegt. Ég sé Siglufjörð allt
öðrum augum eftir að þær tvær
kynntu söguna fyrir mér. Það er
ótrúlegt að hugsa til þess að það
hafi verið svona rosalega margir
hérna. Það voru tvær hattabúðir!“
segir hún.
Andrea Elín fær orðið. „Já! Það var
sér kvenfataverslun og sér herrafata-
verslun. Það er mikilvægt að skilja
að kynslóðin sem lifði þetta tímabil
er að hverfa. Síldarminjasafnið, sem
er hlutaminjasafn, er eitt f lottasta
safn á Íslandi. Það er mikilvægt að
fara að búa til lifandi viðburði sem
gera söguna aðgengilegri á fjöl-
breyttari máta,“ segir hún.
Verkið er frumsýnt sunnudag-
inn 3. apríl klukkan 15.00 á Kaffi
Rauðku og fyrst um sinn eru áætl-
aðar sýningar fram í byrjun maí. n
Það er ótrúlegt að
hugsa til þess að það
hafi verið svona rosa-
lega margir hérna. Það
voru tvær hattabúðir!
Margrét Arnardóttir
Þannig byrjaði þessi
hugmynd að myndast
sem tilraunaverkefni,
eitt skref í einu og ég
hugsaði: Hvað gerist ef
ég gefst ekki upp?
Halldóra Guðjónsdóttir
Sjáumst á fjöllum
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
SUMARLEYFISFERÐIR FÍ
www.fi.is
ninarichter@frettabladid.is
„Við erum að gera grín sem er ótengt
umfjöllunarefninu,“ segir Steiney
Skúladóttir grínisti, sem tekur þátt
í að stýra söfnunarþætti UNICEF
sem er í beinni útsendingu á RÚV á
laugardagskvöldið.
Í þættinum verður fjallað um
stríðið í Úkraínu og neyðarað-
gerðir UNICEF á svæðinu. Markmið
þáttarins er að fjölga í hópi Heims-
foreldra á Íslandi. Kynnar kvöldsins
eru Einar Örn Jónsson og Sigurlaug
Margrét Jónasdóttir, sem stýra
kvöldinu úr myndveri RÚV, auk
Guðmundar Pálssonar og Bjargar
Magnúsdóttur sem verða staðsett í
símaveri Vodafone.
„Við gerðum skets um einhverja
rokkara í næntís, og gerðum einn
skets um UNICEF í Svíþjóð, það má
alltaf gera grín að Svíþjóð, fyrirmæl-
in okkar voru bara að gera eitthvað
skemmtilegt,“ segir Steiney létt, um
dagskrá kvöldsins.
Opnunaratriði þáttarins er end-
urútgáfa af gömlum smelli, Diskó
Friskó. Þar leiða Birgitta Haukdal
og Daníel Ágúst hóp flytjenda, en
þeirra á meðal eru Páll Óskar, Helga
Möller, Elísabet Ormslev, Jón Jóns-
son, Friðrik Dór, Þórunn Antonía,
Óttarr Proppé og Gunnar Helga-
son. Þá taka Ellen Kristjánsdóttir
og Stefán S. Stefánsson einnig þátt,
en þau eru flytjendur upprunalegu
útgáfu lagsins sem Stefán samdi.
Aðspurð hvernig uppistand-
arar koma undan Covid-inu, svarar
Steiney: „Við Kanarí-hópurinn
vorum mjög heppin með það að við
fórum haustið 2020 að skrifa grín-
þættina okkar sem voru á RÚV. Við
fórum síðan beint í að gera sketsa-
sýningu í Þjóðleikhúskjallaranum,“
segir hún. n
Það má alltaf gera grín að Svíþjóð
Steiney Skúla-
dóttir grínisti
er meðal þeirra
grínista sem
stíga á stokk í
söfnunarþætti
UNICEF. MYND/
AÐSEND
Við erum að gera grín
sem er ótengt umfjöll-
unarefninu.
Lítur Siglufjörð öðrum augum eftir einleiksverk
Halldóra Guðjónsdóttir, Andrea Elín Vilhjálmsdóttir og Margrét Arnardóttir standa að sýningunni. MYND/AÐSEND
26 Lífið 31. mars 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 31. mars 2022 FIMMTUDAGUR