Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 32
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Eva Íris Eyjólfsdóttir er verk-
efnastjóri Styrkleikanna hún er
sannfærð um að viðburðurinn
sé kominn til að vera og hvetur
alla til að vera með. Eva segir
Krabbameinsfélag Íslands hafa
gengið til liðs við Global Relay for
Life, samtök á vegum ameríska
krabbameins félagsins, og öðlast
þar með rétt til að halda Styrk-
leika hér á landi, eða viðburðinn
Relay for Life, eins og hann heitir
í Bandaríkjunum. Íslenska nafnið
á viðburðinum er Styrkleikarnir
sem er orðaleikur og minnir okkur
á styrkinn sem við finnum í sam-
stöðunni, við það að ganga saman
til að standa með fólki sem hefur
verið snert af krabbameinum.
Hvað eru Styrkleikarnir?
„Styrkleikarnir eru fjölskyldu-
viðburður sem snýst um að styðja
við, heiðra eða minnast þeirra sem
hafa fengið krabbamein. Leikarnir
standa yfir í sólarhring, sem er
táknrænt fyrir að það fæst engin
hvíld frá krabbameini. Boðið
verður upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla aldurshópa. Heiðurs-
gestir leikanna eru þeir sem greinst
hafa með krabbamein og sérstök
dagskrá tileinkuð þeim.“
Viðburðurinn er opinn öllum
og það kostar ekkert að vera með.
Það er mjög gott hjólastólaaðgengi
og svæðið hentar vel fyrir fólk sem
er með einhverjar sérþarfir. „Við
leggjum mikið upp úr því að við-
burðurinn sé fyrir alla og allir fari
þetta á sínum hraða,“ segir Eva.
Stór eða lítil lið
Fjölskyldur, vinahópar, fyrirtæki,
félagasamtök eða aðrir skrá sig
sem lið á styrkleikarnir.is og vinna
svo saman að því að hafa fulltrúa
á hreyfingu með boðhlaupskefli
allan sólarhringinn. Algengt er
að liðsfélagar skiptist á að ganga í
einn til tvo tíma í senn.
Þú þarft ekki að vera hluti af liði
til að vera með því þú getur skráð
þig í Landsliðið, það er öllum opið.
„Liðin og einstaklingarnir í
liðunum eru það sem gefur við-
burðinum lit. Styrkleikarnir eru
kjörið tækifæri til þess að hrista
hópa saman með sameiginlegt
markmið. Hvert lið ákveður hversu
mikið það vill leggja í sína þátt-
töku en því meira sem liðið vinnur
að því að gera viðburðinn einstak-
an, því stærri verður upplifunin
fyrir hvern og einn.
Liðin eru af öllum stærðum og
gerðum, stór og lítil, við vitum um
hundrað manna lið þar sem fjórir
til tíu gengu saman en það er líka
hægt að vera einn á ferð,“ segir hún.
Góðar aðstæður á Selfossi
Styrkleikarnir eru haldnir í
samvinnu við Krabbameins-
félag Árnessýslu á Selfossi og í
góðu samstarfi við Sveitarfélagið
Árborg. „Aðstæður eru einstak-
lega góðar á Selfossi til að halda
þennan viðburð og ef veður verður
slæmt getum við alltaf fært okkur
inn í nýju íþróttahöllina. Þar er
mjög góð göngubraut og fallegt
útivistarsvæði er allt í kring,“ segir
Eva Íris.
„Við viljum hvetja alla til að vera
með, þetta er einstök upplifun –
sjáumst á Selfossi 30. apríl,“ segir
Eva að lokum.
Allar nánari upplýsingar um Styrk-
leikana má finna á styrkleikarnir.is
Þessi mynd var tekin á Styrkleikunum í Noregi þar sem fjölskyldur komu
saman og skemmtu sér.
Krakkar sem tóku þátt í Styrkleikunum í Noregi, en þau skiptust á að hlaupa eða ganga með keflið í heilan skóladag. Með þessu söfnuðu þau fyrir norska
krabbameinsfélagið, en í hópnum eru tvö börn sem hafa greinst með krabbamein.
Ljósaathöfn fer fram á Styrkleikunum. Seldir eru ljósapokar sem fólk getur
skrifað kveðju á til ástvinar sem það vill minnast.
Hægt er að fá leigð tjöld á Styrkleikunum þar sem fólk getur haft sína heima-
stöð eins og hér er gert.
Styrkleikarnir eru
einstök upplifun
fyrir alla aldurshópa.
2 kynningarblað A L LT 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR