Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 72
Björn
Þorláksson
bth
@frettabladid.is
Sigtryggur Ari
Jóhannsson
sigtryggur
@frettabladid.is
n Fréttablaðið
í Póllandi
Blaðamenn Fréttablaðsins í
landamæraþorpinu Medyka
í suðausturhluta Póllands
lýsa upplifun af veru sinni í
þorpinu sem og í höfuðborg
inni Varsjá.
Á rúmum mánuði hafa
Pólverjar tekið á móti
nærri tveimur og hálfri
milljón flóttamanna frá
Úkraínu. Engin önnur
þjóð hefur tekið á móti fleiri flótta
mönnum frá því að Rússar réðust
inn í Úkraínu í febrúarlok. Þetta eru
skuggalegar tölur, ekki síst þegar
litið er til þess að flóttamannastofn
un Sameinuðu þjóðanna gerir ráð
fyrir að ríf lega tíu milljónir úkra
ínskra borgara hafi yfirgefið heimili
sín frá því stríðsátök brutust út.
Þegar við Björn Þorláksson blaða
maður stigum út úr bílaleigubíl í
miðborg Varsjár á sólbjörtum mánu
dagsmorgni mátti svo sem gera ráð
fyrir hverju sem var. Hvernig gengur
Pólverjum að taka á móti öllum
þessum fjölda fólks? Ráða innvið
irnir við álagið?
Það var rólegt yfir borginni.
Umferðin var viðráðanleg og göngu
túrinn á aðalbrautarstöðina nota
legur. Þar innandyra var umferð
fólks, kannski eins og eðlilegt er á
járnbrautarstöð. Helstu vísbend
ingar um þessa miklu fólksflutn
inga voru hópar af sjálfboðaliðum í
gulum vestum sem tóku á móti fólki
og aðstoðuðu við að veita upplýs
ingar um úrræði og áframhaldandi
ferðalag. Ekkert mátti sjá á götum úti
sem benti til þess að samfélagið réði
ekki við ástandið.
Það kom enda á daginn þegar
ferðalaginu vatt fram að margir Pól
verjar hafa opnað heimili sín fyrir
úkraínskum flóttamönnum og öfl
ugt net sjálfboðaliða var að störfum
víðs vegar í samfélaginu við að afla
nauðsynja fyrir allt þetta fólk. Sjálf
sprottin aðstoð heimfólks er mun
meira áberandi en starfsemi skipu
lagðra alþjóðlegra hjálparsamtaka.
Eins og oft hefur komið fram þá
samanstendur flóttamannahópur
inn einkum af konum og börnum og
svo eldra fólki. Karlmenn eru í her
þjónustu. Þetta blasti svo við okkur
þegar við komum í landamæra
bæinn Medyka, eftir nokkurt ferða
lag. Þar var stöðugur straumur fólks
yfir landamærin og flest sem komu
voru mæður með börn sín.
Við ræddum við Olenu með
börn sín fjögur. Þau voru að koma
frá Kænugarði eftir nokkurra daga
ferðalag með rútu. Olena útskýrði
fyrir okkur að hún ætti ekki lengur
heimili og eina úrræðið hefði
verið að flýja borgina með börnin.
Bóndinn hefði orðið eftir til að
berjast. Hún brast svo í grát þegar
hún útskýrði fyrir okkur að yngsta
dóttirin, hin þriggja ára Nadíía,
ætti erfitt núna. Hún óttaðist öll
hljóð eftir að hafa þurft að upplifa
sprengjuregnið í Kænugarði.
Og jafnvel þótt blaðamenn Frétta
blaðsins hafi aldrei þurft að f lýja
heimili sín í sprengjuregni þá er
hinn sammannlegi harmur alveg
skýr.
Sem aftur kann að endurspeglast
í þeim ótrúlega fjölda sjálfboðaliða
hvaðanæva að úr veröldinni sem
nú starfa um allt Pólland, bæði við
landamærahliðin og annars staðar
í landinu.
Landamæri lífs og dauða
Ekki komast allir
fótgangandi til
Medyka. Meira
en tvær og
hálf milljón
hafa farið yfir
landamærin til
Póllands síðasta
mánuðinn.
Straumur
fótgangandi
flóttamanna frá
Úkraínu hefur
legið um landa-
mærin.
Medyka er
smábær á
landamærum
Póllands og
Úkraínu. Þar
er hægt að fá
helstu nauð-
synjar.
Veggspjöld
sem lýsa hatri
Pólverja á Pútín
má víða sjá á
húsveggjum í
Varsjá.
36 Helgin 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐINNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 2. apríl 2022 LAUGARDAGUR