Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 26
Karl og Iryna kynntust í Úkraínu á umbrotatímum í sögu landsins. Þau vöknuðu upp við vondan draum í febrúar þegar Rússar réðust inn í landið og segja frá því hvernig er að ræða við fimm ára dóttur sína um stríðið í heimalandinu. Karl Garðarsson og Iryna Novakovska k y nnt- ust í Kænugarði í árs- byrjun 2014. Karl, sem er fjölmiðlamaður og fyrrverandi alþingismaður, var þá staddur í Úkraínu við kosningaeftir- lit á vegum Evrópuráðsins og Iryna, sem er úkraínsk, vann á skrifstofu Evrópusambandsins. Iryna: „Úkraína var þá byrjuð að breytast, það voru miklar breyting- ar í loftinu,“ segir hún, en þau Karl kynntust skömmu eftir Maidan- byltinguna þegar forsetanum Vikt- or Janúkovítsj var steypt af stóli. Með Karli og Irynu tókst vinátta sem blómstraði yfir í hjónaband og árið 2017, skömmu eftir að Iryna f lutti til Íslands, eignuðust þau dótturina Lilju. Iryna: „Á þessum fimm árum síðan ég flutti frá Úkraínu hef ég séð miklar breytingar í landinu mínu. Fólkið er orðið þjóðræknara, er farið að tala úkraínsku og klæða sig þjóð- lega, maður sér þetta sérstaklega hjá ungu kynslóðinni og á götum Kíjív, þær eru orðnar mun evrópskari.“ Iryna er alin upp í þorpinu Horodníjtsíja í Shíjtomíjr-hér- aði, um 300 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Kænugarði og skammt frá landamærum Hvíta Rússlands. Hjónin eiga nú saman íbúð í miðborg Kænugarðs en Karl viðurkennir þó að honum hafi hreint ekkert litist á blikuna í fyrstu heimsókn sinni þangað árið 2014. Karl: „Þetta er eina skiptið á ævinni sem ég hef komið til borgar þar sem ég var hræddur um öryggi mitt úti á götu. Ég gekk þarna fyrsta daginn um miðborgina og það voru þarna alls konar menn í her- klæðum með skotvopn starandi á mann. Mér leið eins og ég væri eini útlendingurinn, sem ég var nánast á þessum tíma, rétt eftir byltingu. Eins og Iryna kom réttilega inn á áðan hefur þessi borg gjörbreyst á sjö, átta árum. Hún er orðin bara eins og hver önnur austur-evrópsk borg með iðandi mannlífi, menn- ingu og tækniþekkingu.“ Vakin klukkan fjögur um nótt Karl og Iryna hafa fylgst grannt með stöðu mála í Úkraínu síðan stríðið hófst. Þegar blaðamaður settist niður með hjónunum á heimili þeirra í Kópavogi, nákvæmlega mánuði eftir að Rússar hófu innrás sína í Úkraínu var sjónvarpið stillt á úkraínsku fréttirnar sem sýndu Selenskíj forseta í miðri ræðu. Iryna: „Þetta var sjokk, það voru mörg tár, þetta var eins og hryllings- mynd eða martröð. Ég bjóst alls ekki við þessu, af því Pútín ítrekaði stöðugt að hann myndi aldrei ráð- ast á Úkraínu, að við værum sama þjóðin, með sömu trúarbrögðin og sama tungumálið.“ Allt kom þó fyrir ekki og þrátt fyrir að Pútín haldi áfram að endur- taka þrástefið um að einungis sé um að ræða „sérstaka hernaðaraðgerð“ þá er staðreyndin sú að þann 24. febrúar hóf rússneski herinn inn- reið sína yfir landamæri Úkraínu á sama tíma og byrjað var að varpa sprengjum yfir helstu borgir og hernaðarleg skotmörk landsins. Iryna: „Við vöknuðum klukkan fjögur um nóttina. Dóttir mín Ég hef miklar áhyggjur en þegar maður situr ekki sjálfur í sprengju- byrginu þá veit ég ekki hvort maður geti raunveru- lega skilið það og fundið á eigin skinni. Iryna Þetta var sjokk, það voru mörg tár, þetta var eins og hryllings- mynd eða martröð. Iryna Vonast eftir kraftaverki Karl og Iryna ásamt dóttur þeirra Lilju sem varið hefur flestum sumrum ævi sinnar í sumarparadís ömmu og afa í Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is vaknaði fyrir tilviljun og svo vakn- aði Karl og sagði mér að stríðið væri byrjað. Ég hringdi auðvitað í bróður minn sem var vakandi af því þau höfðu heyrt sprengingar. Ég sagði honum að yfirgefa Kíjív strax. Ég var mjög hrædd. Ég sagði honum að fara til foreldra okkar, það væri betra að þau væru saman á þessari stundu.“ Karl: „Bróðir hennar og kona hans bjuggu í íbúð sem við eigum í Kíjív og þegar hún hringdi í þau fyrsta daginn um morguninn og sagði „Stríðið er byrjað“, þá fóru þau strax yfir í þorpið þar sem foreldrar hennar búa og eru þar enn.“ Íhugaði að gerast sjálfboðaliði Iryna segist hafa farið í gegnum þrjú tilfinningaleg stig eftir upphaflega áfallið þegar stríðið hófst. Iryna: „Fyrst afneitar maður þessu, eftir það verður maður reiður og loks samþykkir maður það. Af því að þetta er augljóslega eitthvað sem gerðist og það er ekkert sem maður getur gert til að breyta því. Ég hugsaði mjög mikið um hvað ég gæti gert til að hjálpa héðan frá. Karl vildi upphaflega fara og bjóða sig fram sem sjálfboðaliða.“ Karl: „Þetta eru svona fyrstu við- brögð, sem eru mjög eðlileg. Hins vegar, ef maður hugsar málið betur, þá getur það að fara til Úkraínu sem sjálfboðaliði verið mjög hættulegt. Og ég hefði í sjálfu sér aldrei getað farið í herinn, því ég er of gamall.“ Karl ákvað því að halda kyrru fyrir á Íslandi en þau Iryna fylgjast grannt með stöðunni í Úkraínu og ræða við ættingja sína og vinafólk á hverjum degi. En þótt Iryna sé vel upplýst um stöðu mála í heima- landinu segir hún það geta verið erfitt að setja sig í spor fólksins sem er í miðju átakanna. Iryna: „Jafnvel ég get ekki skilið sorgina sem þau eru að upplifa. Ég hef miklar áhyggjur, en þegar maður situr ekki sjálfur í sprengju- byrginu þá veit ég ekki hvort maður geti raunverulega skilið það og fundið á eigin skinni. Það var mikil sorg hjá þeim fyrstu dagana og þau voru mjög þunglynd. Ég tala við þau á hverjum degi í einn klukkutíma og þau reyna að halda í vonina, þau binda vonir við herinn okkar, en vita ekki hvenær þessu mun ljúka.“ Vel tekið á móti flóttamönnum Að sögn Irynu hefur fjölskylda hennar í Úkraínu enn sem komið er ekki reynt að f lýja land og þau kjósa heldur að vera öll saman í heimabænum á meðan þau geta. Bróðir Ir y nu, Dmíjtro Nova- kovskííj, er tölvuverkfræðingur og getur ekki yfirgefið landið frekar en flestir karlmenn undir sextugu, því hann er skráður í varalið úkraínska hersins. Karl: „Hann getur ekki farið út af herskyldu. Konan hans vill ekki fara nema hann komi með og for- eldrar hennar held ég vilja ekki fara á meðan sonurinn er í Úkraínu, þannig að þau eru öll föst saman.“ Iryna kveðst þó eiga nokkra fjar- skylda ættingja sem hafi f lúið til Póllands. Þrátt fyrir að hafa hlotið góðar viðtökur þar hafa þau ekki hug á að setjast að utan heimalands- 26 Helgin 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.