Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 8
Inniliggjandi sjúklingum með Covid-19 fer fækkandi bæði á Landspítala og á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Frá því að fyrsta smit greindist hér á landi hafa yfir 180 þúsund smit verið staðfest. 101 ein- staklingur hafði látist vegna Covid-19 í gær. birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Klukkan níu í gærmorgun voru 39 sjúklingar með Covid-19 inniliggjandi á Landspítala. Einn var á gjörgæslu í öndunarvél. Meðal- aldur sjúklinga var 73 ár. Inniliggjandi sjúklingum með veiruna hefur farið ört fækkandi undanfarna daga en síðastliðinn mánudag lágu 60 sjúklingar með Covid á Landspítalanum. Í gær voru þeir 52. Þá var spítalinn færður af neyðar- stigi á hættustig í upphafi vikunnar. Þann 25. október árið 2020 var Landspítalinn settur á neyðarstig í fyrsta sinn í sögu spítalans. Nú þegar Landspítalinn er á hættustigi eru enn í gildi umfangsmiklar sýk- ingavarnir á spítalanum. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum fer spítalinn á hættustig þegar starfa þarf eftir viðbragðsáætlun. „Aukið og breytt álag er á fjölmargar starfseiningar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki.“ Inniliggjandi sjúklingum með Covid-19 hefur einnig fækkað á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk). Í gær lágu þar inni tveir sjúklingar með virkt Covid-smit og annar þeirra var á gjörgæslu í öndunarvél. Einnig lágu þar inni tveir til þrír sjúklingar með inflúensu. Sigurður E. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri lækninga og hand- lækningasviðs SAk, segir álag vegna Covid-19 á sjúkrahúsinu fara minnkandi en þar sé þó enn mikið álag vegna annarra þátta. Í mars var Sjúkrahúsið á Akureyri við það að fara á neyðarstig vegna álags og segir Sigurður starfsfólk hafa unnið ötullega að því að allt gengi upp. „Það voru ákveðnar einingar sem voru við það að fara á neyðarstig sem felur í sér að spítalinn þyrfti utanaðkomandi hjálp, en með því að færa til innanhúss og draga úr annarri starfsemi þá tókst okkur að komast yfir þann skafl án þess að setja allt sjúkrahúsið á neyðarstig,“ segir Sigurður. „Við gerðum okkar besta, eða réttara sagt starfsfólkið, þau eru þvílíkar hetjur sem hafa staðið sig ótrúlega vel og það er ekki nógu oft sagt,“ bætir hann við. Frá því að fyrsta Covid-19 smit greindist hér á landi, þann 28. febrúar 2020, hafa 181.830 smit verið staðfest, rúmlega fjögur þús- und manns hafa smitast oftar en einu sinni af sjúkdómnum. 48,3 pró- sent íbúa landsins hafa greinst með Covid-19. Tekin hafa verið fleiri en 1,3 milljónir sýna innanlands, það eru að meðaltali 3,5 sýni á hvern íbúa. 101 einstaklingur hafði í gær látið lífið vegna Covid hér á landi. Fyrsti íbúi landsins var bólu- settur gegn Covid-19 þann 29. desember 2020, síðan þá hafa verið gefnir yfir 800 þúsund skammtar bóluefnis og eru nú 82 prósent allra landsmanna fimm ára og eldri full- bólusett. n Færri liggja á sjúkrahúsi með Covid 1.302.190 sýni hafa verið tekin 3,5 innan- lands- sýni á hvern íbúa að meðaltali 48,3 % íbúa lands- ins hafa greinst með Covid-19. 800.000 skammtar bóluefnis hafa verið gefnir 82 % allra lands- manna fimm ára og eldri full- bólusettir. Sigurður E. Sigurðsson, framkvæmda- stjóri lækninga og handlækn- ingasviðs SAk Í gær lágu 39 sjúklingar með Covid inni á Landspítalanum. Á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru tveir sjúklingar inniliggjandi með Covid. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Frumsýning 9. apríl borgarleikhus.is F Y R R V E R A N D I urduryrr@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratryggingar Íslands munu reyna að leita lausnar í máli Sæ vars Inga Ör lygs sonar, ní- tján ára drengs sem var synjað um niðurgreiðslu til að ljúka með ferð vegna skarðs í gómi. Sjúkratryggingar höfðu samband við Elínu Maríu Óladóttur, móður Sævars, í kjölfar fréttaflutnings um málið. Sævari var boðið að koma í endurmat með það að markmiði að finna ásættanlega lausn í málinu. „Ég er rosalega ánægð með það að fá viðbrögð og ómetanlegan stuðn- ing frá öllum í kringum mig,“ segir Elín. „Ég held að við séum í ágætum málum eins og staðan er núna.“ Elín segir að Sævari hafi verið boðið endurmat hjá Tannlækna- deild Háskóla Íslands og í kjölfarið yrði fundin ásættanleg lausn á mál- inu. Að sögn Elínar var upprunalega ákveðið að halda niðurgreiðslum ekki áfram þar sem talið var að tannréttingalæknir Sævars væri að fresta aðgerðunum um of langan tíma. Reynir ætli þó að skoða málið. „Þannig að það hafði áhrif að kasta þessu í blöðin,“ segir Elín. „Eitthvað verður maður kannski að gera til að kveikja á þessu.“ Elín segir að það hafi tekið allt síðasta ár að reyna að fá meðferð- ina tryggða, meðal annars kærði hún niðurstöðu Sjúkratrygginga til Úrskurðarnefndar velferðarmála. Nefndin felldi synjun Sjúkratrygg- inga um framlengingu en gaf ekki frekari leiðbeiningar. Þá segist Elín hafa verið ósátt við svör heilbrigðisráðuneytisins um að það teldi sig ekki geta aðhafst neitt í einstaka málum. Tannlæknadeild Háskóla Íslands faglegt mat í hverju tilviki. n Sjúkratryggingar leita lausnar í máli Sævars eftir umfjöllun Elín María Óladóttir segist vera ánægð með viðbrögð Sjúkratrygg- inga. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK arib@frettabladid.is UTANRÍKISMÁL Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra hafnaði því á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í gær að íslensk stjórnvöld hefðu beitt sér í þágu kjörræðismanns Íslands í Hvíta-Rússlandi. Fram kom í nýlegri fréttaskýr- ingu Stundarinnar um Alexander Moshenskíj, auðkýfing og kjör- ræðismann Íslands, að sumir þar í landi teldu að hann hefði notið góðs af sambandi sínu við Ísland og það komið í veg fyrir að hann hefði orðið fyrir refsiaðgerðum vegna tengsla sinna við Alexander Lúkas- henko, einræðisherra Hvíta-Rúss- lands. Þórdís Kolbrún sagði íslensk stjórnvöld hafa fengið óljósar ábendingar um að hann myndi verða á lista yfir þá sem beittir yrðu efnahagsþvingunum en stjórnvöld hafi ekkert aðhafst. n Fengu óljósar ábendingar  georg@frettabladid.is REYK JAVÍK Dagur B. Eggertsson sagði á opnum fundi í Ráðhúsinu í morgun að í garð væri gengið eitt stærsta uppbyggingarskeið í sögu borgarinnar. Lóðaúthlutun muni tvöfaldast á næsta ári þar sem farið verði úr tæpum þúsund úthlutunum á ári yfir í að úthluta rétt undir tvö þús- und lóðum á ári. Nú sé að hans mati komið að öðrum aðilum sem koma að hús- næðismarkaðinum til að bregðast við þessu aukna framboði á lóðum og vinna að uppbyggingu. n Úthlutun lóða muni tvöfaldast 8 Fréttir 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.