Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 68
Ég hugsa
mikið til
hans í
pontu og
ég fæ alltaf
smá svona í
hjartað
þegar ég sé
Davíðs-
dóttir á
skjánum
eða það er
lesið upp.
Ég ákvað
svo bara að
láta slag
standa og
taka þátt í
forvali.
Sem var
líka á
Zoom. En
allt í einu
var ég
komin í
pallborðs-
umræður
með for-
sætisráð-
herra á
Zoom og
hitti eigin-
lega ekki
sálu.
En ég hef
áhyggjur,
því vísind-
in eru skýr.
Við höfum
ekki mörg
ár til að
bregðast
við og við
þurfum
skýra
stefnu-
mótun sem
er fylgt eftir.
Eva Dögg Davíðsdóttir hefur
síðustu vikur setið sem
varaþingmaður á þingi og
segir starfið hafa komið sér
rækilega á óvart. Hún missti
pabba sinn í slysi fyrir þremur
árum en hefur vel fundið fyrir
áhrifum hans á þinginu.
Ég hef alltaf tengst Vinstri
grænum á einhvern hátt
en ekki tekið beint þátt.
Svo ákvað ég í fyrra að
skrá mig á Zoom málefna-
fund um umhverfismál. Ég hafði oft
hugsað um að láta að mér kveða en
aldrei látið af því verða,“ segir hún.
Hún segir að henni hafi strax
verið vel tekið og að eftir þátt-
tökuna í málefnahópnum hafi hún
verið beðin um að vera með í því að
skrifa upp umhverfis- og loftslags-
stefnuna fyrir kosningabaráttuna
sem þá var fram undan.
„Ég ákvað svo bara að láta slag
standa og taka þátt í forvali. Sem
var líka á Zoom. En allt í einu var
ég komin í pallborðsumræður með
forsætisráðherra á Zoom og hitti
eiginlega ekki sálu. Ég fékk þriðja
sætið í Reyk javík urk jördæmi
norður eftir forvalið. Ég var ekki
með væntingar eða miklar kröfur,
verandi ný, en ég átti greinilega ein-
hvern hljómgrunn. Því það á ekki að
vera þannig í pólítík að fólk eigi sín
sæti,“ segir Eva Dögg og að það verði
að vera fjölbreytni.
Hún segir að það hafi verið
gaman í kosningabaráttunni því
þá hafi þau fengið tækifæri til að
hitta fólkið í landinu, fyrirtæki og
aðra og að hún hafi fengið innsýn í
alls konar málefni og það sé dálítið
eins og starf þingmannsins sem
þarf að koma sér inn í mörg og fjöl-
breytt mál og koma inn í alls konar
umræður.
Hún segir starf ið kref jandi,
vinnudagana langa en að hún njóti
þess mikið að starfa inni á Alþingi
og skemmtilega stemmningin í
þingflokknum spilar stóran þátt í
því að gera langa daga fjöruga.
Þrjú ár frá missi
Eva Dögg missti pabba sinn í slysi
fyrir þremur árum og segir að hann
hafi alltaf hvatt hana til að taka þátt
í stjórnmálum.
„Það voru núna í mánuðinum
þrjú ár frá því að pabbi minn lést í
slysi. Hann var alltaf að segja mér
að fara í pólitík og var viss um
að ég ætti heima þar. Ég var aldr-
ei eins viss um að það væri minn
vettvangur,“ segir Eva Dögg, sem á
sínum yngri árum hafði meiri áhuga
á alþjóðastofnunum og mannúðar-
samtökum.
„Hann hefði verið mjög stoltur af
mér. Ég hugsa mikið til hans í pontu
og ég fæ alltaf smá svona í hjartað
þegar ég sé Davíðsdóttir á skjánum
eða það er lesið upp,“ segir Eva Dögg
sem er elst fimm systkina.
„Það er mikill stuðningur í
mömmu. Hún er skólastjórnandi og
ég leita mikið til hennar um þann
málaflokk, sem ég hef líka mikinn
áhuga á,“ segir Eva, og að hún von-
ist til þess að málaflokkurinn verði
tekinn föstum tökum á kjörtíma-
bilinu og nefnir sérstaklega börn
með fjölþættan vanda.
Eva Dögg hefur ferðast nokkuð og
búið víða. Hún hefur verið búsett í
Noregi, Bandaríkjunum og Ind-
landi.
„Við f luttum út til Noregs þegar
ég var tvítug en mamma kom aftur
heim eftir að pabbi dó. Hann dó hér
á Íslandi í hestaslysi. Fjölskyldan er
um víðan völl. Tvö systkini mín
eru enn í Noregi. Einn bróðir minn
í Bandaríkjunum og einn hér á
Íslandi,“ segir Eva Dögg og að þrátt
fyrir fjarlægðina séu þau mjög náin.
Fékk símtalið í Tansaníu
Hún segir að eftir andlát föður
hennar hafi hún leitað mikið heim.
„Ég var í Tansaníu á fundi þegar
ég fæ þessar fréttir. Ég fæ þetta
símtal þar. Pabbi minn var ungur
Hugsar til
pabba síns í pontu
Eva Dögg segir að það sem hafi mest komið á óvart við þingmannsstarfið séu nefndastörfin FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Eva Dögg var við rannsóknir í Indlandi MYND/AÐSEND Eva missti pabba sinn í hestaslysi fyrir þremur árum
í líkama og í anda. Hann var bara
56 ára og afskaplega sprækur og
lifandi maður. Þetta var rosalegt
áfall og sorgin er eitthvað sem
fylgir manni alltaf. Fyrst er maður
í algeru „survival mode“ og í púpu
með sínum nánustu og rússíban-
af læði. En svo af því að við erum
búsett á víð og dreif fórum við í sitt-
hvora áttina og höfum tekist á við
þetta á ólíkan hátt, en mér finnst
mikilvægt að finna tóninn. Eins og
dánardagurinn hans, ég er enn að
reyna að finna hvernig maður á að
tækla það.“
Hún segir að minning pabba
hennar sé sterk og að vegna þess
hve aktívur hann var þá sé hann
alltaf stór partur af hestamennsku
hennar og öðrum tómstundum eins
og sjósundi.
„Og svo auðvitað hef ég hugsað
sterkt til hans hérna á þingi. Ég
heyri röddina og hversu stoltur
hann myndi vera af mér. En svona
missir breytir manni og kannski til
hins betra. Maður verður einhvern
veginn næmari og vex.“
Eva Dögg segir að í gegnum tíðina
hafi hún verið hvatvís og oft látið
vaða, eins og með ferðalög, en eftir
að hún missti pabba sinn þá hafi
lífið fengið nýtt samhengi og hún
meiri kjark til að gera það sem hana
langaði að gera.
„Það kom því ekkert endilega
fjölskyldunni á óvart að ég færi
fram en mig hefði aldrei getað órað
fyrir því hversu afdrifarík ákvörð-
unin var.“
Umhverfismálin alls staðar
Spurð um umhverfisstefnu VG segir
Eva Dögg að henni þyki mikilvægt
að stefna þess f lokks sem hún til-
heyrir sé framsækin og að í gegnum
tíðina hafi hún alltaf tengt mest við
stefnu VG.
„Það var ekki spurning hvar ég
myndi enda. Ég sá ekki fyrir mér að
beita mér neins staðar annars stað-
ar en með Vinstri grænum, auk þess
sem það er auðvitað spennandi að
vera hluti af stjórnarflokki og hafa
þannig f leiri tækifæri til að hafa
áhrif. Okkar nálgun er þannig að
þetta er málefni sem að skarar alla
málaf lokka og það þarf að hugsa
um það þannig,“ segir hún.
En manni finnst stundum eins og
það þurfi ekki mikið til að þessi mál
endi í aftursætinu? Nú er enn heims-
faraldur og svo er stríð í Evrópu.
„Já, það er fátt verra fyrir sam-
félag og umhverfið en að vera
í stríðsrekstri. Ég hef auðvitað
áhyggjur af því en ég vona að stríðið
verði til dæmis til þess að það skap-
ist aukinn þrýstingur á orkuskipti.
Því það er ekki sjálf bært, í mörgum
skilningi, að treysta á jarðefna-
eldsneyti. En ég hef áhyggjur, því
vísindin eru skýr. Við höfum ekki
mörg ár til að bregðast við og við
þurfum skýra stefnumótun sem er
fylgt eftir,“ segir Eva Dögg, sem þó
bendir á að enn er tími til að snúa
þessari þróun við.
Stundaði rannsóknir á
átakasvæði
Samhliða því að vera á þingi er Eva
Dögg í doktorsnámi í umhverfis- og
þróunarfræðum.
Sem hluti af doktorsverkefni
hennar fór hún til Indlands og gerði
rannsókn í ríki sem kallast Jhark-
hand.
Fannstu til ábyrgðar?
„Auðvitað. Indland er þann-
ig að þú ert mætir ójöfnuðinum
og finnur fyrir þinni stöðu í sam-
félaginu. Það var hálfsúrrealískt
að búa í þorpi þar sem er ekki að
finna nein nútímaþægindi. Fólk er
kannski með sólarsellu en það er
ekkert rafmagn eða rennandi vatn.
Þarna voru margir, og sérstaklega
konur, sem hafa aldrei farið út fyrir
kannski 40 ferkílómetra svæði. Þá
upplifir maður sterkt hversu hepp-
inn maður er.“ n
Lovísa
Arnardóttir
lovisa
@frettabladid.is
Nánar á frettabladid.is
32 Helgin 2. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ