Fréttablaðið - 02.04.2022, Blaðsíða 42
Fjármála- og áhættustýringarsvið
Fjármálasérfræðingur á áætlana- og uppgjörsskrifstofu
Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar leitar eftir öflugum starfsmanni í starf sérfræðings á áætlana- og
uppgjörsskrifstofu. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir mikilli greiningarhæfni, sýnir frumkvæði og er lipur í samskiptum.
Áætlana- og uppgjörsskrifstofa er ein af skrifstofum fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar. Helstu verkefni eru
gerð fjárhagsáætlunar og fimm ára áætlunar, uppgjör A-hluta og samstæðu, fjárhagslegar greiningar á rekstri og fjárfestingum
og upplýsingargjöf til borgarstjóra og borgarráðs.
Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022.
Nánari upplýsingar veitir Erik Tryggvi Striz Bjarnason skrifstofustjóri áætlana- og uppgjörsskrifstofu í gegnum tölvupóstfangið
erik.tryggvi.striz.bjarnason@reykjavik.is.
Um er að ræða 100% starf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Undirbúningur og vinnsla fjárhagsáætlunar
• Þróun og gerð úthlutunar- og reiknilíkana Reykjavíkurborgar
• Meðhöndlun fjárheimilda
• Þróun og umsjón með fjárhagsáætlunarkerfi Reykjavíkur-
borgar
• Ritstjórn, vinnsla og umsjón með skýrslum og greinar-
gerðum í tengslum við uppgjör og fjárhagsáætlun.
• Greiningar á fjárhagslegum sem og ófjárhagslegum
gögnum, ásamt þróun á framsetningu lykiltalna og
mælikvarða vegna greininga og eftirlits
• Samskipti, ráðgjöf og þjónusta við fagsvið og kjarnasvið
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun og/eða 3 ára reynsla af sambærilegu
starfi æskileg
• Þekking og kunnátta á rekstri, áætlanagerð, reikningshaldi,
fjármálalegum greiningum og opinberri stjórnsýslu
er kostur.
• Rík greiningarhæfni og færni í tölulegri gagnavinnslu
• Gott vald á upplýsingatækni og notkun hennar til úrvinnslu
gagna og skýrslugjafar
• Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í hópi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Jákvæðni, þjónustulund og lipurð og hæfni í mannlegum
samskiptum
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni
• Fjárhagsbókhald
• Birgðabókhald
• Afstemmingar
• Virðisaukaskattsskýrslur
• Launavinnsla
• Aðstoð við uppgjör og uppsetningu ársreiknings
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
• Reynslumikill bókari eða viðskiptafræðingur með góða reynslu af
bókhaldsvinnu
• Framúrskarandi þekking á Navision Business Central
• Reynsla í launavinnslu
• Góð færni í Excel
• Góð almenn tölvukunnátta
• Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Liðshugsun og þekking á félagsstörfum
• Góð samskiptahæfni, heiðarleiki, jákvætt viðmót og þjónustulund
• Hreint sakavottorð
Slysavarnafélagið Landsbjörg leitar að reynslumiklum
einstaklingi til að sjá um bókhald félagsins og launavinnslu.
Um 100% starf er að ræða.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg eru landsamtök
björgunarsveita og
slysavarnadeilda á Íslandi.
Félagið er ein stærstu
samtök sjálfboðaliða
á Íslandi.
Bókhald
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar um starfið veitir Margrét Gunnarsdóttir,
fjármálastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, í síma 570 5900
eða á margret@landsbjorg.is
Umsóknir ásamt ferilskrá óskast sendar fyrir 11. apríl á
netfangið starf@landsbjorg.is
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is