Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 0. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 34. tölublað . 110. árgangur .
FYRST ÍSLEND-
INGA TIL AÐ
SPILA Í MEXÍKÓ
MIKIL VINNA
AÐ VERA
ÁHRIFAVALDUR
CAMILLA RUT 40ANDREA RÁN 51
Lilja Alfreðs-
dóttir viðskipta-
ráðherra telur að
bankarnir eigi, í
ljósi mikils hagn-
aðar, að létta
undir með heim-
ilum og fyrir-
tækjum sem
horfa fram á
hærri vaxtabyrði
vegna vaxta-
hækkana Seðlabankans.
„Bankanir eru að skila ofurhagn-
aði og hagnaður þeirra verður meiri
í kjölfar stýrivaxtahækkana Seðla-
banka Íslands. Ég tel að það eigi að
nota þennan ofurhagnað til að greiða
niður vexti fólksins í landinu,“ segir
Lilja sem situr jafnframt í ráðherra-
nefnd um efnahagsmál.
„Ég tel því mjög mikilvægt að
ákveðin heimili, sérstaklega ungs
fólks og tekjulágra, sitji ekki eftir
með svartapétur. Það er því betra að
bankarnir komi strax inn í þetta og
fari að huga að heimilunum í landinu
og ef bankarnir finna ekki einhverja
lausn á því tel ég að við ættum að
endurvekja bankaskattinn,“ segir
Lilja sem rökstyður þetta í Morgun-
blaðinu í dag. »6
Bankarnir
styðji við
heimilin
Lilja
Alfreðsdóttir
- Bankaskattur
sé hinn kosturinn
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Takmörkun afhendingar Lands-
virkjunar á raforku samkvæmt
samningum um skerðanlega orku til
fjarvarmaveitna á köldum svæðum,
stóriðjufyrirtækja og gagnavera
kom til framkvæmda á miðnætti.
Áður hafði skerðing orku til fiski-
mjölsverksmiðja og fiskþurrkana á
köldum svæðum tekið gildi.
Ástæðan fyrir því að Landsvirkj-
un virkjar ákvæði í samningum um
skerðanlega orku er lakur vatnsbú-
skapur á hálendinu. Stærsta hluta
skerðingarinnar bera fiskimjöls-
verksmiðjurnar en alveg er skrúfað
fyrir afhendingu til þeirra eins og
fiskþurrkana og fjarvarmaveitna á
köldum svæðum.
Fiskimjölsverksmiðjurnar og
fjarvarmaveiturnar taka á sig mik-
inn aukakostnað með kaupum á
jarðefnaeldsneyti til að knýja katl-
ana í stað rafmagns. Þannig er áætl-
að að Orkubú Vestfjarða þurfi að
bera 360 milljóna króna kostnað
vegna þessa en það svarar til þess
að tveggja ára rekstrarhagnaður
hafi flogið út um gluggann, eins og
Elías Jónatansson orkubússtjóri
tekur til orða.
Áætlað hefur verið að skerðing-
arnar standi í þrjá til fjóra mánuði.
Ekki er þó ljóst hvenær skerðingum
lýkur, veðurfar og þá sérstaklega
vorkoman mun stýra því, samkvæmt
upplýsingum Landsvirkjunar. »16
Olíukatlar sjö fjar-
varmaveitna ræstir
- Lokað fyrir skerðanlega orku - Mikill kostnaður og mengun
nýttir til undirbúnings þar sem ör-
yggi björgunarmanna hefur verið
haft að leiðarljósi. 22 kafarar munu
taka þátt í aðgerðinni.
Veðurspá er hagstæð en ef ekki
tekst að tryggja öryggi björg-
unarmanna verður aðgerðum frest-
að. »6
Björgunaraðgerðir sem miða að því
að sækja lík þeirra manna sem fór-
ust í flugslysinu í síðustu viku eiga
að hefjast í dag. Viðbragðsaðilar
eiga að vera tilbúnir með sinn bún-
að klukkan níu að morgni.
Uppsetning vinnubúða fór fram í
gær en síðustu dagar hafa verið
Ríflega tuttugu kafarar taka þátt
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Björgunaraðgerð Vinnubúðum vegna aðgerðanna var komið upp í gær.
Þessir ferðamenn í Reykjavík létu snjó og kulda ekki hindra sig í að skoða
sig um í höfuðborginni og vekur Sólfarið ávallt mikla athygli.
Veðurfarið í borginni hefur enda verið tiltölulega milt eftir hinar rauðu
og gulu veðurviðvaranir sem settu svip sinn á upphaf vikunnar.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Stilla á eftir storminum við Sólfarið