Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Horfnar
Höf. Stefán Máni
Les. Rúnar Freyr Gíslason
Lengsta nóttin
Höf. Ann Cleeves
Les. Margrét Örnólfsdóttir
Dagbók Kidda klaufa
Höf. Jeff Kinney
Les. Oddur Júlíusson
Palli Playstation
Höf. Gunnar Helgason
Les. Gunnar Helgason
Sjálfstýring
Höf. Guðrún Brjánsdóttir
Les. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir
Stúlkan sem enginn saknaði
Höf. Jónína Leósdóttir
Les. Elín Gunnarsdóttir
Við skulum ekki vaka
Höf. Heine Bakkeid
Les. Stefán Jónsson
Arnaldur Indriðason deyr
Höf. Bragi Páll Sigurðarson
Les. Björn Stefánsson
vi
ka
5
Klettaborgin
Höf. Sólveig Pálsdóttir
Les. Sólveig Pálsdóttir
Þetta gæti breytt öllu
Höf. Jill Mansell
Les. Sólveig Guðmundsdóttir
TOPP 10 vinsælustu hljóðbækur á Íslandi.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
L
andsmenn hafa löngum
hópast saman í ýmiss kon-
ar félagsstarf og stofnað
margs konar samtök en
sem von er hefur heimsfaraldurinn
Covid-19 haft mikil áhrif á þessa
starfsemi eins og annað. Félögin
hafa brugðist við á ýmsa vegu en
sum orðið verr úti en önnur.
Á landinu starfa ótal kórar og
hefur þeim vegnað misvel und-
anfarin misseri. Magnús Ragn-
arsson, kórstjóri Kórs Langholts-
kirkju og Söngsveitarinnar
Fílharmóníu, hefur haldið úti viku-
legum æfingum og nýtt til þess fjar-
fundaforrit þegar þess hefur þurft.
„Við búum líka það vel að geta æft í
sjálfri Langholtskirkju. Það skiptir
svo miklu máli að hafa hátt til lofts
og vítt til veggja, þá er smithættan
minni.“ Núna er þetta þannig að
hluti hópsins mætir en aðrir eru á
Zoom. Það er að vísu ekki hægt að
syngja saman í gegnum Zoom en vel
hægt að kenna ólíkar raddir og slíkt.
„Ég hef sagt við fólkið mitt þegar
við höfum verið að æfa fyrir tónleika
sem við vitum ekki hvort verða
haldnir að það skiptir máli að halda
röddinni í formi. Það geta komið
stór verkefni með stuttum fyr-
irvara.“
Harmsaga frá í mars 2020
Það hefur ekki öllum kórum
tekist að halda uppi æfingum undan-
farin tvö ár. „Þetta er búin að vera
ein harmsaga frá því í mars 2020,“
segir Eggert Benedikt Guðmunds-
son, formaður Karlakórs Reykjavík-
ur. „Við höfum ekki getað haldið
tónleika og nánast ekkert getað æft.
Við höfum aðeins komið saman úti,
sungum til dæmis niðri í bæ á að-
ventunni. Núna erum við aðeins
farnir að æfa og erum þá með skipt-
an kór.“
Kórfélagar virðast ekki hafa
helst úr lestinni við þessar hömlur.
„Þegar það má koma saman þá eru
þeir mjög duglegir að mæta. Menn
eru orðnir mjög sólgnir í að fá að
syngja aftur. Þetta er mikil sálu-
hjálp fyrir alla,“ segir Eggert.
Rótarýklúbbum landsins hefur
að mestu tekist að halda sína viku-
legu fundi. „Ég held að það megi al-
mennt segja að það hafi gengið ótrú-
lega vel að halda úti félagsstarfinu.
Klúbbarnir hafa fundið leiðir til
þess,“ segir Ásdís Helga Bjarna-
dóttir umdæmisstjóri. Margir skiptu
yfir í fjarfundi en aðrir voru með
blandað kerfi þannig að hluti hóps-
ins mætti á staðinn en aðrir voru
heima. Það voru mest klúbbar úti á
landi sem héldu áfram að hittast en
klúbbarnir á höfuðborgarsvæðinu
skiptu að mestu yfir í fjarfundi.
Áhuginn á samverunni á Rót-
arýfundum, þótt rafrænir séu, hefur
ekki minnkað. „Það var mjög
skemmtilegt að elstu félagarnir ósk-
uðu eftir að það yrði opnað hálftíma
fyrr inn á fjarfundina svo þeir gætu
spjallað óformlega saman fyrst.“ Fé-
lögum hefur frekar fjölgað en hitt.
Nærri allir klúbbarnir lögðu niður
starf í janúar en flestir funduðu með
hefbundnum hætti á ný í þessari
viku.
Frumleg á samfélagsmiðlum
Hjá Þjóðdansafélaginu hefur
allt starf legið niðri síðan í mars
2020. „Það hefur bara verið lokað
hús algjörlega og ekkert nema
kostnaðurinn. Þetta er áhuga-
mannafélag sem hefur enga styrki.
Við eigum húsnæðið sem við erum í
og sem betur fer skuldlaust en
rekstrarkostnaðurinn er mikill,“
segir Bendt Pedersen, formaður fé-
lagsins.
Ólíkt samkvæmisdönsum þar
sem dansað er í pörum gengur þjóð-
dansinn út á ýmiss konar skiptid-
ansa, að halda í hendurnar hvert á
öðru í hringjum og syngja. Það
gengur ekki þegar viðhalda á
fjarlægðarreglum. „Við erum að
vonast til að geta farið að gera eitt-
hvað fljótlega. Þetta hefur verið
mjög bagalegt fyrir okkur.“ Ein
tekjulind félagsins er þjóðbún-
ingaleiga sem nýtist meðal annars á
peysufatadögum framhaldsskólanna
en sá gleðskapur hefur auðvitað fall-
ið niður undanfarið.
Bára Grímsdóttur, formaður
Kvæðamannafélagsins Iðunnar,
segir marga fundi félagsins hafa fall-
ið niður. Eftir að faraldurinn skall á
féllu fundir og skemmtikvöld félags-
ins niður út árið. Þau hittust hins
vegar í Heiðmörk og héldu streym-
istónleika. Það gekk mun betur árið
2021 og þá tókst að halda ýmsa
fundi. Þau hafa sleppt söngvökunum
því þar er hist í litlu rými og sungið
saman. „En við virkjuðum fésbók-
arsíðuna okkar og fengum skáld,
tónlistarmenn og kvæðamenn til að
taka sig upp á myndbönd.“
Hjá Ármönnum, félagi flugu-
veiðimanna, hefur verið gripið til
ýmissa ráða til þess að halda starf-
semi félagsins gangandi. Þeir hafa
nýtt netið og meðal annars framleitt
myndbönd um hnýtingar og haldið
rafræn fræðslukvöld. Hjörtur Odds-
son, formaður félagsins, bendir á, að
að ýmsu þurfi að huga varðandi lög-
gjöf félagasamtaka svo halda megi
fjarfundi, sérstaklega varðandi aðal-
fundi.
Hluti af starfsemi Ármanna fer
fram utandyra, til dæmis kast-
kennsla á Klambratúni og fé-
lagsmenn hafa hist til þess að
hreinsa strendur Hlíðarvatns eftir
veturinn. Hjörtur segist hafa fundið
fyrir meiri þátttöku í þeim við-
burðum en oft áður. „Fólk er svolítið
eins og beljur að vori, áfjáð í að fara
að hreyfa sig og hitta fólk.“ Mæt-
ingin á hnýtingarkvöld félagsins
sem haldin eru vikulega hefur hins
vegar verið takmörkuð, margir fé-
lagsmenn hafa verið varkárir. En
tíminn hefur nýst til þess að flytja í
nýtt húsnæði og bæta aðstöðuna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Karlakórinn „Menn eru orðnir mjög sólgnir í að fá að syngja aftur. Þetta er mikil sáluhjálp fyrir alla.“
Bagaleg staða en
leita sífellt lausna
Heimsfaraldurinn hefur haft áhrif á allt samfélagið og er félagsstarf fullorðinna
ekki undanskilið. Sum félagasamtök hafa neyðst til þess að leggja niður starfsemi
sína á meðan önnur hafa brugðið á ýmis ráð til þess að halda lífi í starfinu.
Morgunblaðið/Eggert
Dansað Allt starf hefur legið niðri hjá Þjóðdansafélaginu enda mikil snert-
ing og samvera hluti af því. Formaður félagsins segir stöðuna bagalega.
Næsta laugardag ætla strengjasveitir
Tónlistarskólans á Akureyri að
standa fyrir Tíu tíma tónflæði. Tón-
listin mun óma laugardaginn 12. febr-
úar, allan liðlangan daginn eða frá kl.
10 til 20.
Þar mun fjöldi strengjanemenda,
allt frá hljómsveitum til smærri sam-
spilshópa stakra nemenda, leggja
hönd á plóg við að halda tónlistinni
gangandi í Hömrum í Hofi í heila tíu
tíma.
Tónaflóðið er skipulagt bæði til að
halda upp fjöri þrátt fyrir allt kóvidið,
en krökkunum þykja svona uppá-
komur yfirleitt mjög skemmtilegar,
og einnig í fjáröflunarskyni, en for-
eldrafélagið býður fyrirtækjum að
heita á hina ungu strengjaleikara.
Safnað verður í ferðasjóð nemend-
anna og mun hann nýtast til hljóm-
sveitaferðalaga og annarra slíkra við-
burða. Eru menn hvattir til að leggja
leið sína í Hof á laugardag og láta
smáræði af hendi rakna í sjóðinn.
Strengjasveitir Tónlistarskólans á Akureyri
Tónlist flæðir í tíu tíma í Hofi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Strengir Nemendur tónlistarskólans
á 70 ára afmæli hans árið 2016.
Listamaðurinn Uldis Ozols hefur
„sjónrænt, þrívítt samtal“ á Torginu,
á fyrstu hæð Borgarbókarsafnsins
Grófinni, í dag, fimmtudaginn 10.
febrúar, kl. 17. Viðburðurinn er kall-
aður „Viltu sjá sögu?“ en þar verða
fluttar gamansögur, barnasögur,
„VV“-sögur og sannar sögur sem allir
geta skilið, hvort sem þeir kunna ís-
lenskt táknmál eða ekki.
Í tilkynningu frá bókasafninu segir:
„Frásagnarhefðin er rík í táknmáls-
samfélögum heims og varðveita sög-
urnar bæði menningu og sögu hóps-
ins sem og táknmálið sjálft. Íslenskt
táknmál er þar engin undantekning
og eru sögurnar sem varðveittar eru
ígildi bókmennta íslenskrar tungu,
menningarverðmæti og heimild um
þróun málsins og þar með málsögu.
Sögurnar lifna við í flutningi sögu-
manns sem hefur gott vald á tákn-
máli og nýtir hið sjónræna, þrívíða
mál til hins ýtrasta.“
Þrívítt samtal á Borgarbókasafninu Grófinni
Sjónrænar sögur lifna við
Ljósmynd/Colourbox
Sögur Frásagnarhefð táknmálsins í
hávegum höfð í Grófinni.