Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur tilkynnt að
nú styttist í útboð og framkvæmdir
á fyrsta áfanga á Hlemmi ásamt
Rauðarárstíg, frá Bríetartúni að
Hverfisgötu. Reykjavíkurborg og
Veitur hyggjast kynna og upplýsa
borgarbúa og hagsmunaaðila um
næstu skref.
Reykjavíkurborg efndi í lok árs
2017 til hugmyndaleitar Hlemm-
svæðisins. Þremur arkitektastofum
var boðið að taka þátt í verkefninu,
sem fólst í því að ímynda sér
Hlemm framtíðarinnar.
Athygli vakti að í öllum þremur
tillögunum var ekki gert ráð fyrir
akstri bíla niður Laugaveg við
Hlemm, eins og verið hafði í áratugi.
Strætisvögnum og borgarlínu verð-
ur beint niður Hverfisgötu og
Laugaveg í sérrými gegnum nýtt
torgsvæði norðan Hlemms.
Hönnunartillögur Mandaworks í
Svíþjóð og DLD – Dagný Land
Design urðu fyrir valinu árið 2018
og unnin var áframhaldandi hönnun
á Hlemmi. Yrki arkitektar unnu
deiliskipulag að svæðinu í samstarfi
við Reykjavíkurborg og hönnuði
svæðisins.
Snákur fyrstur á svæðið
Fram kemur í tilkynningu á vef
Reykjavíkurborgar að breytingin
nái til lóða og almenningsrýma sem
eru í eigu borgarinnar. Stækka á
Hlemmtorg með því að breyta um-
ferð um svæðið.
„Tilgangur breytinga er að ná ut-
an um framkvæmdasvæðið sem
fylgdi breytingum á gatnamótum
Borgartúns við Snorrabraut og
framlengingu hjólastíga yfir Sæ-
braut,“ segir í tilkynningunni.
Það sem er á döfinni á árinu 2022
er kafli á Laugavegi, svokallaður
snákur, sem myndar afmarkað
svæði með gróðri, setsvæðum, hjóla-
stæði og óformlegum leikrýmum.
Fyrsti áfanginn, sem verður fram-
kvæmdur í sumar, nær frá Snorra-
braut að húshorninu til móts við
Hlemm Mathöll.
„Stálprófíll sem rís og hnígur er
leiðandi þáttur á þessum kafla en í
honum er einnig falin óbein lýsing á
völdum svæðum og afmarkar hann
þjónustuleiðir í göturýminu. Yf-
irborð snáksins er myndað með
náttúrusteini, en leiðin þjónar einn-
ig hlutverki blágrænna ofanvatns-
lausna. Sólarmegin á Laugaveg-
inum er gert ráð fyrir að veitinga-
staðir geti vaxið út í göngurýmið,“
segir í lýsingu á verkefninu.
Rauðarárstígur frá Grettisgötu að
Hlemmi er sólrík gata og í tillögunni
er gert ráð fyrir setsvæðum og
leikmöguleikum í átt að torgsvæð-
inu. Lítil hestahjörð stefni að torg-
inu en það eru hreyfanlegir
abstrakt hestar sem mynda m.a
set- og leiksvæði. Veitinga- og
þjónustufyrirtæki geti einnig vaxið
út í göngurýmið, eins og það er
orðað.
VSÓ ráðgjöf, í samstarfi við
Reykjavíkurborg, hannaði yfir-
borðs- og gatnahönnun fyrir Rauð-
arárstíg, norður af Hlemmi. Svæðið
er hannað sem vistgata, er í einum
fleti og allt rýmið verður hellulagt.
Meðal breytinga má nefna:
- Gatnamót við Bríetartún
verða upphækkuð og akstursrými
afmarkað með lágum kantsteini.
- Rauðarárstígur verður lok-
aður til suðurs við Gasstöðina og
með snúningshaus fyrir fólksbíla í
botni götunnar.
- Meðfram húsaröð við Rauðar-
árstíg er aðkomusvæði íbúðarhús-
anna þar sem útfæra má í samráði
við húseigendur rampa að inn-
gangi. Við jaðar bygginganna er
gert ráð fyrir grænu gróðursvæði
að hluta sem skapi mjúka ásýnd og
geti orðið dvalarsvæði fyrir íbúana.
Bekkir og klakkar afmarka svæðið
næst húsunum.
- Götutré verða gróðursett í
trjárist meðfram götunni og regn-
beð með fjölbreyttum gróðri.
- Lýsing í götunni verður með
4-5 metra háum miðborgarlömpum.
Götugögn, s.s. bekkir og hjóla-
grindur, verða í samræmi við götu-
gagnastefnu Reykjavíkurborgar.
- Næst torgsvæðinu og Hlemmi
verður komið fyrir stæðum fyrir
hreyfihamlaða.
Hlemmur mun gjörbreytast
- Styttist í útboð
og framkvæmdir
á fyrsta áfanga að
breyttum Hlemmi
Tölvumynd/Mandaworks og DLD
Hlemmur framtíðarinnar Svona sjá hönnuðirnir fyrir sér að svæðið muni líta út að framkvæmdum loknum.
Löggiltur heyrnarfræðingur
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Gríptu til þinna ráða
Pantaðu tíma í
HEYRNAR
GREININGU
Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun heyrn.is