Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 34

Morgunblaðið - 10.02.2022, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Aðstæður í efnahagslíf- inu hafa breyst hratt og Seðlabanki Íslands brást við því í gær. Hækkun stýrivaxta upp á 0,75% þurfti ekki að koma á óvart í ljósi þróunar verðbólgu og ann- arra hagstærða. Viðbrögð seðlabankastjóra við spurningum um hvort Seðla- bankinn hafi gert mistök þegar kórónuveirufaraldurinn skall á þurfa ekki heldur að koma á óvart. Ásgeir Jónsson seðla- bankastjóri benti á að slík um- ræða bæri vott um minnisleysi, margir þeir sem þannig töluðu nú hafi áður talað með allt öðr- um hætti. Seðlabankinn hafi lagt áherslu á heimilin, að tryggja kaupmátt og stöðug- leika. Það var ekki sjálfgefið að Ís- land færi jafn vel í gegnum far- aldurinn og raun ber vitni. Lægri vextir áttu stóran þátt í að það tókst. Hefði áherslan ein- göngu verið á ríkisfjármálin eða jafnvel ef ekkert hefði verið gert, eru allar líkur á að áfallið hefði verið mun meira og al- mennara. Lífskjör hefðu þá rýrnað hratt og mikið og horfur í dag væru allt aðrar en nú er, þó að óvissan sé vissulega enn mikil eins og Seðlabankinn bendir á í riti sínu, Peningamálum. Hluti óvissunnar og hluti hækkunar verðlagsins er utan við það sem Ísland getur haft áhrif á. Miklar verðhækkanir á orku og hrávöru erlendis hafa áhrif hér á landi, enda er al- mennt vöruverð mjög á uppleið þar vegna þessarar þróunar. Þetta hefur óhjákvæmilega áhrif á verðbólguna hér á landi á næstunni, jafnvel þó að gengi krónunnar haldi áfram að styrkjast nokkuð, en um það er ekkert hægt að fullyrða og Seðlabankinn gerir ráð fyrir að það verði nokkuð stöðugt. Innanlands er þó hægt að hafa mikil áhrif á þróun verð- bólgunnar, einkum með aðgerð- um á fasteignamarkaði og með aðgerðum á vinnumarkaði. Seðlabankinn nefnir hvort tveggja í umfjöllun sinni um stöðu og horfur og bendir á að verðhækkanir á húsnæðismark- aði vegi þungt í verðbólgunni og geri útlit um verðbólgu verra. Í Peningamálum er bent á að verðbólguhorfur hafi versnað töluvert frá því í nóvember sem megi rekja til kröftugri efna- hagsbata og þrálátari hækkunar húsnæðisverð en áður hafi verið gert ráð fyrir. Verðþróun hús- næðis skýrir tæplega helming verðbólgu á ársgrunni, sem sýn- ir þann mikla vanda sem þessi þáttur veldur. Af þessu má draga þá ályktun að hefði hækkun húsnæðisverðs verið hófleg væri mun minni þörf fyrir hækkun vaxta og raunar leikur ekki vafi á að vext- ir væru lægri hefði húsnæðisverð ekki þróast með þeim hætti sem það hefur gert. Þegar svo er komið er augljóst að þeir sem geta haft áhrif á þessa þróun verða að meðtaka skilaboðin og grípa til þeirra ráðstafana sem duga svo ná megi vöxtum niður sem fyrst, eða í það minnsta koma í veg fyrir áframhaldandi vaxtahækk- anir. Fram undan eru sveitar- stjórnarkosningar og þetta hlýt- ur að verða eitt meginviðfangsefni þeirra, ein- faldlega vegna þess að það eru sveitarfélögin sem ráða lóða- framboði og það er lóðafram- boðið sem ræður miklu um þró- un húsnæðisverðs. Þetta á vitaskuld einkum við á höfuð- borgarsvæðinu og þar ræður höfuðborgin sjálf langmestu um þróunina. Vandinn er hins vegar sá að í höfuðborginni er við stjórn meirihluti sem fylgir þeirri einstrengingslegu stefnu að ekki megi stækka borgina með því að byggja á nýju landi, íbúðum megi aðeins fjölga með því að þétta byggð. Þetta hefur meðal annars komið skýrt fram hjá frambjóðendum Samfylk- ingarinnar vegna prófkjörs flokksins um næstu helgi. Þessi þéttingarstefna er því orðinn einn helsti efnahagsvandi þjóð- arinnar og veldur landsmönnum öllum, ekki aðeins Reykvík- ingum, miklum kostnaði. Staðan á vinnumarkaði er einnig með þeim hætti að miklu skiptir að þar verði skyn- samlegar á málum haldið og mun það valda miklu um þróun verðbólgu og efnahagsmála al- mennt. Atvinnuleysi hefur þróast með jákvæðum hætti og kaupmáttur launa hefur vaxið hratt þrátt fyrir faraldurinn, sem vissulega er ánægjuefni í sjálfu sér en um leið ábending um að varlega þarf að fara í framhaldinu. Í Peningamálum segir að útlit sé fyrir að launa- hækkanir vegna hagvaxtarauka kjarasamninga verði meiri í ár en gert var ráð fyrir í nóvember en minni á næsta ári. Horfur séu á litlum framleiðnivexti og að launakostnaður á framleidda einingu hækki því töluvert. Í þeim kjaraviðræðum sem fram undan eru er afar þýðing- armikið að væntingar taki mið af þróun síðustu ára og þeim raunveruleika sem atvinnulífið stendur frammi fyrir. Miklar launahækkanir í heimsfaraldri voru umfram innistæðu og úti- lokað er að slík þróun geti haldið áfram. Þrátt fyrir að verðbólga fari vaxandi og vextir þurfi að hækka eru horfur í efnahags- málum hér á landi í stórum dráttum jákvæðar, en þó og því aðeins að ráðstafanir á húsnæð- ismarkaði og vinnumarkaði verði skynsamlegar. Nú þarf réttar að- gerðir á húsnæðis- og vinnumarkaði} Viðbúin vaxtahækkun BAKSVIÐ Guðni Einarsson gudni@mbl.is R annsóknir benda til þess að fólk með gleraugu sé betur varið gegn smiti af nýju kórónuveirunni en þeir gleraugnalausu. Danskir og norskir vísindamenn eru að hefja rannsókn á því hvort kórónuveiran geti borist inn í líkamann í gegnum slímhúð augnanna. Danska ríkis- útvarpið DR greindi frá þessu. Þar er minnt á að andlitsgrímur og handspritt hefur verið hluti af daglegu lífi okkar í bráðum tvö ár. Svo kunni þó að vera að okkur hafi yfirsést önnur mikilvæg vörn sem gæti forðað fólki frá því að smitast af kórónuveirunni. Vísbendingar eru um að venjuleg gleraugu geti varið augun fyrir loftbornum dropum sem veiran dreifist með í andrúmsloftinu. Þannig bendir bresk rannsókn (https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/ articles/PMC8193301/) til þess að fólk sem gengur með gleraugu sé allt að 23% betur varið gegn kór- ónuveirusmiti en gleraugnalaust. Í grein sem birtist í In Vivo í fyrrasumar er sagt frá því að rann- sókn á 276 sjúklingum, sem veiktust í byrjun faraldursins í Hubei-héraði í Kína, sýndi að hlutfall þeirra í hópnum sem gengu með gleraugu lengur en átta stundir á dag var lægra en almennt gerðist. Gler- augun virtust því mögulega hafa veitt vörn gegn smiti m.a. vegna þess að fólk snerti síður á sér augun ef það var með gleraugu. Tímabært að rannsaka þetta Hópur danskra og norskra vís- indamanna ætlar að rannsaka hvort fólk getur smitast af nýju kór- ónuveirunni í gegnum augun. Thom- as Benfield, prófessor við Amager- Hvidovre-sjúkrahúsið, sagði við DR að það sé löngu orðið tímabært að rannsaka þetta. Hann er einn vís- indamannanna sem standa að rann- sókninni. Haft er eftir Benfield prófessor að vísbendingar hafi verið um það um tíma að kórónuveiran geti smit- ast í gegnum augun. Þess vegna tel- ur hann mikilvægt að fá úr því skor- ið hvort við höfum varið okkur eins vel og mögulegt er gegn kórónu- veirusmiti. Hann segir að þessi smit- leið sé þekkt í tilfelli annarra veiru- tegunda og því geti vel verið að gleraugu geti veitt vörn gegn kór- ónuveirusmiti. Veira sem veldur kvefi getur t.d. komist inn í gegnum augað og sama geti mögulega gilt um kórónuveiruna. Benfield kveðst eiga bágt með að trúa því að Covid-19 geti ekki smitast í gegnum slímhimnu augn- anna. Nú á að rannsaka hversu al- gengt það er að smit berist í gegnum augun og inn í líkamann. Komi í ljós að slík smit séu umtalsverður hluti sýkinga verði væntanlega mælt með gleraugum eða andlitshlífum til varnar. Gleraugun geta verndað Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í skriflegu svari að margar veirur smitist í gegnum aug- un og því geti gleraugu verndað gegn smiti. Hann var spurður hvort það geti verið ráðlegt að nota gler- augu til viðbótar við andlitsgrímuna, handsprittið og handþvottinn auk þess að gæta að öruggri fjarlægð frá öðru fólki í ljósi þess sem kemur fram í greininni? „Ég tel ekki ástæðu til að breyta um tilmæli fyrr en niðurstaða rannsóknarinnar liggur fyrir,“ svar- aði Þórólfur. Gleraugun verja fólk mögulega gegn smiti Fjöldi smita og innlagna á LSH með Covid-19 frá 1. júlí 2021 júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. jan. feb. 1.553 Heimild: LSH og covid.is 33 2.554 8.763 einstaklingar eru í sóttkví 2.250 2.000 1.750 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 50 einstaklingar hafa látist 2.254 ný innanlandssmit greindust sl. sólarhring Fjöldi staðfestra smita innanlands Fjöldi innlagðra sjúklinga á LSHmeð Covid-19-smit 10.100 eru með virkt smit og í einangrun 33 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af tveir á gjörgæslu og í öndunarvél Nýtt met var slegið í kórónu- veirusmitum í fyrradag en þá greindust 2.252 með Covid-19 innanlands. Greind voru 4.753 einkennasýni og 609 sóttkví- arsýni. Í sóttkví voru 29% við greiningu. Á landamærunum fundust 18 smit en greind voru 304 landamærasýni. Teknar hafa verið meira en 1,6 milljónir sýna innanlands og á landamærunum frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst fyrir bráðum tveimur árum. Í gær höfðu verið tekin alls 1.078.443 sýni innanlands. Þar að auki voru 453.402 landa- mærasýni 1, það úr fyrri sýna- töku meðan það fyrirkomulag gilti, og 116.941 landamæra- sýni 2 eða úr síðari sýnatöku. Samtals gerir það 1.648.786 sýni. Yfir 1,6 milljónir sýna teknar MET Í INNANLANDSSMITUM Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þ að er þekkt aðferðafræði í heimi klækjastjórnmála að búa til ímyndaðan andstæðing til að beina athyglinni frá vandræðum heima fyrir. Nú veit ég ekki hvaða heima- tilbúnu vandræði það eru að þessu sinni sem ríkisstjórnin þarf að fela ef það er málið, en hitt veit ég að þessi endurteknu ónot í garð Reyk- víkinga eru orðin vandræðaleg í meira lagi. Á yfirborðinu snýst þetta um skipulagsmál. Nánar tiltekið um flugvallarmál. Formaður Framsóknarflokksins og ráðherra innviðamála hefur lagt fram öðru sinni frumvarp sem felur í sér heimild ráðherrans til að svipta Reykjavík skipulagsvaldi á Reykjavíkurflugvelli, á þessu stóra og dýrmæta landsvæði í hjarta borg- arinnar. Þetta er verulegt inngrip í skipulags- vald sem er einn af hornsteinum stjórnar- skrárvarins sjálfstjórnarréttar sveitarfélaga. Nú hefur frumvarpið öðru sinni fengið samþykki þingflokka stjórn- arflokkanna þriggja þar sem ekki einu sinni Reykjavík- urþingmenn þeirra virðast hafa fengið hiksta yfir þessari grundvallarbreytingu á skipulagsvaldi sveitarfélaga. Nei afsakið, á skipulagsvaldi Reykjavíkur. Staðreyndin er nefnilega sú að þessir sömu þingflokkar stöðvuðu eigin stjórnarmál á síðasta kjörtímabili þegar um var að ræða inngrip í skipulagsmál annarra sveitarfélaga. Svo merki- legt sem það nú er. Það er nákvæmlega ekkert sem kallar á þessa stríðs- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í garð Reykjavíkur. Tillaga innviðaráðherra gengur þvert á núgildandi samkomulag ríkis og borgar um framtíðarskipulag innan- landsflugsins. Á samkomulag sem er í fullu gildi. Ríkið, Reykjavíkurborg og sveitar- félögin á Suðurnesjum eru í sameiningu að fullkanna kosti þess að flytja völl fyrir innan- landsflug, æfinga-, kennslu- og einkaflug í Hvassahraunið. Ákvörðun á að taka fyrir lok árs 2024. Reynist Hvassahraun ekki vænlegur kostur þarf að semja upp á nýtt en rekstrar- öryggi Reykjavíkurflugvallar er tryggt. Skipulagsvald sveitarfélaga er vitaskuld ekki án takmarkana. Þessi hugmynd innviða- ráðherra að fá Alþingi til að færa skipulags- valdið frá íbúum sveitarfélaga er hins vegar fráleit. Skipulagsferlar sveitarfélaga með lögbundinni upplýsingamiðlun og samráði við íbúa eru hin formlega leið íbúa til að hafa áhrif á þróunina í nærumhverfi sínu. Til- færsla valds frá þessum vettvangi og beint til ráðherra er einfaldlega slæm hugmynd út frá hagsmunum íbúa og tækifærum þeirra til að hafa áhrif á nærumhverfi sitt. Þetta veit fólk auðvitað. Ekki síst innan stjórnarráðs- ins. Kannski er málið ekki flóknara en svo að það eru að koma kosningar og ríkisstjórnarflokkarnir stefna á land- vinninga í Reykjavík. Það er hins vegar ekki auðskilið hvernig þeim getur þótt þetta inngrip í hagsmuni borgarbúa vera rétta leiðin til þess að ganga í augu þeirra. Hanna Katrín Friðrikson Pistill Hinn ímyndaði andstæðingur Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. hannakatrin@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.