Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 9. F E B R Ú A R 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 42. tölublað . 110. árgangur . Notaðu þetta frábæra tækifæri og fáðu þér vel útbúinn fjórhjóladrifinn Eclipse Cross PHEV tengiltvinnbíl með öllum þeim kostum sem hugurinn girnist – og meira til. Virðisaukinn er farinn út í bláinn! Við fellum niður 480.000 kr. VSK frá áramótum!* *Að sjálfsögðu greiðir Hekla öll gjöld og virðisaukaskatt af bílum til Ríkissjóðs. 480.000 kr. lækkunin á Mitsubishi Eclipse Cross er alfarið á kostnað Heklu. HEKLA · Laugavegi 170-174 · mitsubishi.is/eclipse Engin bómullar-kynslóð Einfaldurog tímalaussmekkur Umboðsmaður barna, Salvör Nordal, hefur lagt sérstakaáherslu á að rödd barna fái að heyrast og mark sé tekið á þeim. Hún segir vaxandi vanlíðan barna vera áhyggjuefni og því sé aldrei mikilvægara en nú að heyra hvað þau hafi að segja. Á Barnaþingi, sem haldið verður 3.-4. mars, verða mannréttindi, menntun og umhverfismál í forgrunni. 10 20. FEBRÚAR 2022SUNNUDAGUR Smitgát eða kænskubragð Pútín fundar helst við ógnarlöng borð. 24 Fyrirmælineru skýr: 112 Hermann Valsson varlátinn liggja í 48 mínútureftir að hafa misst með-vitund á júdóæfingu. 14 Fjóla RúnBrynjarsdóttirer alltaf meðeitthvað áprjónunum. 18 ÓLÝSANLEG UPP- LIFUN AÐ KEPPA Á ÓLYMPÍULEIKUM TILNEFND TIL KANADÍSKA „ÓSKARSINS“ TANJA BJÖRK 41HÓLMFRÍÐUR DÓRA 37 Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í gærkvöldi að hann væri sannfærður um að Vladimír Pútín Rússlandsfor- seti hefði þegar tekið ákvörðun um að ráðast inn í Úkraínu á allra næstu dögum. Sagði Biden á blaðamanna- fundi sínum að Rússar myndu að öll- um líkindum stefna á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Biden sagði að hann hefði átt sam- töl við bandamenn Bandaríkjanna og að tilraunir Rússa til að reka fleyg á milli þeirra hefðu mistekist. Hét Bi- den því að gripið yrði til harðra refsi- aðgerða um leið og innrás Rússa hæfist. Skoraði Biden jafnframt á Pútín að hætta við „hrikalegt og óþarft stríð“. Þá varaði Biden við því að Rússar hefðu nú hafið upplýsingaherferð til þess að reyna að telja fólki trú um að Úkraínuher ætlaði sér að hefja árás á aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins. Sagði Biden það alrangt, og hrósaði hann Úkraínumönnum fyrir að hafa ekki bitið á agnið sem Rússar væru að leggja fyrir þá. Segja Úkraínu hyggja á árás Um það leyti sem Biden tók til máls í Washington bárust fregnir af því frá borginni Luhansk, sem er á valdi rússneskumælandi aðskilnað- arsinna, að stór sprenging hefði orð- ið í gasleiðslu þar. Voru fregnirnar þegar í stað komnar á alla miðla í Rússlandi, en þar birtust ásakanir á hendur Úkra- ínumönnum um að þeir hygðu senn á stórsókn gegn aðskilnaðarsinnum. Endurómaði Pútín þær fregnir á fundi sínum með Alexander Lúka- sjenkó, forseta Hvíta-Rússlands, í Kreml í gær og sagði hann þar að ástandið í héruðum aðskilnaðarsinna færi sífellt versnandi. Innrás Rússa sögð yfirvofandi - Skorar á Pútín að forðast „óþarft stríð“ - Sprengingar í austurhluta Úkraínu MReynt að egna til átaka »21 Milljónum var sagt að halda sig heima þegar stormurinn Eunice gekk á land í suðurhluta Bretlands í gær. Um er að ræða einn versta storm sem sést hefur í landinu í áratugi að mati veðurfræðinga. Talsverðar skemmdir urðu á mannvirkjum og truflanir á samgöngum vegna ofsaveðursins. Þá voru minnst fjórir sem létu líf- ið og fjöldi manna slasaðist. Stormasamt er nú á Atlantshafi og munu Ís- lendingar ekki fara varhluta af því, þar sem gul viðvörun er í gildi fyrir Suður- og Suðausturland í dag og á morgun. AFP Milljónir héldu sig heima vegna vonskuveðurs Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur miklar áhyggjur af vaxandi vanlíðan barna. „Hún var áhyggju- efni fyrir Covid og svo hefur þetta frekar versnað en hitt. Það er eitt- hvað sem við þurfum að taka veru- lega á,“ segir hún. „Þessi Covid-faraldur hefur tekið mikið á börn og síðustu vikur og mánuðir hafa verið sérstaklega þungir fyrir þau. Þau hafa mörg ver- ið að lenda ítrekað í sóttkví, smitast og verið í einangrun, farið í endur- teknar sýnatökur og loks hefur verið mikil umræða um bólusetningar barna. Það hefur mætt mikið á þeim. Svo ég myndi segja að það hafi aldr- ei verið jafn nauðsynlegt að hitta börn og tala við þau eins og núna, eftir allt það sem á undan er geng- ið.“ Rætt er við Salvöru í Sunnu- dagsblaðinu sem fylgir Morgun- blaðinu í dag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umboðsmaður Salvör Nordal. Mikið hef- ur mætt á börnum - Hefur áhyggjur af vanlíðan barna Tökum á kvikmyndinni Luther með breska leikaranum Idris Elba lauk hér á landi í vikunni. Um þessar mundir eru fjögur erlend kvik- myndaverkefni tekin hér á landi, tvær kvikmyndir og tvær sjón- varpsþáttaraðir. Umfangsmiklar tökur fyrir risann Marvel fóru fram við Mývatn fyrir skemmstu þar sem notast var við sleðahunda á vatn- inu. Fram undan eru tökur á sjón- varpsþáttunum Retreat með Clive Owen og Emmu Corrin í aðal- hlutverkum en þær fara meðal ann- ars fram á lúxushótelinu Deplum og í Vök Baths. »11 Kvikmyndatökur á Deplum og Mývatni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.