Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
SÓL Í SUMAR
BÓKAÐU ALLT FRÍIÐ Á EINUM STAÐ!
SÍMI 585 4000 WWW.UU.IS
ALMERÍA
FLUG OG GISTING
27. JÚNÍ - 07. JÚLÍ
ARENA CENTER HOTEL 4*
VERÐ FRÁ 95.900 KR
Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN
PORTÚGAL
FLUG OG GISTING
21. - 28. JÚNÍ
APARTM. VILA PETRA 4*
VERÐ FRÁ 95.500 KR
VERÐ Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, MORGUNVERÐUR, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Vegagerðin hefur auglýst útboð á
rúmlega tíu kílómetra kafla á nýjum
Vestfjarðavegi, um Teigsskóg í
Þorskafirði. Framhaldið yfir Djúpa-
fjörð og Gufufjörð verður boðið út
síðar en þangað til sá hluti vegarins
verður tilbúinn verður hægt að aka
um gamlan malarveg í sunnan-
verðum Djúpafirði til að komast inn
á gamla þjóðveginn aftur. Kosturinn
við það er að ekki þarf að fara um
Hjallaháls.
Vegagerðin auglýsir útboð á lagn-
ingu vegarins frá Þórisstöðum, við
enda nýs vegar yfir Þorskafjörð, um
Teigsskóg og að Hallsteinsnesi. Er
þetta 10,4 kílómetra kafli. Að auki er
boðinn út 200 metra spotti frá Hall-
steinsnesi út á malarveginn sem
liggur þangað. Verður því hægt að
aka gamla veginn meðfram Djúpa-
firði sunnanverðum og inn á Vest-
fjarðaveg þar sem hann kemur niður
af Hjallahálsi.
Á vef Reykhólahrepps kemur
fram að gert er ráð fyrir háspennu-
streng og ídráttarröri fyrir ljósleið-
ara meðfram veginum. Til að við-
halda sem best staðbundnum gróðri
á vinnusvæðinu eru fyrirmæli í út-
boðsgögnum um að taka upp gróður-
torfur úr vegstæði og af skeringar-
svæðum og setja þær yfir aftur
þegar gengið verður frá svæðinu.
Verkinu á að ljúka fyrir 15. októ-
ber á næsta ári. Lokaáfangi lagn-
ingar nýs Vestfjarðavegar um Gufu-
dalssveit er síðan þverun Djúpa-
fjarðar og Gufufjarðar, yfir á
Skálanes. Samkvæmt upplýsingum
Vegagerðarinnar er verið að breyta
hönnun þverunar og brúar, til að
tryggja öruggt innflæði sjávar.
Stefnt er að útboði í haust. Vonast
er til að hægt verði að ljúka fram-
kvæmdum á árinu 2024 eða 2025.
Þegar sá kafli verður tekinn í notkun
færist vegurinn af Ódrjúgshálsi og
vegfarendur hafa þá losnað við tvo
leiðinda fjallvegi. helgi@mbl.is
Rennt í gegn-
um Teigsskóg
- Gamli malarvegurinn í framhaldinu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Grafarland Vestfjarðavegur fer
brátt í gegnum Teigsskóg.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Hafrannsóknastofnun leggur til að
loðnuafli á vertíðinni 2021/2022 verði
ekki meiri en 869.600 tonn, sem þýð-
ir 34.600 tonna lækkun ráðgjafar frá
þeirri sem gefin var út 1. október
2021. Þetta kom fram í tilkynningu
sem Hafrannsóknastofnun sendi frá
sér í gær.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
(Binni), framkvæmdastjóri Vinnslu-
stöðvarinnar, segir í samtali við
Morgunblaðið að tíðindin hafi verið
ánægjuleg enda sé skerðingin ekki
eins mikil og menn hafi búist við.
„Við drógum saman veiðarnar
þegar við héldum
að þetta yrði
lækkun um 100
þúsund tonn,“
segir Binni.
„Þetta þýðir þá
að við þurfum
heldur að herða
okkur aftur til
þess að ná þessu.
Svo verður það
örugglega bara
náttúran sem stjórnar þessu, veður
og veiði.“
Binni segir að Vinnslustöðin muni
fara langt með að ná sínum kvóta en
að margt muni spila þar inn í, eins
og til dæmis hversu lengi veiðin
verður, hvort hún verður til 15. mars
eða jafnvel lengur. Þar geti fimm
dagar til viðbótar haft mjög mikið að
segja.
„Fyrst og fremst er maður
ánægður að sjá loðnustofninn stóran
og sterkan. Næsta ár lítur líka vel út
hvað varðar veiði þannig að við er-
um bara nokkuð björt,“ segir Binni.
Árgangurinn 2019 sé stór
Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
byggist á samanteknum niðurstöð-
um á mælingum á stærð veiðistofns í
haustleiðangri, en hann var þá 1.834
þús. tonn, og leiðöngrum sem farnir
voru á tímabilinu frá 19. janúar til
14. febrúar, en þá var hann 939 þús.
tonn. Áætlaður afli á milli haust- og
vetrarmælinga er 275 þús. tonn. Í
tilkynningu Hafrannsóknastofnunar
segir að árgangurinn 2019, sem
muni bera uppi veiðina á yfirstand-
andi vertíð, sé án efa stór, en mikil
óvissa er um hve stór hluti hans mun
hrygna í vor.
Geti þessir þættir skýrt umtals-
verðan mun á mældri stærð stofns-
ins í haust og nú í vetur.
Ráðgjöf um aflamark byggist á
því að 95% líkur séu á að hrygning-
arstofninn í mars verði yfir 150.000
tonnum að teknu tilliti til afráns.
Samkvæmt því leiðir þessi heildar-
mæling til veiðiráðgjafar upp á
869.600 tonn veturinn 2021/2022.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Loðnuveiðar Eyjaskipin Suðurey og Sigurður köstuðu nótinni í Stakkabótinni í gær en fjölmörg skip voru að veiðum skammt frá Eyjum.
Hafrannsóknastofnun lækkar
loðnuráðgjöf um 34.600 tonn
- Leggur til að loðnuafli verði ekki meiri en 869.600 tonn á vertíðinni 2021/2022
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Öryrkjabandalag Íslands harmar
það að fyrrverandi stjórnarmaður í
Brynju – hússjóði Öryrkjabanda-
lagsins hafi ákveðið að fara fram
með „rakalausar“ og „innistæðu-
lausar“ ásakanir um sjóðinn og
stjórn hans, sem og nafngreinda ein-
staklinga í stjórn ÖBÍ. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá ÖBÍ.
Í yfirlýsingunni er einnig minnt á
að viðkomandi stjórnarmanni hafi
verið vikið úr stjórn Brynju, með
einróma ákvörðun stjórnar ÖBÍ,
sökum þess að hann hafi brotið gróf-
lega gegn skyldum sínum og brugð-
ist trausti ÖBÍ, eins og fjölmiðlum
var tilkynnt um á sínum tíma og sjá
megi á vef ÖBÍ.
Þá segir þar ennfremur að stjórn
Brynju – hússjóðs ÖBÍ sé í dag skip-
uð „mjög hæfu fólki“ og að hún sé
„óumdeild“. Rekstur sjóðsins sé því
„traustur“ og „í góðum höndum“.
Harma
ásakanir
- „Rakalausar“ og
„innistæðulausar“
Morgunblaðið/Ómar
ÖBÍ Stjórn Öryrkjabandalagsins
sendi frá sér yfirlýsingu í gær.
Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru
í gær úrskurðaðir í áframhaldandi
gæsluvarðhald vegna rannsóknar á
skotárás í Grafarholti í síðustu
viku, þar sem skotið var á karl og
konu. Höfðu mennirnir áður verið
hnepptir í viku varðhald sem rann
út í gær og framlengist varðhaldið
nú í viku, eða til 25. febrúar næst-
komandi. unnurfreyja@mbl.is
Áfram í varðhaldi
eftir skotárásina