Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 10

Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Landsbankinn og Íslandsbanki hafa brugðist við stýrivaxtahækkun Seðla- bankans og hafa m.a. hækkað óverð- tryggða og breytilega vexti húsnæð- islána um 0,5 prósentur. Stíga þeir því í humátt á eftir Seðlabankanum sem hækkaði meginvexti sína um 0,75 prósentur í liðinni viku. Samkvæmt upplýsingum frá Arion banka má gera ráð fyrir að ný vaxtatafla verði birt þar á bæ í komandi viku. Sé litið yfir þau vaxtakjör sem útlánastofn- anir veita á íbúðalánum má sjá að í langflestum tilvikum eru vextirnir lægri en 12 mánaða mæld verðbólga Hagstofunnar. Mældist hún 5,7% í janúar. Raunvaxtastig er því þau vaxtakjör sem bjóðast á markaði að frádreginni verðbólgunni á hverjum tíma. Slíkir útreikningar eiga ekki við í verðtryggðum lánum þar sem þau bera verðtryggingu til viðbótar við vaxtakjörin sjálf. Raunvaxtastig slíkra lána er því í raun alltaf vaxta- stigið sem slíkt. Athygli vekur að það er aðeins þeg- ar um svokölluð viðbótarlán, eða B- lán er að ræða sem vaxtastig óverð- tryggðra lána fer upp fyrir 5,7%. Sem stendur eru hagstæðustu óverðtryggðu vextirnir hjá Gildi líf- eyrissjóði eða 4,05% og eru þeir því í raun neikvæðir sem nemur 1,65 pró- sentum. Hæstir eru vextirnir á við- bótarlánum Arion banka og eru já- kvæðir um 0,84 prósentur. Verðbólgan étur upp óverðtryggðu vextina - Landsbanki og Íslandsbanki hækka Óverðtryggð húsnæðislán Heimild: Aurbjörg Fastir vextir Viðbótarlán Breytilegir vextir Viðbótarlán Lífeyrissjóður verslunarmanna 4,80% 4,13% Lífeyrisstjóður starfsm. ríkisins 4,70% Lífsverk 4,25% 5,25% Gildi 4,05% 4,80% Frjálsi 5,00% HMS 5,20% 6,20% Birta 4,10% Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 5,19% Almenni 4,80% Brú 4,10% 5,10% Íslandsbanki 5,30% 6,40% 4,65% 5,75% Arion banki 5,24% 6,54% 4,29% 5,59% Landsbankinn 5,20% 6,20% 4,70% 5,70% Sparisjóðirnir 4,20% 5,35% Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Hagnaður Landsvirkjunar á nýliðnu ári nam 148,6 milljónum dollara, jafn- virði 19,3 milljarða króna. Hefur fyrirtækið ekki skilað jafn miklum hagnaði síðan 2009 þegar hann nam tæpum 200 milljónum dollara. Tvöfaldast hagn- aðurinn nánast milli ára en hann nam 78,6 milljón- um dollara árið 2020. Rekstrartekj- urnar námu 558,8 milljónum dollara, jafnvirði 72,6 milljarða króna og hafa aldrei í sögunni verið meiri. Jukust þær um 105,3 milljónir dollara, eða 23,3% frá árinu 2020. „Eftir óvissu og erfiðleika í rekstr- arumhverfi fyrirtækisins í byrjun veirufaraldursins á árinu 2020 varð mjög jákvæð þróun á rekstri Lands- virkjunar á árinu 2021,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri fyrirtækisins, í til- kynningu sem fylgdi ársuppgjöri þess. „Bætta afkomu má rekja til mikils bata í rekstrarumhverfi stórnotenda viðskiptavina okkar og Landsvirkjun- ar sjálfrar.“ Bent hefur verið á að hrá- vöruverð og m.a. álverð hefur rokið upp á síðustu mánuðum, miðað við það sem var í upphafi faraldursins. Hefur það skilað álverum hér á landi stórbættri afkomu og raunar snúið gegndarlausum taprekstri í hagnað. Stórir samningar Landsvirkjunar eru tengdir heimsmarkaðsverði á áli og því koma þessar sviptingar fram í bókum fyrirtækisins. Hörður nefnir einnig að selt heild- armagn rafmagns hafi aukist um 5% á árinu 2021, borið saman við 2020. Þá hafi raforkukerfið á Íslandi verið full- lestað undir lok síðasta árs og eftir- spurn verið mikil frá fjölbreyttum hópi viðskiptavina. Skuldar 195 milljarða Nettó skuldir Landsvirkjunar námu 1.500,8 milljónum dollara í lok síðasta árs, jafnvirði 195,1 milljarðs króna. Lækkuðu þær um 175 millj- ónir dollara, jafnvirði 22,8 milljarða króna. „Helstu skuldahlutföll eru nú orðin sambærileg og þau eru hjá systur- fyrirtækjum okkar á Norðurlöndun- um, sem er árangur sem við erum stolt af. Lykilmælikvarðinn nettó skuldir/EBITDA lækkaði umtalsvert á síðasta ári og eru hreinar skuldir nú aðeins um 3,5-faldur rekstrarhagnað- ur fyrir afskriftir. Ekki er því lengur þörf á að leggja áherslu á hraða lækk- un skulda og hefur arðgreiðslugeta fyrirtækisins þar af leiðandi aukist,“ segir Hörður. Af þeim sökum hefur stjórn fyrir- tækisins ákveðið að leggja til við eig- anda sinn, íslenska ríkið, að greiddur verði út arður sem nemi 15 milljörð- um króna vegna reksturs síðasta árs. Mesti hagnaður Lands- virkjunar frá árinu 2009 - 19,3 milljarðar króna - Tillaga um 15 milljarða arðgreiðslu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Virkjanir Verð til stórnotenda hækkaði mikið á árinu sem leið og ræður þar mestu hækkandi heimsmarkaðsverð á áli sem er nú í hæstu hæðum. Hörður Arnarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.